Vikan


Vikan - 31.01.1985, Síða 22

Vikan - 31.01.1985, Síða 22
Smásaga meina að þau eru góð í sér. Og að vera góður í sér er að vera góð- hjartaður, sérðu til, svo sannar- lega góðhjartaður.” Svo þagnaði hún.. Hún var að hugsa um þetta. „Ég er einkabam þeirra,” hélt hún áfram. „Ég er ófrísk. Eg er sautjánára.” „Vita þau ekki um þetta?” spurði ég. „Þau vita þetta,” sagði hún. „Ég sagði þeim þaö. Ég hef alltaf sagt f oreldrum mínum frá öllu. ’ ’ „Og hvað sögðu þau?” „Þau sögðu ekkert,” sagði hún. „Ég sé fyrir mér andlit þeirra. Andlit þeirra lýstu af ást, skal ég segja þér, en þau sögðu ekkert. Þau sátu bara án þess að segja neitt. Þau geta ekkert sagt. Faðir minn gæti barið mig en allt og sumt, sem hann gerir, er að strjúka mér um hárið og hann grætur. Móðir mín segir ekkert Hún er góðhjörtuð, svo sannarlega góðhjörtuð.” „Og er þetta ástæðan?” spurði ég- „Já,” svaraði hún. „Með þessu geri ég þeim mikinn greiða. Ég fyrirfer mér. Andlit þeirra breyt- ast ekki. Þau geta ekki orðið hryggari en þau eru. Þetta er leið- in.” „Það er einn enn sem þetta varðar,”sagðiég. „Hver?” spurðihún. „Það er faðir bamsins,” sagði ég. Hún hló. Mér geðjaðist ekki að þeim hlátri. „Ég þekkti hann ekki,” sagði hún. „Ég er svo góð í mér, sérðu til. Ég stelst frá foreldrum mínum sem em sannarlega, sannarlega góðir. Þetta geri ég bara einstaka sinnum. Á sunnudögum leikum við okkur af miklu fjöri og við dönsum eftir leikinn og við drekk- um. Ég er óvön áfengi. Við slökkv- um ljósin og kyssumst og ráfum um ströndina, burt frá bálinu og flöskunum og ég man ekkert. Ég veit ekki einu sinni hver hann var. Mér varð illt í maganum á eftir og öll hugsun mín snerist um þaö, sérðu til. Eins og maður tekur inn meðul til þess að losna við maga- verk.” „Þú deyðir bamið einnig,” sagði ég. Húnþagði við. Ég kveikti á eldspýtunni. „Líttu á mig,” sagði ég. Ég vissi að hún mundi gera það. Augu min blinduðust af ljósinu. Ég stakk síg- arettunni upp í mig og kveikti i henni. Þaö slokknaði á eldspýt- unni. „Sástu mig?” spurði ég. „Ég sá þig,” svaraði hún. „Þekkir þú mig,” spurði ég. „Já,” svaraði hún. Það var eins og ég hafði vonað. Þegar aUt kem- ur tU aUs gerðist þetta í smáborg. „Ég þekki þig ekki,” sagði ég. „Or því að þú berð kennsl á mig veistu hver ég er og hvað ég geri. Þú veist að ég hef verið kvæntur í um það bU áratug og að við eigum engin böm. „Þetta held ég að ég viti,” sagði hún. „Ég þarf á bami að halda,” sagði ég. „Gefðu mér bamið þitt. Gefðuþví líf.” Ég heyröi að hún andaði djúpt að sér og ég hélt máU mínu áfram. „Þú getur farið á brott héðan með konunni minni hvert sem ykkur þóknast,” sagði ég. „Ég er efnaður maður, eins og þú veist, og þegar þið komið aftur tekur konan mín við baminu. Gefðu þessu bamilíf.” „Þú ert geggjaður,” sagði hún. „Það veit ég,” sagði ég. „Hvers vegna heldur þú að ég sé hér ? ” Hún þagði við. Ég lét hana um að hugsa þessa hugsun tU enda. „Þetta getur ekki verið,” sagði hún. „Það væri þó undarleg tUvUj- un.” „SannleUcurinn er mjög undar- legur,” sagði ég. „Hvers vegna?” spurði hún. „VEGNA ÞESS AÐ ÉG VARÐ BARNIAÐ BANA,” sagði ég. „Þú ert að reyna að gera mig ruglaða! ” Það lá við að hún hróp- aði þessi orð. „Nei,” sagði ég. „Það var skrif- að um þetta í blöðum fyrir sex mánuðum. Það var stutt frásögn. Fjögurra ára bam hljóp út á götu beina leið í veg fyrir bifreið. Bam- ið dó. Þetta kom fyrirmig.” „Æi, nei,”sagðihún. „Jú, jú,” sagði ég. „Vesalings faðirinn. Hann bar stúlkuna í fanginu. Hún hafði ljóst hrokkið hár og blá augu og það blæddi úr nösum hennar. Mér skUdist af því hvemig höfuðið á henni slóst tU að hún væri dáin. Þetta var ekki mér að kenna, sögðu menn. Vesalings faðirinn bað mig aUt að því afsök- unar á því að bamið hans skyldi hlaupa fram fyrir bUinn. Það lá við að ég fengi orðu fyrir að vera valdur áð dauða þessa bams. Og ég átti sökina. Ég hefði getað forð- að baminu frá dauða. Ég veit að ég hefði getað bjargað þessu bami. HeUu nætumar, nótt eftir nótt, sé ég þetta bam fyrir mér. Hún er stöðugt förunautur minn. Ég hefði getað forðað henni frá dauða. En menn sýkna mig. Þeir kenna baminu sjálfu um dauöa- slysið. Þetta er viðurstyggö. Ég drap þetta bam, ég drap hana.” „Hvað með konuna þína?” spurðihún. „Elskarðuhana?” „Já,” sagði ég. „Hún er góð- hjörtuð. Hún er svo sannarlega góðhjörtuð.” Ég heyrði að hún dró djúpt and- ann. Svo ríkti þögn í næturkyrrð- inni. Sígarettan brenndi mig í finguma. Ég fleygði henni frá mér. Það sást neisti í henni þar sem hún sveif í boga. Ég fann að við biðum bæði eftir að heyra hljóðið þegar hún dytti í vatnið. Var mögulegt að við gætum heyrt hljóðið? Við heyrðum ekkert. Stúlkan reis á fætur. Hún rétti úrsér. „JÆJA,” sagði hún. „ÞtJ ÁTT SÖK Á DAUÐA BARNS. NÚ HEF- UR ÞO FORÐAÐ BARNI FRÁ DAUÐA.” Ég beið. „Heyrðir þú þetta?” „Já,”sagðiég. „Ég ætla sjálf að bera minn kross,”sagðihún. „Þú hefur létt af mér byrðinni af mínum krossi,” sagði ég. Hún kvaddi ekki. Hún snerist bara á hæli og fór. Ég heyrði þegar hún gekk yfir svæðið. Alla leiðina. Ég heyrði greinilega fótatak hennar þegar hún kom út á malbikaða veginn. Mér gat ekki misheyrst. Ég tók upp litlu skammbyssuna með hlaupvídd 3«. Ég hafði byssu- leyfi fyrir henni. Ég keypti hana til þess að vemda peninga mína og eignir. Ég notaði hana aldrei. Að- eins einu sinni eða tvisvar til þess aö æfa mig í að skjóta í mark. Og einu sinni miðaði ég henni á fljúg- andi villigæsir við vatn. — Það heyrðist skvamp þegar hún skall í vatnið. Ég er nefnilega vel syndur, þess vegna þurfti ég á byssunni að halda. Ég fór út úr geilinni og stað- næmdist á brúninni. Allt í einu stirðnaöi ég af kulda. Ég skalf frá hvirfli til ilja. Nú var ég dauð- hræddur um að ég kynni að falla ofan af hæðinni niður í vatnið í steinnámunni. Ég varð gagntek- inn af hræðslu. Ég lagðist á f jóra fætur, skreið frá staðnum eins og sneyptur rakki. Ég skalf eins og lauf í vindi, en ég reis á fætur og skjögraði í átt til vegarins. Það komst aðeins að hjá mér ein hugs- un: EKKI HVER SENDI MIG, STULKA MlN, HELDUR HVER SENDI MÉR ÞIG? SEGÐU MÉR ÞAÐ. HVER SENDIÞIG? Úr skemmtana- iðnaðinum — Uff, sagði Bob Hope og sökk niður í stól. Það eru bara allir á eftir manni. Mér finnst ég vera eins og saumnál án heystakks. Kvikmyndastjaraan: Nei, ég ætla ekki að fleygja mér fram af 30 metra háum kletti! Gerið ykkur grein fyrir að áin er ekki nema hálfs metra djúp? Leikstjórinn: Já, auðvitað! Heldurðu aö við ætlum að drekkja þér, eða hvað? Fræg kvikmyndastjarna var á gangi með blaðafulltrúanum sín- um. Þá kom bíll og ók yfir stjörnuna. — Kallið á blaðamenn, ljós- myndara. .. og sjúkrabíl, takk, hrópaði blaðafulltrúinn! Herra og frú Nýrík vom í bæn- um. Þau fóm að sjálfsögðu í leik- húsið. — Hvað er verið að sýna í kvöld? spurðu þau konuna í miða- sölunni. — Rómeó og Júlíu, svar- aði konan. — Nei, sko, bara tvö leikrit, ha! Prímadonnan var alveg ævareið þegar tjaldið var fallið á frum- sýningunni. — Ég fékk ekki nema fjóra blómvendi, sagði hún sárgröm. — Nú, sagöi leikstjórinn, það er núekkisemverst! — Ekki sem verst? Ég pantaði fimm! — Hér stendur að leikari verði að læra 15.000 orð að meðaltali þegar hann lærir nýtt hlutverk! — Huh, það er nú ekki mikið. Og kann hann þau ekki flest fyrir? Einn úr Fljótunum var á ferð og ætlaði í leikhús. — Einnmiða.takk, sagðihann. — A svölunum eða í salnum? — Ja, hvað er verið að sýna á svölunum? — Jæja, leikhússtjóri, hér er ég nú með leikritið allt umskrifað. eins og við höfðum talað um. — Já, og ég ætla að vona að þetta sé ekkert sóðalegt lengur, hreint og klárt og enginn sori, ha? — Nei, ætli þaö sé nokkur hætta. Fyrstu þrír þættimir ger- ast íbaðkeri! — Segðu mér eitt, hvemig ferðu að því að liggja svona lengi kyrr, eftir að þú ert skotinn í fyrsta þætti? — Ekkert mál. Ég er að spila damm við hvíslarann! 22 Vlkan f. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.