Vikan - 04.12.1985, Page 26
I
.
Woody Allen er orðinn fimmtugur
Leikarinn og leikstjórinn
Woody Allen verður fimm-
tugur þann 1. desember en
þann dag varö ísland frjálst
og fullvalda ríki árið 1918.
En snúum okkur að mynd-
unum hans Woody Allen. Þær
þykja sérlega fyndnar og
margir hafa hlegið svo dátt
að sést hefur í holufyllingarn-
ar og jafnvel úfinn.
Myndir eftir Woody Allen
eru til dæmis: Gerðu það aft-
ur, Sammi, Bananas (1971),
Annie Hall (1977) og Man-
hattan (1979).
Og það eru fleiri gleðimenn
sem eiga afmæli þann 1. des-
ember, til dæmis Sigurður
Guðmundur blaðamaður sem
fæddist árið 1950. Eggert
Ölafsson skáld fæddist í
Svefneyjum á Breiðafirði 1.
desember 1726. Hann drukkn-
aði á Breiðafirði 30. maí 1768,
skömmu eftir að hann ýtti frá
kaldri Skor. Aöalsteinn Berg-
dal leikari er fæddur 1. des-
ember 1949. Þráinn Bertels-
son leikstjóri er fæddur 30.
nóvember 1944. Daníel
Hansen kennari, Reykholti í
Biskupstungum, er fæddur
30. nóvember 1955 og verður
því þrítugur á laugardaginn.
Ari Trausti Guðmundsson
jarðfræðingur er fæddur 3.
desember 1948. Guðríður K.
Magnúsdóttir kennari er
fædd 3. desember 1953. Lud-
vig Holberg leikritaskáld var
fæddur 3. desember 1684.
Haukur Þórðarson, yfirlækn-
ir á Reykjalundi, er fæddur 3.
desember 1928.
lagið að afla fjár og einhvern tíma
á ævinni fellur því óvænt happ í
skaut, ef til vill tæmist því ríflegur
arfur. Erfiöisvinna vex þessu fólki
ekkert í augum en hreinleg inni-
vinna bíður þó flestra sem fæddir
eru þennan dag.
Ástalíf
Engin hætta er á að fólk dagsins
dragi úr hömlu að svipast um eftir
lífsförunaut og eins víst að þaö
eigi fleiri en eitt samband að baki
áður en til hjónabands kemur,
jafnvel sambúð. Það verður eng-
inn svikinn sem eignast barn
dagsins fyrir maka, það er ástríkt
og sýnir bæði þolinmæði og skiln-
ing í sambúð.
Heilsufar
Þetta tápmikla fólk er hraust
enda stundar það venjulega ein-
hverjar íþróttir og heldur líkam-
anum í góðri þjálfun. Það ætti þó
aö huga að lungunum og gæta þess
aö ganga ekki fram af sér við
vinnu.
28.
NÓVEMBER
Skapgerð
Þeir sem fæddir eru þennan dag
eru yfirleitt ekkert að tvínóna við
hlutina heldur ganga beint til
verks og drífa af það sem fyrir
liggur. Þetta er geðgott fólk,
kjarkmikið, kappsamt og hefur
hlotið ríflegan skerf af heilbrigðri
skynsemi í vöggugjöf. Það hefur
skarpa greind og vegna dugnaðar-
ins er fátítt að því nýtist ekki hæfi-
leikarnir. I eðli sínu eru börn
dagsins félagslynd en eiga það til
aö vera fráhrindandi í marg-
menni.
Lífsstarf
Barn dagsins kann því ekki
nema miðlungi vel að láta segja
sér fyrir verkum en er fremur til
þess fallið að vera sjálfs sín hús-
bóndi. Það hefur unun af aö takast
á við viðamikil verkefni og njóta
ávaxtanna af erfiði sínu. Því er
29.
NÓVEMBER
Skapgerð
Afmælisbarn dagsins hefur
2<> Vikan 48. tbl.