Vikan


Vikan - 04.09.1986, Page 14

Vikan - 04.09.1986, Page 14
sem hann innbyrðir. Edison gerði sömu uppgötvun fyrir hundrað árum. Hugsunin er jafnvel skýrari en venjulega, líkaminn starfar vel, getur verið að orkan úr einu glasi af tómatsafa geri svona mikið? Nei, líkaminn hlýtur að ganga á forðabúrið. Mér sýnist skvap mitt enn á undanhaldi, ég er rjóður í framan og mér er heitt. Vinir mínir segjast sjá á mér mun, ég sé einhvem veginn öðmvísi í framan. Ég sofna sæll. Ennþá er mér sama um mat en ég get ekki varist tilhlökkun vegna þess sem koma skal, ég hlakka til að borða MAT. 67 kíló. Sjötti dagur: Kenningin stenst, matur er bara gamall Sjöundi dagur: Ég vakna slæptur, hef sofið í tíu tíma. Ég er með harðsperrur, sérstaklega í fót- unum, og beinverkimir em enn til staðar. Ég skreiðist í bað og hrein föt, svo byrjar veislan, banani og mjólk. Mjólkin er alveg ótrúlega bragðgóð og seðjandi og ég narta og japla á banananuni, lengi lengi. 15 mínútum síðar gerist það. Líkt því að óskýranleg orkusprenging gerist innan í mér, harðsperrumar og beinverkimir horfnir, athyglin á hundraði á ný, ég glað- vaknaður og líkaminn til í allt. Þvílík orka kemur úr einum banana og mjólkm'- glasi, þetta dugar mér í dag. Svo er ég saddur, ekki er nú maginn stór. Orku- sprengingin endurtók sig í hádeginu og Lagt á borð á kínverskum dúk. Maturinn er iburðarminni en umgjörðin. Fæðið hina tvo eiginlegu föstu- daga, vatn, salt og sitrónusafi. kækur, ég kemst allavega vel af án hans. Grænmetissúpa í hádeginu og líkaminn starfar eðlilega. Eitthvað er hjartsláttur- inn veikari en venjulega, fer mér hægt í dag. Já, kenning mín stenst, maðurinn þarf ekki allan þennan mat. Við erum alltaf kúkandi honum. Ég hef ekki losað mig við úrgang í fjóra daga, nýtingin hlýt- ur að vera þetta góð. Hugsunin er furðu- lega skýr, ég er í góðu andlegu jafhvægi, ekkert stress. Ég fæ alls kyns skrítnar hugmyndir og ímyndunaraflið hefur sjald- an verið eins virkt. Gaman ef þetta ástand héldist. Undir kvöld var farið að slá af mér, þreyta og syfja. Er forðabúrið að gefa sig? Beinverkimir, sem ég fékk á öðrum degi, koma aftur ásamt megnum hausverk. Þetta fer að verða búið. 66,5 kíló. ég hressari en nokkru sinni. Aldrei áður hef ég fúndið svo áþreifanlega fyrir nær- ingar- og orkugildi matarins. Mér líður alveg ljómandi vel, hreint frábærlega vel, bæði á líkama og sál. En mikið hlakka ég til ekki á morgun heldur hinn, kjúkl- ingaveisla hjá mömmu. Ég er aftur farinn að hugsa um mat, endumýja matarboð mín og skipulegg matseðilinn alla næstu viku. Bráðum fæ ég súkkulaði. Ég sofha bara nokkuð ánægður með sjálfan mig, þykist hafa staðist eldraun. 66 kíló. Áttundi dagur: Áfram er ég stálsleginn en á fullt í fangi með að innbyrða allan þennan mat. Fyrstu hörðu hægðimar í viku, svitinn er að minnka. Þvagið er enn súrt, ótrúleg óhreinindi hljóta að safhast innan á „rör- ið“. Ég þyki ennþá andfúll. Ég er saddur eftir morgunverðinn, saddur eftir hádegið, maginn tekur varla við öllu þessu. Ég sofha með þungan maga en líður annars ágætlega. Þá er þetta búið. Ég finn samt. greinilega að ég má hvorki horða hvað sem er né of mikið næstu daga. Ég hugsa mikið um normalbrauð með osti, pitsur og pöstur, fisk í ofhi, en er ekkert sérlega spenntur fyrir kjöti, finnst það á einhvem hátt ekki gimilegt, blóð og allt það. Mag- inn er ennþá nokkuð þungur, það hlýtm’ að lagast. Ég er alveg óendanlega feginn að þessu er lokið. Ég er samt ánægður að hafa gengið í gegnum föstu og staðist hana. Mér finnst ég líta betur út, er stál- sleginn og engir aukakvillar, svo sem syfja, slappleiki, höfuðverkur eða þreyta, mér líður bara ljómandi vel í alla staði. Vonandi bý ég að þessu um nokkurt skeið. P.S. Níundi dagur: Græðgin kemur upp. í kjúklingaveislu mömmu kunni ég mér ekki læti. Ég borð- aði of mikið og þvílík þyngd sem því fylgdi. Ég lagðist hreinlega út af og gat ekki meir, þreföld sú tilfinning sem maður fær oft eftir sunnudagssteikina. Maginn starf- ar ekki enn með fullum afköstum svo ég má vara mig. Næstu daga hélt ég mig ffá kjöti, borðaði hóflega af fiski og græn- meti og öllu öðm, fékk heilmikið út úr einu súkkulaðistykki, naut þess á allt annan og dýpri hátt en áður. Einnig át ég döðlur vegna meltingarinnar og smám saman hvarf steinninn úr maganum. ANDLEG OG LÍKAMLEG HREINSUN? Fastan var góð reynsla, ég er hressari á eftir, andlega og líkamlega, morgunsyfj- an er til dæmis mun minni og líkamlegt úthald meira. Ég fylgist líka betur með því sem ég læt ofan í mig og er ekki étandi í tíma og ótíma eins og áður. Ég borða þó áfram kjöt, annað stóð heldur ekki til. Ég þyngdist fljótt aftm’, er 68 til 69 kíló, sem sennilega er mín kjörþyngd. Fastan er engin megrunaraðferð, þó töluvert gangi á forðann, þar er fyrst og fremst um vökvatap að ræða. Ég er til í að trúa því að einhver hreins- un á líkamanum hafi átt sér stað, hvort sem hún er nauðsynleg eða ekki. Ég skrifa ekki undir það að fasta sé bábiljur einar. Já, ég er ekki ffá því að fasta sé holl. Á mér varð þó alls ekki nein gjörbylting, muninn fann ég best á meðan á þessu stóð. Fastan var þolraun fyrir mig og góð reynsla en alls ekkert æði ef einhverjum dettur það í hug. Það er ekki mögulegt að miðla þeÚTÍ reynslu, til þess er hún of sérstök og tilfinningin sem henni fylgir ólík öllu sem ég hef reynt. Ég ætla mér að endurtaka hana einhvem tíma, en ekki í bráð. 14 VIKAN 36. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.