Vikan - 31.01.1985, Page 58
Sophia Loren
Hrátt nautabuff í hverri viku er
nauðsynlegt og í það set ég hráar
eggjarauður og mikið af hráum
lauk, segir Sophia Loren. Þetta
heldur mér frískri og heilbrigöri,
á því er enginn vafi.
Hrátt kjöt og eggjarauður eru
nauðsynlegar til að heilasellumar
endumýist. Slík fæða eykur einnig
úthald í kynlífi og er hressandi á
allan hátt. Ef ég á að gefa eitt-
hvert eitt ráð þá ráðlegg ég fólki
að borða minna af steiktum og
soönum mat. Ferskur, náttúrleg-
ur matur er miklu hollari.
Victoria Princiþal
Það sem skiptir mig mestu
máli er hárið. Ég legg mikla
áherslu á að hirða það vel því mér
finnst glampandi hár það falleg-
asta sem ég veit.
Ég þvæ hárið eftir gömlum
aðferðum sem amma mín kenndi
mér. Fyrst skola ég það vel og
síöan nudda ég tveimur eggja-
rauðum í hárið. Þá bíð ég í tvær
mínútur og skola hárið síðan upp
úr volgu vatni. Næst helli ég 1
dl af eplaediki í 1 lítra af vaíni og
skola hárið upp úr því. Hókus,
pókus og hárið er aldrei fallegra!
HVERNIG VIÐHALDA
ÞÆR FEGURÐINNI?
Raquel
Welsh
Ég drekk mikið af vatni til að
viðhalda fegurð og góðri heilsu.
Með því að drekka vatn held ég
líka aukakílóunum í hæfilegri
fjarlægð. Ég drekk að minnsta
kosti tvo lítra af vatni á dag.
Ég byrja daginn ávallt á því að
fá mér eitt vatnsglas og út í það
set ég 1 teskeið af eplaediki. Þá
kemst maginn í gang. Ég gæti
þess líka alltaf að sofa átta tíma á
nóttu. Ég sef með lítinn kodda,
það er eitt af fegurðarleyndarmál-
ummínum.
Claudia
Cardinale
Fallegar hvítar tennur er það
sem mér finnst fallegast við útlit
kvenna. Ég eyði því miklum tíma í
að hirðatennurnar vel.
Ég nota mikið tannþráð og tann-
stöngla og hreinsa tennumar eftir
hverja máltíð. Síðan nota ég litla
leyndarmálið mitt sem er salt! Ég
geymi salt í Utlu íláti á baðher-
berginu og kvölds og morgna dýfi
ég blautum tannburstanum í salt-
ið og bursta yfir tennumar. Ég hef
gert þetta í mörg ár og held tönn-
unum þannig hvítum og hreinum.
Liz Taylor
Maður þarf aö leggja mikið upp
úr litavali, bæði á fötum og snyrti-
vörum. Það er erfitt að vera
fallegur í æpandi skræpóttum föt-
um. Þess vegna vel ég yfirleitt
einlit föt í hreinum litum. Ég nota
alltaf minna og minna af snyrti-
vörum með hverju ári en ég lita
hárið af því að það gerir mig ung-
legri.
58 Vikan 5. tbl.