Vikan


Vikan - 31.01.1985, Blaðsíða 9

Vikan - 31.01.1985, Blaðsíða 9
Stjórnast af Úranusi (og Satúrnusi) — sjálfstæður — mannlegur og stjórnsamur Uppruni nafnsins er óljós, guöinn Hapi hellti úr tveim kerum í ána Níl og til var í Babýlon guöinn Ea sem stundum var nefndur árguðinn. Babýloníumenn kölluö vatnsbera- merkiö GU.LA og var það tengt fæðingum og lækningum. Jákvæöu þættimir í fari vatnsberanna eru mannúð og sjálfstæði, vingjamleg fram- koma, áhugi á framförum, frumleiki, trú- mennska, hugsjónaeldur, áhugi á menningar- málum og hjálpsemi. Neikvæö skapgeröareinkenni em hvaö þeir em óútreiknanlegir og flöktandi, uppreisnar- gjamir, stundum tiilitslausir, sumir þeirra geta haft afbrigðilegar hneigðir en flestir láta sér nægja að vera frjálslegir. Vatnsberamir em vingjamlegir, fremur yfirborðslegir í framkomu og yfirleitt alveg óútreiknanlegir. Yfirleitt virka þeir samt vel á fólk frá fyrstu kynnum en þeir hleypa sjaldan nokkrum nálægt sér. Þeir geta verið hjálpsamir en vilja finna sig óháöa skyldum í þáátt. Einstaklingsfrelsið skiptir vatnsberana meira máli en flest annaö og þeir em reiðu- búnir til að leggja talsvert í sölumar til að viðhalda því. Stundum getur þetta farið í taugamar á öðrum því ekki fer hjá því að til árekstra komi við vatnsberana í mannlegum samskiptum á meðan þeir setja sjálfstæðið á oddinn. Þeir vilja ekki bindast neinum of sterkum böndum, hvorki fólki, flokkum, hug- sjónum né öðm, og fá fyrir vikið stundum á sig orð fyrir að vera heldur flöktandi og ekki fastirfyrir. Vatnsberar em ekki líklegir til að berjast fyrir einhverjum málstað, þeir kjósa frekar að hrista hausinn og segja að þeim komi vandamál heimsins ekkert við og þau verði aðriraðleysa. Hins vegar getur vatnsberi fengið góðar hugmyndir og hefur oft listræna hæfileika og er örlátur á að deila þessu með öðrum. Þörfin fyrir að vera alltaf frumlegur getur þó háð honum í að ná listrænum þroska. Vatnsberar virðast mjög frjálslyndir í skoðunum og bera það með sér en geta verið íhaldssamir í einstökum efnum og þá verður þeim ekki haggaö. Það er erfitt að sannfæra vatnsbera um að hann hafi rangt fyrir sér. Persónutöfrar vatnsberans liggja í áhuga- verðri framkomu fremur en í hlýju viðmóti. Vatnsberanum er sama hvað aðrir hugsa og gefur því lítinn gaum hvort það er í takt við hann sjálfan. Hann hefur ágætt hugmynda- flug en er ekkert að mynda sér skoðanir á málum sem honum finnst ekki koma sér neitt viö. Hann getur þó hitt naglann á höfuðið ef hann tekur afstöðu til málefnis. Þaö er skynsemin sem kemur honum á rétta braut. Hann hugsar skipulega en festir hugann ekki lengi við eitt efni öðrum fremur. Hann er víð- sýnn og lætur flest flakka og skiptir það hann þá engu hvað aðrir hugsa um sama mál. Hann á gott með að skilgreina hluti og er fremur vísindalega þenkjandi. Margir vatns- berar hafa áhuga á raunvísindum. 1 tilfinningamálum er þörf vatnsberans fyrir visst sjálfstæði mjög áberandi. Þó hann eignist fjölskyldu vill hann halda vissum sjálfsákvörðunarrétti og það getur valdið árekstrum, einkum ef hann eignast böm. Makinn verður aö vera æði skilningsríkur ef dæmið á að ganga upp. Það er ekki hyggilegt að reyna að tjóðra vatnsberann á bás. Hins vegar er hann góður og ástríkur maki ef hann er ekki með innilokunarkennd og ótryggð er honum fjarri skapi. Vatnsberar leggja oft út í ritstörf af einhverju tagi, raunvísindi og félagsvísindi eru þeim mjög að skapi og rannsóknarstörf henta vel. 1 starfi hefur vatnsberinn sömu þörf fyrir sjálfstæði og í einkalífinu. Hann fer létt með að vinna hvaða starf sem er ef hon- um finnst hann ekki bundinn, sama hvort starfið er skemmtilegt eða leiðinlegt, bara ef hann fær aö haga því eftir sínu höfði. Hjálpar- störf af ýmsu tagi geta átt mjög vel við skapgerð hans. Yfirleitt vinnst honum vel og er hugmynda- ríkur í starfi. Hann lendir oft í störfum þar sem reynir á visindaleg vinnubrögð og sumir af fremstu vísindamönnum heims eru f æddir í vatnsberamerkinu. Það er lfldegt að eitthvað „loftkennt” sé við störf vatnsberans enda er merkiö talið til loft- merkja, flug og annað ámóta getur höfðað sterkt til hans. Vatnsberar eru lfldegir til að ala böm sín upp við sömu viðhorf til sjálfstæðis og þeir hafa sjálfir. Þeir reyna lika að kenna öðrum sömu lifshætti, meö misjöfnum árangri því svo sem frægt er er stundum erfitt að kenna gömlum hundi aö sitja. Vatnsberinn á létt með aö blanda geði við fólk á öllum aldri en vill óhjákvæmilega helst leiða umræðumar. Hann vill kannski ekki breyta um skoðun en hann hlustar betur á skoðanir bama sinna en flestir aðrir foreldrar. Hann er vinsamlegur í garð ungs f ólks og hefur áhuga á því. Hann er hins vegar ekkert sérlega innilegur í viðmóti, frekar talinn „hress” en blíður. Oft ber á tónlistargáfu hjá vatnsberum en hún þróast ekki alltaf sem skyldi, til þess er hann of óþolinmóður, einmitt í listrænum efnum. Böm fædd í þessu merki em yfirleitt gædd námsgáfum sem hjálpa þeim að liða gegnum lífið eins átakalaus og frjáls og þau hafa í flestum tilfellum áhuga á. Þau em yfirleitt heillandi í framkomu og óþvinguð eins og fullorðnir vatnsberar. Vatnsberar em yfirleitt góðir vinir vina sinna ef þeir em ekki þrúgaðir af þeim og þeir em skemmtilegt kiydd í tilveruna, að minnsta kosti á meðan þeir vflja það við hafa. Þrátt fyrir áhyggjuleysi í framkomu hættir vatnsberum til þunglyndis. I fjármálum vegnar þeim oftar en ekki ágætlega og það er fyrst og fremst að þakka áræði þeirra við aö brydda upp á einhverju nýju. 5. tbl. Vlkan 9 20. janúar — 19. febrúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.