Vikan


Vikan - 04.09.1986, Page 7

Vikan - 04.09.1986, Page 7
vel af áður en þær eru slegnar af. Þá blæðir betur úr þeim. Til að byrja með voru notaðar venjulegar kindabyssur til að aflífa dýrin en seinna komu byssur með hnalli og eins loft- byssur. Fyrst skutum við skepnurnar bara á gólfinu og skárum þær þar en seinna komu talíur til sögunnar. Eftir að svínunum hafði blætt út voru þau sett í kar með 62 gráða heitu vatni og síðan var skrokkurinn skafinn með hníf. Nautgripirnir voru flegnir með höndunum og miklu skipti að gera það rétt til að skemma hvorki húðina né kjötið. Þá var kjötið hengt upp og tekið í fjóra parta.“ Þetta er það starf sem fylgir slátruninni og að sögn Sigurbjörns er sami gangur á því og áður. Tækninni hefur hins vegar fleygt fram þannig að nú nota menn rafmagnshnífa við fláninguna og í körunum er sjálfvirkur búnaður sem skefur svinaskrokkana. „Þetta var erfið vinna hér áður fyrr en er það ekki lengur," segir Sigurbjörn. „Áður þurfti að vinna allt í höndunum en þessi nýja tækni hefur skilað sér í léttari vinnu og betra kjöti. Menn fara líka betur með gripina. Þeir ganga ekki úr holdum og safna því ekki á sig óeðlilegri fitu. Nú er sjaldgæft að fá grip sem ekki er góður.“ Að slátrun lokinni getur kjötið hangið í kæli þetta 10 til 12 daga án þess að á því sjái en þá er úr því unnið og þess neytt eða það fryst. Þegar hús Sláturfélagsins milli Skúlagötu og Lindargötu brunnu fyrir nokkrum árum var hætt að slátra í Reykjavík. Þarna er nú mót- taka, geymsla, kjötvinnsla og pökkun. Slátrun fer fram allt árið í sláturhúsinu á Selfossi, þar sem flestar myndirnar hér á síðunni eru tekn- ar, og í smáum stíl á Hvolsvelli, Kirkjubæjar- klaustri og í Vík. Stundum hefur því verið haldið fram að dýr finni á sér þegar hætta vofir yfir þeim, til að mynda þegar þau eru leidd til slátrunar. Sigur- björn segir erfitt að segja örugglega til um þetta en kveður nautin oft sérstaklega erfið viður- eignar. „Við höfðum stundum hauspoka á þeim. Annars man ég eftir því óþurrkasumarið 1955 að ég var sendur austur á Hellu þar sem við slátruðum holdanautum frá Gunnarsholti. Tveir menn á hestum höfðu rekið þau í mikilli rigningu niður eftir og veðrið var svo vont að ákveðið var að þeir svæfu á Hellu yfir nóttina. Við létum hestana þeirra inn og gáfum öðrum vatn í fötu sem hefur líklega ekki verið nógu hrein því hesturinn tók voðalegan kipp. Hann hefur þá fundið blóðfykt af vatninu." Við sláum botn í spjallið og þessi góðfúsi maður, sem gerði slátrun að ævistarfi, hefur afsannað allar ýktar hugmyndir um slátrara. Ég spyr hann samt að síðustu hvort þetta sé ekki að einhverju leyti óviðkunnanlegt starf. „Mér fannst verst með folöldin. Þetta voru ekki nema fimm til sex mánaða grey og mjög spræk þegar maður þurfti að slá þau af. En þegar maður byrjar að vinna við þetta , verður þetta eins og hver önnur vinna.“ | 36. TBL VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.