Vikan - 04.12.1985, Blaðsíða 46
Múskat-
kökur
1 bolli smjör, 2 bollar púðursykur, 2
egg, 3 bollar hveiti, 1 tsk. sóda-
duft, 1 tsk. gerduft, 1 1/2 tsk.
múskat, brytjað suðusúkkulaði.
Eggin eru þeytt. Sykur og smjör er
hrært Ijóst og létt, eggjunum bætt í
og hrært i um leið. Síðast er þurr-
efnunum blandað saman við. Látið
með teskeið á smurða plötu og
súkkulaðibita stungið í miðja kök-
una. Bakað við 220°C í um það bil
5 mínútur.
Bessastaða-
kökur
500 g sykur, 500 g hveiti, 500 g
smjör.
Smjörið er brætt við vægan hita —
það má alls ekki þrúnast — og látið
storkna yfir nótt. Vökvanum, sem
sígur af því, er hellt burt og storkn-
að smjörið, sykurinn og hveitið er
hnoðað, flatt á borði og litlar kökur
skornar út með glasi. Miðjan er
pensluð með eggjahvítu og blanda
af söxuðum möndlum og sykri er
sett á. Bakað í ofni í urn það bil 40
mínútur við 75—100°C. Kökurnar
eiga alls ekki að brúnast.
Vanillukransar
(Ca 100 stk.): 250 g hveiti, 200 g
smjör, 1 eggjarauða, 150 g sykur,
75 g hakkaðar möndlur, korn úr
1 /2 vanillustöng.
Smjörlíkið er mulið í hveitið. Eggja-
rauðum, sykri, möndlum og vanillu
er bætt í og allt hnoðað saman.
Látið bíða í ísskáp í að minnsta
kosti 1 klst. Deigið er hakkað í
gegnum stjörnumótið í hakkavél-
inni. Lengjan, sem kemur, er skor-
in í bita og búnir til hæfilega stórir
hringir. Þeir eru látnir á smurða
plötu og bakaðir við 200°C í um
það bil 8 mínútur.