Vikan - 04.12.1985, Qupperneq 63
Shirley Conran
ÞRÍTUGASTIOG
ÁTTUNDIHLUTI
Júdý vegnar vel í New York og rekur nú mikla kynn-
ingarstarfsemi. Kata reynir ítrekað að eignast barn en
missir ýmist fóstur eða börnin fæðast andvana. Ovæntir
erfíðleikar koma upp í hjónabandi hennar. Hún skilur við
eiginmanninn og reynir fyrir sér sem blaðamaður með
góðum árangri.
A meðan fer stjarna Lilíar hækkandi. Hún fær hlut-
verk í góðri kvikmynd en Serge heldur áfram að kúga
hana. Kata tekur viðtal við Lilí en gegn vilja þeirra beggja
verður úr því hið mesta bull og Lilí sárnar mjög við Kötu.
Júdý verður loks ástfangin. Sá útvaldi er vellauðugur
útgefandi sem gerir henni ljóst að hann muni aldrei
skilja við konuna sína.
Og síðan hafði hún varpað
öllu þessu fyrir róða vegna ástar-
innar.
Hún vissi að Zimmer hafði á
réttu að standa. Hún gat ekki
fleygt frá sér frama sínum eða
velgengninni sem hún hafði bar-
ist svo fyrir. Þetta hóflausa líf í
ást og allsnægtum gat ekki
haldið áfram endalaust og Lilí
var heldur ekki viss um að hún
kærði sig um það. Arabískar
konur gátu ekki skilið Lilí, þær
fyrirlitu hana jafnmikið og þær
öfunduðu hana. Karlmennirnir
héldu konunum frá Lilí sem var
með hættulegar hugmyndir um
frelsið. Staður konunnar var hjá
öðrum konum, í kvennabúrinu.
Karlmennirnir sáu líka sóma sinn
í að halda sig í öruggri fjarlægð
frá Lilí. Þeir vildu ekki að
kóngurinn fengi neina ástæðu til
að misskilja saklaus orðaskipti
við hana. Fáir töluðu auk þess
góða frönsku eða ensku.
Abdúllah var önnum kafinn all-
an daginn við opinber störf. Lilí
vissi aldrei hvenær hún sæi hann
næst og þó að það væri gaman
hjá henni á kvöidin var hún
mjög einmana á daginn. Hana
klæjaði af löngun til að fara aftur
að vinna, að lifa sínu eigin lífl í
stað þessa ljúfa en takmarkaða
lífs sem hjákona konungsins.
Abdúllah hafði þó ekki að
neinu leyti glatað töfrum sínum í
augum Lilíar. Stundum tók
hann um hökuna á henni og
horfði í augun á henni. Síðan
fylgdi hann augabrúnunum,
enninu og nefinu á henni með
einum fingri eins og hann hefði í
hyggju að steypa andlitið í mót
eða greypa það í minningu sína.
Þegar hann gerði þetta brosti
hann mildu brosi sem sýndi
sömu óendanlegu blíðuna og
hún minntist frá því að hún
horfði fyrst í augu hans. Þá
vissi Lilí fyrir víst að hann elskaði
hana. En stundum, þegar hann
var með hugann við einhver
stjórnmál, kom hann fram við
hana eins og hún væri þreytandi
hvolpur sem færi í taugarnar á
honum.
Hann hafði aldrei talað við
hana um konu sína eða barn. Lilí
gerði sér grein fyrir hve missir
hans hafði verið óttalegur, hve
þetta kvaldi hann enn hræðilega
og hve tilhugsunin um harmleik-
inn var honum óbærileg og mik-
ið einkamál. Þess vegna þorði
hún aldrei að minnast á þetta við
hann. En hún vissi að það var
óhugsandi að Abdúllah giftist
henni nokkurn tíma. Hún var
annarrar trúar. Það var skylda
hans við þjóð sína að velja sér
drottningu með hreint blóð í
æðum, drottningu sem gæti fært
honum lögmætan erfingja að
krúnunni.
Það sárasta var að Lilí þráði að
fæða honum son, hana langaði
til að fínna barn hans hreyfa sig
inni í sér, fínna það sparka, taka
hendi Abdúllah stolt og leggja
hana á útblásinn kviðinn, sjá
brjóstin verða stór og þung,
tilbúin fyrir barnið hans að
sjúga. Lilí þráði festu í lífí sínu
meira en nokkru sinni áður og
allt þetta sem aðrar konur virtust
fá fyrirhafnarlaust, að stofna
heimili, gifta sig og eignast barn
sem hún gæti ausið í allri þeirri
ást sem bjó í brjósti hennar og
fékk ekki útrás.
Það var önnur ástæða fyrir því
að Lilí gat ekki gifst Abdúllah. I
þessu landi, þar sem stúlka gat
átt á hættu að faðir hennar skæri
hana á háls ef grunur lék á að
hún hefði verið ein með karl-
manni, var Lilí talin viðhald kon-
ungsins og hún fann votta fyrir
kurteislegri fyrirlitningu hirðar-
innar. Hún var hórkona kon-
ungsins.
Það var enn ein ástæða til
fyrir því að Abdúllah gat ekki
deilt lífí sínu með henni. Sú
ástæða var reyndar óumdeilanleg
sönnun þess að hann elskaði
hana. Hún var Vesturlandabúi
og þar með óvinur.
Vikuna áður, þegar arabískir
skæruliðar höfðu gert árás á Tel
Aviv, hafði Abdúllah verið hinn
önugasti og aldrei þóst geta gefíð
sér tíma til að taka á móti banda-
ríska sendiherranum í áríðandi
erindagjörðum.
Eftir morgunverð, þegar Lilí
var á leið út í hesthúsin, heyrði
hún kallað á sig. Hún sneri sér
við og sá brosandi andlit sem
hún þekkti. ,,Nei, Bill Sheridan,
en dásamlegt að hitta þig aftur!
ErLinda með þér?” kallaði hún.
Hávaxinn lögfræðingurinn
frá Texas steig út úr glæsivagnin-
um, lagði hramminn yfír Lilí og
faðmaði hana að sér. Hún kyssti
gamla manninn hlýlega á kinn-
ina. „Auðvitað er Linda með
mér. Hún er rétt að venjast til-
hugsuninni um að vera sendi-
herrafrú og er að breyta öllu sem
hægt er í sendiráðsbústaðnum.
Við heyrðum að þú værir hér en
ég átti ekki von á að hitta þig
svona fljótt. Hvenær getur þú
komið í heimsókn? Manstu eftir
grillveislunum sem Linda hélt
þarna við Monsieurgötu? Það er
ekkert miðað við það sem hún
ætlar að gera hér í Sydon. Fólkið
hér á eftir að kynnast ósvikinni
Texas-gestrisni!”
Hann þrýsti höndina á henni.
,,En þú þarft ekki að bíða þar til
búið er að teppaleggja! Ég er viss
um að það eru liðnir margir
mánuðir síðan þú hefur bragðað
góða steik með öllu tilheyrandi!
Ég hef látið senda mér kjöt hing-
að með flugi frá búgarðinum.
Hvenær á ég að senda bíl eftir
þér, vænan?”
Lilí varð hugsi. Abúllah
þurfti að fara til Suður-Sydon og
yrði í burtu í það minnsta þrjá
daga. „Hvernig væri næsta
fimmtudag?”
,,Fínt, fínt! Um sex? Við
hlökkum sannarlega til þess. Nú
er eins gott fyrir mig að koma
mér inn með stresstöskuna.”
Hann kinkaði kolli í áttina að
aðalinngangi hallarinnar og gekk
af stað.
Þegar Lilí kom aftur úr út-
reiðartúrnum beið hvítklæddur
þjónn eftir henni. Hann hneigði
sig en sagði síðan hásri röddu:
„Konungurinn vill hitta ung-
frúna strax.”
Lilí flýtti sér inn í höllina,
fram hjá hvítklæddum hirð-
mönnum sem biðu fyrir utan
ríkisráðsskrifstofu Abdúllah. Þeir
litu á hana með fýlulegum fyrir-
litningarsvip. Hvað ætli ég hafí
nú gert af mér? hugsaði Lilí.
Abdúllah gekk fram og aftur
á skrifstofunni eins og brjálað
tígrisdýrí búri.
,,Er það rétt sem ég heyri að
þú sér að leggja lag þitt við nýja
bandaríska sendiherrann ? ’ ’
,,Bill Sheridan er gamall
vinur minn. Ég hef þekkt hann
og konuna hans í mörg ár! ’ ’
48. tbl. Vikan 63