Vikan - 31.01.1985, Blaðsíða 35
ÍH Draumar
Áskorun:
Hefur ykkur dreymt merki-
legan draum?
Hallfreður örn Eiríksson hjá Stofnun Árna Magnús-
sonar hafði samband við Vikuna nýverið vegna þjóð-
fræðilegra rannsókna á draumum, sem hann hefur
stundað um margra ára skeið.
Hann hefur áhuga á að komast í samband við fólk
sem hefur dreymt táknræna drauma, annaðhvort
persónulega eða fyrir einhverjum atvikum í þjóðlífinu
eða jafnvel heimssögunni. Fólk á öllum aldri hefur
skrifað draumráðanda Vikunnar og bréf þess eru að
sjálfsögðu algjört trúnaðarmál en ef þeir sem hafa
skrifað þessum þætti eða eru að búa sig undir að gera
það lesa þessar línur myndu þeir gera rannsóknum
þessum mikið gagn ef þeir skrifuðu til Hallfreðar Arn-
ar Eiríkssonar, Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði
við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Þeir þurfa ekkert frekar
að senda drauma, bara að komast í samband við
hann, senda nafn, heimilisfang og símanúmer, og að
sjálfsögðu yrði farið með allt sem trúnaðarmál. Þeir
sem af einhverjum ástæðum vilja ekki skrifa beint
geta sent draumaþætti Vikunnar leyfi sitt til að gefa
Hallfreði upp nafn þeirra og heimilisfang og/eða síma-
númer. Þið getið líka getið þess, þegar þið sendið inn
drauma, hvort það sé í lagi að gefa Hallfreði upp nöfn
ykkar. Vonandi sjá einhverjir sér fært að verða við
þessari bón um liðveislu.
Efþú. . . . !
Kæra Vika!
Eg undirritaður bið þig
að ráða fyrir mig draum
sem mig dreymdi. Eg var
beðinn að vera vélamaður á
bát á vetrarvertíð. En hann
var í Reykjavík og ég var
beðinn að fara þangað að
sækja hann. Hér kemur
draumurinn:
Eg gisti á nýjum stað, af-
skekktum stað í sveit. Mér
var vtsað þar til sængur og
lokaði ég dyrunum strax og
sofnaði. Einnst mér ég sjá
konu inni hjá mér og hún
segir við mig: Ef þú ferð í
þessa ferð drepur þú þig.
Eg segi þá: Þér verður ekk-
ert úr því klæði, ég drep
mig ekki. Hún endurtekur
þetta aftur og aftur og ég
endurtek í hvert sinn að
henni verði ekkert úr því
klæði, ég drepi mig ekki.
Og svo var hún lifandi
þegar hún fór og ég
vaknaði að hún skildi dym-
ar eftir opnar sem ég lokaði
um kvöldið. Hér kemur
lýsing á draumkonunni:
Hún var dökkhærð, lagleg
og myndarleg, t meðal-
lagi á hæð og frekar feit
og mikið fas á henni.
Hvað finnst þér um
þennan draum ?
Kær kveðja, fyrirfram
þökk. Hef mikinn áhuga á
að fá svar.
Bless. Bæi.
Þessi draumur getur við
fyrstu sýn virst fyrir ein-
hverjum stórviðburðum og
þá jafnvel af neikvæðara
taginu. Sem betur fer er
svo ekki, hlutir eins og
andlát og spádómar í
draumi tengjast sjaldnast
slíkum atburðum í vöku.
Ýmislegt bendir til að
þú sért orðinn harla leiður
á viðfangsefnum líðandi
stundar og hafir ríka þörf
fyrir að breyta til um sinn.
Oft er einungis til góðs að
takast eitthvað nýtt á hend-
ur og svo mun vera í þínu
tilviki ef þú færist ekki of
mikið í fang. Yfirbragð
konunnar segir svo að þér
verði gróði að breytingun-
um á fleiri en einn máta.
Rúnir úr blóði
Kæri draumráðandi.
Mig langar til að biðja
þig að ráða fyrir mig eftir-
farandi draum sem mig
dreymdi fyrir stuttu og hef
hugsað mikið um. Hann
var þannig: Mér fannst ég
liggja í rúminu mínu og
horfa upp í loftið. Þá
mynduðust allt t einu rúnir
úr blóði íloftinu. Þær juk-
ust smám saman og féllu
svo í dropum yfir mig þar
sem ég lá. Þá fannst mér ég
færa mig í annað herbergi
en það fór alveg á sömu
leið og einnig í þvt þnðja.
Þá var ég orðin hálflömuð
af hræðslu og fór t eitthvert
annað hús þar sem ég hitti
Ijóshærða unga konu sem
mér fannst vera gömul vin-
kona mín sem ég hefði ekki
séð lengi og héti Herta (ég
þekki enga með því nafni
og kannast ekkert við
konuna). Þá endurtekur sig
sama sagan, það byrjar að
leka blóð yfir mig og mér
finnst ég segja við stúlkuna
að það sé alveg sama hvar
ég sé, það rigni alltaf yfir
mig blóði. Eg var þá hálf
grátandi en mér fannst
henni ekkert þykja það
óeðlilegt en leið sjálfri
óskaplega illa og við það
vaknaði ég. Draumurinn
var mjög skýr.
Með fyrirfram þökk ef
þú reynirað ráða þetta.
Hanna.
Ekki eru allir draumar
dreymandanum sjálfum
fyrir komandi atburðum og
líklega er þarna um að ræða
einn slíkan. Dæmi eru um
að vini dreymi fyrir ein-
hverju í lífi manns og
einnig getur það gerst að
fólk dreymi fyrir lífi ann-
arra þótt það þekki ekki
viðkomandi persónulega.
Angi af því sama er þegar
fólk dreymir þekkta menn
og óorðna atburði í þeirra
lífi. Það sama getur gerst
þótt maðurinn í draumn-
um sé ekki þekkt persóna,
jafnvel þannig að dreym-
andinn hafi aldrei litið
hann augum og viti ekkert
um tilvist hans. Hvað
þarna er á ferðinni er ekki
gott að segja til um, í því
efni sýnist sitt hverjum. Ein
skýringin er að þar fari ein-
hverjir straumar ekki á rétta
staði, kannski svipað og í
vökunni á sér stað þegar
valið er rangt símanúmer.
Draumurinn bendir til að
þessi unga kona hafi átt í
miklum erfiðleikum, þar
eru sárir hlutir hvað varðar
fjölskylduna efstir á blaði.
Bæði andlát og aðskilnaðir
við hina lifandi setja mark
sitt á líf hennar um tíma og
reyndar endar draumurinn
þannig að lítið er hægt að
segja til um hvernig hún
vinnur úr því í framtíðinni.
En þú þarft sjálf lítið að
hugsa um þennan draum
viðkomandi eigin lífi því
ekkert bendir til að hann
segi til um neitt hvað það
varðar.
5. tbl. Vikan 35