Vikan


Vikan - 04.12.1985, Blaðsíða 64

Vikan - 04.12.1985, Blaðsíða 64
„Hann er ruddalegur ríkur lögfræðingur sem af tilviljun veit rétt nóg um olíuiðnaðinn til að hafa lagt fram væna fjárupphæð í Repúblikanaflokkinn og fengið þessa stöðu í staðinn! Ef hann væri ekki sendiherra Bandaríkj- anna settist ég ekki til borðs með honum. Þú heimsækir hann ekki eða konu hans!” , ,Ég fer víst og hitti vini mína, Abdí’ ’ ,,Ég get ekki leyft þér að umgangast sendiráðsfólk, láta bjóða þér í hamborgara þar sem þú verður yfirheyrð af þessum CIA-útsendarahundi sem á að heita menningarfulltrúi. Við vitum að þú sérð hvorki né heyrir neitt sem skiptir hernaðarlegu máli en það vita þeir ekki! Og það sáu allir að þetta bandaríska svín —faðmaði þig!” Lilí áttaði sig allt í einu á því sem Abdúllah var að segja í bræði sinni. ,,Attu við að þú látir fylgjast með mér. Treystir þú mérekki, Abdúllah?” Abdúllah sneri sér undan, krosslagði handleggina og starði á appelsínutrén fyrir utan boga- dregna gluggana. ,,Þú verður að skilja í hvaða aðstöðu ég er! Ráð- gjafar mínir hafa megnustu óbeit á því að ég skuli — leggja lag mitt við — Vesturlandabúa og þeir geta ekki leyft sér að treysta þér!” Lilí sendi honum þöglan reiðisvip, snerist á hæli, stormaði út úr skrifstofunni og gegnum hópinn sem beið fyrir utan fullur fyrirlitningar. Hún hafði áður verið niðurlægð svona! Allt í einu flaug það gegnum huga hennar hvað hún væri að gera í þessum sandkassa ef hún mátti ekki einu sinni kíkja inn í sendi- ráð Bandaríkjanna og hitta gamla kunningja. Um kvöldið var Lilí orðin rólegri og hlustaði á Abdúllah úthúða stefnu Bandaríkjastjórnar varðandi Israel. Um kvöldið, þegar þau gengu berfætt í fjör- unni, sagði hún allt í einu: ,,Hvað á þetta tilgangslausa stríð að standa lengi yfír? Greinilega til eilífðar. Af hverju geta arabar ekki sæst við ísraelsmenn ? ’ ’ Abdúllah sneri sér snöggt að henni og greip um úlnliðinn á henni: ,,Ég segi þér í síðasta sinn, kona, hvers vegna það er stríð í Palestínu. Árið 1917 ákváðu hinir heiðnu Bretar að það væri góð hugmynd að gera Palesrínu að heimalandi gyð- inga.” Hann hnussaði. ,,En þeir virtust engan veginn gera sér Ijóst að níutíu og þrír af hundr- aði íbúa Palestínu voru ýmist kristnir eða múhameðstrúar.” Andlitið á honum var þungbúið af reiði þegar hann tók utan um axlirnar á henni og hristi hana harkalega. ,,Því urðu þessir arabar heimilislausir, kastað burt af sínum eigin heimilum, úr sínu eigin landi, einungis t þágu sjö af hundraði þjóðarinnar og fjöl- margra annarra gyðinga sem höfðu aldrei séð Palestínu, hvað þá búið þar.” Skyndilega sá Abdúllah Lilí aðeins sem Vesturlandabúa, sem óvin. Hann vildi ráða yfir henni og eiga hana. Hann hafði lengi neitað að viðurkenna það fyrir sjálfum sér að hann hafði orðið blindur af ást á evrópskri konu. Abdúllah leit aðeins á það sem veikleika og bresti í sjálfsvörn sinni. Hann óttaðist heitar og einlægar tilfinningar sínar. Hann var hræddur við að elska aðra mannveru eins innilega og hann hafði elskað litla son sinn. Hann óttaðist að ef hann elskaði ein- hvern aftur þá myndi hann einn- ig glata þeirri ást. Þessar blendnu tilfinningar gerðu honum gramt í geði og hann hristi Lilí aftur. Lilí leit hvasst á hann, dökkar útlínur vanga hennar bar við blóðrautt hafið. Hún hrasaði, fann að hann ýtti henni harka- lega niður í grunnt, volgt vatnið í fjöruborðinu. Hún fann hvernig hann þrýsti sér að henni í sandinum og þreifaði undir vota skikkjuna sem hún var í, rýtti og boraði sér inn í hana — harkalegur, ruddalegur, þungur, karldýrslegur án votts af blíðu. Á eftir settist Lilí upp, renn- blaut og útötuð í fjörusandi, og úthúðaði Abdúllah sem hafði klætt sig úr skikkjunni og ætlaði að fara að stinga sér í sjóinn. Þetta var einum of mikið! Einum of líkt þessum heimskulegu kvikmyndum sem hún hafði leikið í — og jafnauðmýkjandi. Allt í einu var Lilí búin að fá nóg af því að vera af röngum kyn- þætti, röngum trúflokki og röngum megin víglínunnar. ,,Þetta gengur aldrei, er það?” hrópaði hún. ,,Það er sífellt verið að núa mér því um nasir að ég sé þér ekki samboðin, Abdí, en gerir þú þér grein fyrir aðalástæðunni fyrir því hvers vegna þú ert mér ekki samboð- inn ? ’ ’ Hún barði hnúunum niður ! sandinn. ,,Það skiptir engu máli hve ástríðufull við erum líkam- lega I rúminu, þú getur ekki gefið mér ást þína óskipta.” Röddin í henni titraði. ,,Við vitum það bæði að þú getur það ekki stöðu þinnar vegna — en ég er ekki viss um að það sé eina ástæðan.” Hún dró djúpt and- ann. ,,Málið er það, Abdí, að þú getur ekki treyst neinum — ekki einu sinni mér — og þú getur ekki elskað neina konu ef þú treystir henni ekki.’’ Það varð þögn. ,,Það er erfitt að treysta fólki,” sagði hann og röddin var valdsmannsleg og fýluleg, „þegar maður veit að það er sama hvernig maður rækir starf sitt, það eru alltaf einhverjir tilbúnir til þess að drepa mann bara vegna þess að maður gegnir þessu starfi.” ,,Eg hefði getað drepið þig þúsund sinnum ef ég hefði ætlað mér það!” æpti Lilí og strauk votan hárlokk framan úr sér. ,,Þú vilt ekki gefa rnér hlut- deild í dýrmætum hluta af sjálfum þér og mér finnst það óbærilega sárt og auðmýkjandi. ’ ’ Röddin hljóðnaði en síðan magnaðist hún aftur. ,,Ég skammast mín fyrir þennan hluta af þér — þennan sem býður þér að afneita mér. Ég fyrirverð mig vegna þess að ég er ekki nógu góð fyrir þig af ástæðum sem eru ekki mín sök. Það særir mig og ergir að þú skulir af ásettu ráði halda aftur af ást þinni á mér.” ,,Það er ekki út af mér sem þú ert svona reið og sár,” svaraði Abdúllah. Hann dró Lilí harka- lega á fætur og skipti kænlega um umræðuefni eins og karl- menn gera svo oft þegar konur komast nálægt sannleikanum. ,,Þú ert svo reið og sár, Lilí, vegna þess, eins og þú hefur oft- sinnis sagt mér, að þú veist ekki hver þú ert og þú vilt að ástin geri líf þitt einhvers virði, gefi því eitthvert gildi.” Hún sá glettnislega fyrirlitn- ingu I augunum á honum eins og hann væri að hlusta á óþekktarkast í krakka. ,,Það er rétt,” sagði Lilí, ,,ég var það.” Hún var hissa á sjálfri sér að nota þátíð. Abdúllah var ergilegur. ,,Þið Vesturlandabúar eruð alltaf að leita að sjálfum ykkur, vitið aldrei hver þið eruð í raun og veru. Ef þig langar í alvöru að komast að því, af hverju reynir þú þá ekki að komast að því í stað þess að vera alltaf að tala um það?” ,,Allt í lagi,” sagði Lilí. ,,Ég skal gera það.” Hún dró úln- liðina úr greipum hans og hljóp burtu frá honum, eftir hvít- bryddaðri fjörunni við dökknandi hafið. ELLEFTI HLUTI — 58 — Um leið og fjölmiðlarnir fregnuðu að Lilí væri komin til Parísar sátu fréttamenn um íbúð hennar. Þeir hertóku bygging- una á móti svefnherbergis- glugganum hennar og komu fyrir aðdráttarlinsum I hverjum glugga og síminn var aldrei I sambandi. Þetta var umsáturs- ástand og enn einu sinni mátti Lilí berjast við vanlíðan og auðmýkingu. En í þetta sinn fann hún einnig til reiði og van- þóknunar. ,,Ég veit að ég gerði það eina rétta,” sagði hún við Zimmer þegar þau sátu fyrir framan arin- inn. . . Ég gerði mér allt í einu ljóst að fólkið fjandskapaðist við mig og ég varð að slíta samband- inu við Abdúllah. Því lengur sem ég hefði verið þarna því sárara hefði það orðið.” Hún kastaði aftur höfðinu og sagði: ,,Mér fannst að í fyrsta skipti á ævinni réði ég ferðinni í lífi mínu. Ö, Zimmer, þú trúir ekki hvað ég var örvæntingarfull, hve mér leið hræðilega illa — og líður enn yfir að þurfa að lifa án Abdúllah. Mér finnst eins og partur af mér hafi verið slitinn af og ég sver að ég finn stundum til líkamlegs sársauka. ,,Hún þrýsti hendinni að brjósti sér og þagn- aði stundarkorn. ,,En það ein- kennilega er að ég hef ekki séð eftir því eitt andartak. Ég er stolt 64 Vikan 48* tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.