Vikan - 01.11.1984, Page 45
augliti til auglitis viö Petronellu
sem hún haföi ekki mælt orö við
frá atburðunum síðasta sunnu-
dagskvöld. Petronella átti nægi-
lega blygðunartilfinningu til að
roðna og líta ringluð undan og
sömuleiðis Mary Cradock sem
kom á eftir henni. Þá daga sem
liðnir voru hafði Emma borið
kennsl á marga af grímuklæddu
þátttakendunum í svörtu mess-
unni af þvinguðum viðbrögöum
þeirra við augnaráði hennar —
bæði ættingja og þjónustufólk.
Einn mann hafði hún ekki hitt —
og hún hafði lagt sig fram um að
forðast hann — og það var Toby
Stocker.
Undirbúningur að nýju fyrir-
komulagi undir stjórn fjórða
markgreifans var í lausu lofti
nærri því viku, en þann tíma sást
Eustace Beechborough ekki viö
máltíðir eða fjölskyldusamkomur,
ekki einu sinni hjá gömlum félög-
um sínum við spil og kvennafar í
gróðurhúsinu. Eins og riddari við
næturvöku hélt nýi markgreifinn
sig í herbergjum sínum, hafði ekki
annan félagsskap en frú
Galloway, neytti allra máltíða í
einkasetustofu sinni og fór varla
út nema í gönguferðir á kvöldin
með hundinum sínum.
Viku eftir að. Beechborough
hækkaði í tign tók hann á móti
gesti sem olli fjölskyldunni mikl-
um heilabrotum. Gesturinn kom í
leiguvagni, ásamt farangri. Hann
var vel gerður, hávaxinn maður á
fertugsaldri og klæddur í rauöan
einkennisbúning höfuðsmanns í
fótgönguliðinu. Allan þann dag sat
hann á ráðstefnu með markgreif-
anum og fylgdi honum á kvöld-
göngunni með hundinum. Fylgst
var með þeim úr flestum hallar-
gluggunum. Fólk braut heilann
ákaft og tók eftir því aö höfuðs-
maðurinn talaði mest en Beech-
borough hlustaði.
Vangaveltur og gróusögur náðu
hámarki daginn eftir þegar mark-
greifinn kallaði á þrjá félaga sína
að koma til sín í setustofuna og
sendi svo undirþjón til að leita að
Emmu Dashwood, sendi henni
kveðju sína og bað ungfrú Emmu
að vera svo væna að koma á fund
herra markgreifans við fyrsta
tækifæri.
HERBERGI markgreifans af
Beechborough náöu yfir alla efri
hæðina á framhlið stóra hússins,
meö útsýni yfir hlaðið, skraut-
garðana með gosbrunnum og illar
gufur engjanna niður að ánni. Að
herbergjunum lá breiður stigi upp
úr anddyrinu og þaö var með
örum hjartslætti sem Emma stik-
aöi þar upp um leið og hún var
búin að slétta hárið, setja á sig
svolítið hrísgrjónapúður og örlítið
ilmvatn og fullvissa sig um að hæl-
arnir væru ekki komnir út úr
sokkunum eða að of mikið sæist af
brjóstunum á henni.
Þegar hún barði aö dyrum á
setustofu markgreifans heyrði
hún hálfkæfða skipun að innan um
að hún ætti að koma inn. Þegar
Emma gegndi hvíldi þegar á
henni augnaráð þeirra fimm sem
inni voru, augu frænda hennar,
markgreifans, félaga hans
þriggja, James frænda, Herberts
frænda og Josiah frænda Cradock,
og óhvikult augnaráð hins dular-
fulla höfuðsmanns í fótgöngu-
liðinu. Þeir risu allir á fætur þegar
hún kom inn.
„Elsku Emma mín,” sagði
Eustace Beechborough mjúkur í
máli, benti á sæti sem sett haföi
verið við borðið þar sem hann og
félagar hans sátu. „Elsku, láttu
fara vel um þig. Þú þekkir mig, þú
þekkir þessa ágætu ættingja þína.
Það er ekki annaö eftir en að
kynna þig fyrir Tredegar höfuðs-
manni í tuttugasta fótgönguliöinu.
Hann er aðstoðarmaður sir
Claude Devizes hershöfðingja,
hernaöarlandstjóra í Quebecfylki.
Höfuðsmaöur, þetta er frænka
mín, ungfrú Emma Dashwood.”
„Yðar þjónn, ungfrú.” Höfuðs-
maðurinn laut kurteislega yfir
höndina sem hún rétti honum.
„Herra minn,” tautaði Emma
og velti fyrir sér hvað í ósköp-
unum hefði komið frændum henn-
ar til aö setjast á þing og kalla á
hana til aö kynna hana fyrir aö-
stoðarmanni einhvers fjarstadds
hershöfðingja.
Hún hagræddi sér í sætinu, lagði
hendurnar í kjöltu sér og leit af
einum á annan í áhorfendahópi
sínum með eins mikilli ró og hún
gat knúið fram. Það skemmti
henni er hún tók eftir að Eustace
frændi hafði brugðið fyrir sig al-
vörugefni og yfirlætisbrag sem
féll að virðingu tignar hans. Þessa
stundina beindi hann augunum að
hálsmáli hennar og þaö tók tölu-
vert á hana að varna því að skýla
sér með hendinni. Frændur hans
og félagar horfðu sömuleiðis á
hana með ósjálfráðum losta sem
fylgir því að fylgja öllum sínum
löngunum ævilangt. Það hvarflaði
að henni að þeir hlytu að sakna
daglegrar skemmtunar sinnar í
gróðurhúsinu og hún vorkenndi
þeim mjög.
„Herrar mínir, komum okkur
að efninu,” sagði Beechborough.
„Einmitt, herra markgreifi,”
sagði Tredegar höfuðsmaður.
„Eins og herra mínum, mark-
greifanum, þóknast.”
„Við sleppum formlegum
ávörpum meðan á þessum sam-
ræðum stendur, höfuðsmaður,”
sagði Beechborough upphafinn.
„Og þú ávarpar mig og frændur
mína einfaldlega „herra”.”
„Já, mark — já, herra,” stam-
aði foringinn, roönaði, og Emma
vorkenndi honum talsvert.
„Kæra Emma mín,” sagði
Eustace frændi hennar, sleit treg-
lega augun af barmi hennar og
færði augnaráðið upp aö höku,
„höfuösmaðurinn hér er sendiboði
— myndirðu lýsa sjálfum þér sem
sendiboða, höfuðsmaður?”
„Vissulega, herra. Sendiboða.
Já,” svaraði hermaðurinn.
„Sendiboði frá hinu fjarlæga
Quebecfylki í Kanada, elsku
Emma mín,” sagði Beechborough.
„Jæja, elsku Emma mín, þú
verður að vita að yfirboðari
höfuðsmannsins, sir Claude
Devizes hershöfðingi, er ákaflega
hátt settur foringi, bæði í starfi
sínu og af ætterni. Það er rétt þeg-
ar ég segi, er ekki svo, höfuðs-
maður, að sir Claude sé af
Devizes-ættinni í Bristol, útgerð-
arfjölskyldunni?”
„Hann er þaö, herra,” svaraði
höfuðsmaðurinn. „Sir Claude er
auk þess núna — eftir að frændi
hans lést — eini hluthafi í Devizes-
flotanum og ákaflega stöndugur
herramaður.”
„Auður er ekkert sem hefur
áhrif á skoðanir meðlima
Cradock-fjölskyldunnar, hvorki á
þennan veg né hinn,” sagði
markgreifinn með votti af strang-
leika. „En það skiptir ekki megin-
máli.”
„Heyr, heyr,” tautaöi James
frændi. Og hinir frændurnir létu
álit sitt í ljós með því að berja í
borðið.
Emma vissi ekki hvaðan á sig
stóð veðrið þegar hún leit af einum
Framkvæmum
MÓTOR * HJÓLA ¥ LJÓSA
n
Ef þú lætur stilla bílinn
reglulega (á 10.0C0 km. fresti
eyöir hann minna en ella.
M
ú
ÍBÍLASKOÐUN
% &STILLING
S13 1QO HÁTÚN 2a
38. tbl. Vikan 45