Vikan - 04.12.1985, Blaðsíða 52
búið Byggt & búið Byggt&búið Byggt&búið Byggt&búið Byggt&búið E
Verslunin Epal gekkst nýlega fyrir húsgagnasýningu þar sem sýnd voru
húsgögn eftir ýmsa þekktustu arkitekta og hönnuði Dana. Á sýningunni
mátti sjá ýmsar nýjungar auk sígildra hluta i nýjum búningi. Þessi stóll hins
þekkta hönnuðar Arne Jacobsens, sem reyndar var sagt frá hér á siðunni
ekki alls fyrir löngu, er til i fimm útgáfum auk þess sem hægt er að fá stól-
ana með þrenns konar bólstrun, úr leðri eða ull. Útgáfurnar fimm eru auk
stólsins á myndinni: stóll með örmum, á hjólum, á hjólum með örmum
(báðir stillanlegir á hæðina) og stóll á einum fæti sem hægt er að skrúfa
fastan í gólf. Þá er hægt að fá ýmiss konar fylgihluti með stólunum sem
henta i fyrirlestra- og samkomusölum, eins og öskubakka, skrifborðsarm,
sætanúmer og flutningsgrind á hjólum til að flytja uppstaflaða stólabunka
á milli. Þrenns konar viðartegundir eru til á stól Arne Jacobsens, beyki, eik
og tekk, og eins er stóllinn fáanlegur í nokkrum lakklitum og bæsaður.
Verð á lakki og beyki er 3784 krónur.
Og allt
kemur
það aftur
Umsjón: Guðrún
Hver man ekki þegar farið var með gömlu,
útskornu antikhúsgögnin á haugana. Og
ástæðan — jú, tekkið var að komast í tísku. En
tekkið kom og tekkið fór — allt í einu voru hús-
gögn úr tekki bannvara hjá mörgum. Furan,
beykið og birkið litu dagsins Ijós og margir grétu
einnig gömlu antikstykkin og skelltu sér á forn-
sölu í leit að skáp eins og amma átti. Furan er að
verða bannvara hjá sumum — alls ekki öllum því
það eru ekki allir sem skipta reglulega út hjá
sér— og við erum farin að sjá matarborð með
stálfótum og kolla eins og þeir gerðust bestir við
matarborðið hér einu sinni. En látum myndirnar
á opnunni tala.
Haugesen-borðið er gripurinn
nefndur eftir hönnuði sínum, Niels
Jörgen Haugesen. Borðið, sem er
felliborð, er hentugt bæði sem
matar- og vinnuborð eða hvort
tveggja. Borðplatan sem og felli-
plöturnar eru spónlagðar með hlyni
(ahorn) en kantlistar eru hreinn
hlynur. Frá sýningu Epal. Verð
51965 krónur.
52 Vikan 48. tbl.