Vikan - 04.12.1985, Blaðsíða 29
Nú styttist óöum í jólin, nóv-
ember senn liðinn og þá tekur
við jólamánuðirinn, desember.
Margir krakkar fá þá jóladagatal
með myndum fyrir hvern dag eða
súkkulaðimola fyrir hvern dag.
En hér höfum við öðruvísi dagatal,
heila kommóðu með 24 skúffum.
I þeim leynist ýmislegt skemmti-
legt. Kommóðan er þúin til úr 24
eldspýtustokkum sem eru límdir
saman með túpulími. Framhlið-
arnar á skúffunum eru litaðar
með tússlitum og merktar frá 1
upp í 24. Litaður pappír er sniðinn
og límdur á hliðarnar og ofan á
kommóðuna. Nú þarf að skreyta
kommóðuna og hérna höfum við
jólasvein og lítinn strák úr pípu-
hreinsurum. (I 39. tbl. Vikunnar
er kennt að útbúa dúkkur úr pípu-
hreinsurum.) Það má líka líma
jólasveinaglansmyndir á hliðarn-
ar. Nú er kommóðan tilbúin en þá
vantar að fylla skúffurnar og þar
liggur mesti vandinn, nefnilega að
finna nógu litla hluti. Þá er best
að hafa með sér einn eldspýtu-
stokk og máta í hann. Og verið
ekkert feimin við að mæta með
stokkinn í verslanir og máta, um-
sjónarmaður þáttarins hefur gert
þetta undanfarin jól með ágætum
árangri. Litlu hlutirnir þurfa ekki
að vera svo dýrir og geta einmitt
verið eitthvað sem krakkana vant-
ar, til dæmis strokleður, yddari,
spennur í hárið og þess háttar.
Við höfum líka aðra tegund af
jóladagatali. Hér eru pínulitlir
pakkar, einn fyrir hvern dag en
ómerktir. Þetta dagatal gætu
krakkar til dæmis útbúið handa
gamla fólkinu, ömmu og afa eöa
langömmu og langafa. Inni í pökk-
unum getur þá verið einhver smá-
hlutur sem krakkarnir hafa búið
til og í sumum sælgæti eða smá-
kökur. Litlu pakkarnir eru settir í
skál eða körfu og síðan valið úr
þeim á hverjum degi. Nú er stutt í
desember og því er hægt að gera
nokkra pakka strax og bæta síðan
í körfuna eftir þörfum.
48. tbl. Vikan 29