Vikan - 01.11.1984, Síða 35
Draumar
Þrír draumar
Draumráðandi.
Eg sendi þér þessa þrjá
drauma mest fyrir áeggjan ann-
arra, sem eru þeirrar skoðunar að
þeir geti haft merkingu sem ég
kem ekki auga á. Þess vegna
langar mig til að biðja þig að spá
svolítið í þá. Ekki þarftu að hika
við að segja frá óförum, ef þær
leynast þama, því ég held að þcer
geti verið komnar fram.
Eg er í vinnunni og við höf '
um verið að leita að miða, ég og
yfirmenn mínir, erum komin að
borði sem ég vinn við alla daga.
Eg stend svo við endann á borð-
inu en hjón sitt hvorum megin
við hinn endann, ncest dyrun-
um. Þá kemur inn maður, lítur
upp og sþyr: Hver ert þú? Hann
svarar: Eg er guð. Eg heyri til
þeirra og hugsa: Ef þú ert guð,
segðu okkur hvar miðinn er.
Hann svarar um leið: Miðinn er í
efsta hominu á skúffunni. Við
lítum hvert á annað, síðan opnar
konan skúffuna og sækir mið-
ann, lítur á hann og réttir manni
sínum hann yfir borðið. Hann
réttir mér stðan miðann með
þeim ummælum að ég viti hvað
eigi að gera við hann. Eg lít á
miðann, hann er krumpaður og
þegar ég slétti úr honum er hann
í tveim hlutum.
Eg lít upp og horfi þá á guð,
sem er kominn til mín, en ég er
hissa því hann er meðalmaður á
hœð með brúnleitt Ijóst hár og
gleraugu (og minnir verulega á
mann sem ég hef þekkt vel í
nokkurár).
Við stöndum þétt saman, þó
komum við ekki við hvort annað.
Hann lyftir hendinni yfir höfuð
mér og niður á bak og um mig
fer undarleg tilfinning þegar
hann gerir þetta við allan líkama
minn, þó án snertingar, og
undarlegheitin verða svo mtktl
að mig svimar. Þá styður hann
við mig og við erum komin á
bekk og hann er að koma mér
þar fyrir. Mér finnst jafnvel að
hafi liðið yftr mig.
Þegar ég er lögst á bekkinn
segir hann mér að hann verði að
fara og sinna öðrum en hann
komi aftur. Eg tek því með
nokkrum trega en segi ekkert við
því. Mér verður litið til hliðar og
sé þá hvar kona stendur við
glugga, mjóan og langan. Hún
lyftir hendi við hann og þá koma
eldingar, jafnvel þrumur. Þetta
er hún búin að gera einu sinni
eða tvisvar þegar maður henni
viðkomandi kemur og segir:
Ferðu ekki bráðum að hætta
þessum blekkingum. Hún ætlar
að hætta þeim og teygir sig upp á
hurð en ég sé hvað hún ætlar sér
þvt uppi á hurðinni er hringur,
sennilega úr silfri, og ég veit að
hún ætlar mér að bera hann. Eg
vil ekki svona hring og meðan
hún sækir hann sæki ég gull-
hring sem ég er með í vasanum
og set hann upp. Hún á að sjá að
það er ekki pláss fyrir hennar
hring.
Draumur 2.
Eg er fyrir utan tíma og rúm,
stend á einhvers konar loftbrú,
sennilega úr daufu Ijósi og þó
engu. Eg stend á milli tveggja
afla, góðs, sem er fyrir aftan mig,
oþ ills, sem er fyrir framan mig.
Útlínur þess eru eins og
mannslíkami sem sést þó ekki
nema silfurslegnar útlínur en er
eins og neðri hluti fóta, frá
ökkla, sé margar silfurlínur en
ekkifætur. Allt er þetta skínandi
bjart.
Milli þessara afla ríkir spenna
sem ég fæ ekki skilið en þó er ég
ástœðan. Allt í einu nær verra
aflið gullbikar af þvígóða og það
góða spyr: Hvers vegna gerðir þú
þetta?
Þá er eins og allt loft sé úr því
verra afli og það lyppast niður
um leið og það svarar: Mig getur
líka langað til að eiga eitthvað
gott. Síðan breytist allt og við
erum komin í anddyri á stóru
húsi eins og Húsi verslunarinnar.
Eg á að taka við að gæta helgrar
bókar sem er uppi á lofti og verra
aflið hafði eitthvað með að gera.
Þessi bók er einhvers staðar uppi
álofti.
Eg er að fara í gegnum dyr
þegar mér er rétt orðið, sem fest
er á taug sem liggur eitthvað upp
í loftið og ég á að gæta þess. Eg
fer í gegnum dyrnar en missi af
orðinu. Þá kemur verra aflið
klætt eins og maður og réttir mér
það aftur og segir um leið að ég
verði að finna orðið eða rétta orð-
ið eða hafa orðið á réttum stað
(hér man ég ekki hvað passaði),
þó finnst mér að ég hafi átt að
rétta orðið, en það passaði milli
vísifingurs og þumalfingurs, allt’
ísmáhlutum en þó heilt.
3. draumur.
Það er bjartur sumardagur.
Eg er klædd hvítri peysu og
rauðu pilsi, kem labbandi til
pabba, sem erað vinna eitthvað í
portinu heima. Eg segi eitthvað
við hann en fæ engin svör. Eg lít
niður íportið og sé hvar dauðinn
kemur gangandi. Mér verður
hverft við og segi: Dauðinn er
kominn með stórt ker í höndun-
um. Pabbi var að bogra eitthvað
en réttir nú úr sér og þá er hann
ekki pabbi heldur guð. Hann
heldur líka á einhverju í hönd-
unum og bíður dauðans. Hann
lítur til mín brosleitur eins og
hann hafi vitað hvað ég hugsaði,
því hann segir: Dauðinn tekur
ekki bara líf, hann gefur það
líka. Eg skil ekkert íþessu en þá
bætir hann við: Dauðinn erupp-
haf lífsins. Mér finnst eins og ég
hafi átt að vita það sjálf.
Dauðinn er kominn til okkar
og guð er byrjaður að hella dökk-
um vökva í kerið hans, sem ég
veit að hann á að bera um meðal
fólksins, því til hjálpar. Þeir sem
fá á sig dropa úr kerinu fá bata
og líf. Eftir þvt sem kerið fyllist
fríkkar útlit dauðans og að lok-
um er kerið fullt og dauðinn orð-
inn sktnandi bjartur engill.
Eg er undrandi á þessu öllu
en þó þekki ég þetta allt. Mér
verður litið niður götuna og þá sé
ég hvar dauðinn kemur gang-
andi eins og út frá granda, með
kerið í fanginu og fullt af
englum, jafnvel fólk líka, á eftir
sér. Mér fannst öll birta og um-
hverfi vera öðruvtsi en við erum
vön, einhverm veginn tærari.
X.
Þú verður sjálfsagt undrandi
og jafnvel ósátt við þá ráðningu
sem kemur fram á draumum
þessum. Draumarnir eru mjög
sérstæðir en í þeim kemur ekki
fram bein táknræn merking að
mati draumráðanda og þess ráð-
gjafa sem hann leitaði til að
þessu sinni heldur má telja þessa
drauma endurspegla þá lífs-
reynslu sem þú hefur gengið í
gegnum og er þér hugstæð.
Það er ekki ósennilegt að trú-
mál séu þér ofarlega í huga eða
efst á baugi hjá einhverju fólki í
kringum þig. Þú mátt vara þig
svolítið á að láta ekki hafa of
mikil áhrif á þig, einkum þegar
þú ert viðkvæm út af einhverju.
Þú skalt reyna að taka sjálfstæðar
ákvarðanir, einkum þegar um
mikilsverð málefni er að ræða,
því í draumnum kemur fram vís-
bending um að þú verðir auð-
veldlega fyrir áhrifum frá öðrum
og látir ýmsa hluti verka óþarf-
lega sterkt á þig.
Þau sterku teikn sem í
draumunum má fínna endur-
spegla einhverja togstreitu í
sjálfri þér eða umhverfi þínu,
teikn sem gera mikið úr baráttu
góðs og ills. Rétt er að taka fram
að návist guðs í draumum hefur
hing->ð til þótt mjög jákvæð en
samhengið í þessum draumum
er ólíkt venjulegum tákndraum-
um. Þeir gætu þó varla talist ills
viti þó þeir væru teknir sem
tákndraumar.
Sem sagt engan veginn
slæmir draumar, tæplega tákn-
draumar en gætu verið vísbend-
ing um að fólkið í kringum þig
hafi mjög leiðandi skoðanir í
lífi þínu og sé svo er það óæski-
legt.
Úrval
LESEFNI
VK) ALLRA HÆFI
MISSTU EKKI
VIKU ÚR LÍFI ÞÍNU
ÁSKRIFTARSlMINN ER
27022
38. tbl. Vikan 35