Vikan - 24.01.1985, Side 35
Pi Draumar
Áskorun:
Hefur ykkur dreymt merki-
legan draum?
Hallfreður Örn Eiríksson hjá Stofnun Árna Magnús-
sonar hafði samband við Vikuna nýverið vegna þjóð-
fræðilegra rannsókna á draumum, sem hann hefur
stundað um margra ára skeið.
Hann hefur áhuga á að komast í samband við fólk
sem hefur dreymt táknræna drauma, annaðhvort
persónulega eða fyrir einhverjum atvikum í þjóðlífinu
eða jafnvel heimssögunni. Fólk á öllum aldri hefur
skrifað draumráðanda Vikunnar og bréf þess eru að
sjálfsögðu algjört trúnaðarmál en ef þeir sem hafa
skrifað þessum þætti eða eru að búa sig undir að gera
það lesa þessar línur myndu þeir gera rannsóknum
þessum mikið gagn ef þeir skrifuðu til Hallfreðar Arn-
ar Eiríkssonar, Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði
við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Þeir þurfa ekkert frekar
að senda drauma, bara að komast í samband við
hann, senda nafn, heimilisfang og símanúmer, og að
sjálfsögðu yrði farið með allt sem trúnaðarmál. Þeir
sem af einhverjum ástæðum vilja ekki skrifa beint
geta sent draumaþætti Vikunnar leyfi sitt til að gefa
Hallfreði upp nafn þeirra og heimilisfang og/eða síma-
númer. Þið getið líka getið þess, þegar þið sendið inn
drauma, hvort það sé í lagi að gefa Hallfreði upp nöfn
ykkar. Vonandi sjá einhverjir sér fært að verða við
þessari bón um liðveislu.
Tennur
Kæri draumráðandi.
Viltu vinsamlegast ráða
fyrir mig eftirfarandi
draum.
Mig dreymdi að ég vceri
stödd úti á landi, t þorpi
þar sem ég er uppalin,
ásamt unnusta mínum.
Veit ég þá ekki fyrr en ég
missi allt í einu báðar
framtennurnar. Þar sem ég
hélt áþeim bað ég unnusta
minn að keyra mig strax í
næsta þorp, sem var stutt
frá, til tannlæknis og
cetlaði ég að biðja hann að
líma tennurnar á sinn stað.
Leggjum við af stað og
finnst mér hann keyra
óþolandi hægt því mér
virtist liggja mikið á. Bið
ég hann því margoft að
keyra hraðar en ekkert
gekk.
Allt í einu finnst mér
einhver maður sitja í aftur-
sætinu og vil ég alls ekki
láta hann sjá hvað hafi
gerst. Missi ég þá
tennurnar á gólfið og
önnur skoppar aftur í og
brotnar úr henni en ég læt
á engu bera. Tilkynnir
unnusti minn þá að nú
loksins séum við komin á
áfangastað. En þá vildi svo
illa til að hann hafði tekið
ranga beygju og var
kominn á sama stað og við
lögðum upp frá.
Var mér þá allri lokið og
segi honum að fara út úr
bílnum því ég cetli að fara
þetta ein, þetta gangi ekki
svona. En er ég var sest upp
í bílinn og tilbúin að
leggja af stað finn ég mér
til undrunar að tvær nýjar
tennur voru komnar í
staðinn, en að vísu dálítið
misstórar, og varð því ekki
afþeirriferð.
Bíð með eftirvæntingu
eftir ráðningu.
Með fyrirfram þökk.
X.
Þessi draumur er fyrir
missi, þeim sem þú getur
um í skýringum við
drauminn, og það gæti
gerst eða hafa gerst án þess
þú vissir í tvígang, en síðan
gengur þér allt í haginn
eftir það. Tennurnar tvær
eru misstórar og gefa til
kynna að þú munir senni-
lega eignast tvö börn en
ekki á sama árinu, heil-
brigð og hraust.
Rauðar
rósir
Kæri draumráðandi.
Eg hef aldrei skrifað þér
áður en mig langar svo að
fá eina draumráðningu.
Draumurinn erþannig:
Eg var í herberginu hjá
stráknum sem ég er hrifin
af og mér leið æðislega vel
þar. Þar voru þrjár litlar,
rauðar rósir sem hann átti
og ég bað hann aðgefa mér
eina og hann gerði það.
Síðan kom bróðir minn og
sótti mig svo ég þurfti að
fara en rósin brotnaði á
leiðinni. Eg vafði hana inn
í bréf og lét hana í töskuna
en svo langaði mig að fara
þangað aftur en fann ekki
húsið og við það vaknaði
ég-
Kæri draumráðandi.
Geturðu birt þennan
draum í þættinum þínum
og ráðið hann fyrir mig ?
Með fyrirfram þökk.
Ég.
Draumurinn bendir til
að eitthvað verði á milli
ykkar og það ert þú sem átt
frumkvæðið. Brestur kem-
ur í sambandið en þú munt
gera allt sem í þínu valdi
stendur til að laga það en
tekst að líkindum ekki sem
skyldi. Það er þó ekkert
sem bendir til að þú takir
það mjög nærri þér, þú
gerir þitt besta og sættir þig
við þann árangur sem þú
nærð, alla vega í þetta sinn-
ið.
Þegar ég er orðin stór? Þá ætla ég að borða kotasælu og stunda
leikfimi.
4. tbl. Vikan 35