Vikan

Eksemplar

Vikan - 04.09.1986, Side 22

Vikan - 04.09.1986, Side 22
Umsjón: Hilmar Karlsson K A !\ Mynd vikunnar HRYÐJUVERKIBANDARÍKJUNUM UMSATRIÐ (UNDER SIEGE) Leikstjóri: Robert Young. Aðalleikarar: Peter Strauss, Hal Holbrook, Victoria Tennant og E.G. Marshall. Sýningartimi: 165 mín. (2 spólur). Eins og flestum er kunnugt hefur hryðjuverkastarfsemi hinna ýmsu öfgahópa nær eingöngu verið iðk- uð í Evrópu þótt hryðjuverkin hafi óbeint beinst að Bandaríkjamönn- um. Sjálf Bandaríkin hafa að mestu sloppið við hryðjuverk á heima- slóðum, en það gæti verið tíma- spursmál hvenær það breytist. Umsátrið byggist á ímyndaðri hryðjuverkastarfsemi i Bandaríkj- unum. Byrjunaratriði myndarinn- ar er eftirlíking af atburði í Beirút þegar herflutningabíll, fullur af sprengiefni, sprakk í bandarískri herstöð og varð fjölda hermanna að bana. Nú er sviðið aftur á móti herstöð í sjálfum Bandaríkjunum. Það kemur því til kasta FBI að rannsaka hverjir eiga sök á þessum verknaði. Peter Strauss, sem leikur yfirmann FBI, vill fara varlega í sakirnar og láta rannsaka málið. Aðrir innan ríkisstjórnarinnar og yfirmaður CIA vilja kenna Irönum um atburðinn og vilja tafarlaust ★ ★ ★ gera loftárás á landið. Staða yfir- manns FBI versnar eftir því sem hryðjuverkunum fjölgar og um tíma lítur út fyrir að hann hrökkl- ist frá og hinir stríðsglöðu fái yfirhöndina. Forsetinn er aftur á móti ekki sannfærður og þegar FBI kemst yfir þær upplýsingar að hryðju- verkahópurinn samanstandi af fólki frá mörgum þjóðum frestar hann árásaraðgerðum um tíma. Umsátrið er hin ágætasta skemmtun, pólitískur þriller sem á sínar raunsæju hliðar þótt á köfl- um sé söguþráðurinn í þynnra lagi. Peter Strauss fer einkar vel með hlutverk yfirmanns FBI og hefur maður á tilfinningunni að sá yfir- maður sé einum of manneskjulegur fyrir þetta starf. Fyrir þá sem hafa gaman af spennumyndum um póli- tískt efni er Umsátrið hin besta skemmtun. SWEET DREAMS ★ ★★ Leikstjóri: Karel Reis. Aðalhlutverk: Jessica Lange og Ed Harris. Sýningartími: 111 min. Sweet Dreams segir frá ferli og örlögum hinnar vinsælu sveitasöngkonu, Patsy Cline. Hún náði að verða ein allra vinsælasta söngkonan vest- anhafs áður en hún lést í flugslysi á hátindi ferils síns. Jessica Lange leikur söngkonuna á eftir- minnilegan máta. Lýsir hún vel skapgerð þessarar konu sem mátti allan sinn söngferil búa við afbrýðisemi hjá eiginmanni sínum sem braust út í því að hann hélt fram hjá henni og barði hana af minnsta tilefni. Það er Ed Harris sem leikur eiginmanninn og þrátt fyrir ágætan leik fellur hann í skuggann af stjörnuleik Lange. Það sem gerir myndina kannski enn áhrifa- meiri en ella er að notaðar eru upprunalegar upptökur með Patsy Cline og áhorfandinn er sér vel meðvitandi um áhrifamikla rödd söng- konunnar. Það er alveg ótrúlegt hversu vel Jessicu Lange tekst að herma eftir án þess að syngja. AMERICAN DREAMER ★ ★ ★ Leikstjóri: Rich Ros- enthal. Aðalhlutverk: Jobeth Williams, Tom Conti og Giancarlo Giannini. Sýningartimi: 105 min. í þessari makalausu gamanmynd leikur Jobeth Williams bandaríska húsmóður sem vinnur til verðlauna fyrir að senda bestan söguþráð um uppáhaldsskáldsögupersónu sína sem er leyni- lögreglukona. Verðlaunin eru ferð til Parísar þar sem hún mun fá tækifæri til að hitta höf- und skáldsagnanna. Hún er ekki fyrr komin til Parísar en hún lendir fyrir bíl og rotast. Þegar hún vaknar upp heldur hún að hún sé skáldsögupersónan. Það er ekki sökum að spyrja, hún setur allt á annan endann í tískuverslunum, hótelum og í raun alls staðar þar sem hún kemur. Hún hittir fyr- ir á hóteli einu ungan mann sem er sonur rithöfundarins og heldur hann aðstoðarmann sinn. Þau lenda saman í miklum ævintýrum áður en hún gerir sér grein fyrir að hún er aðeins venjuleg bandarísk húsmóðir. Jobeth Williams og Tom Conti fara á kostum í þessari ágætu gamanmynd sem þrátt fyrir gæðin hefur ekki verið sýnd í kvikmyndahúsum höfuðborgarinnar enn sem komið er. American Dreamer er mynd sem allir geta skemmt sér yfir. THESURE THING ★ ★ ★ Leikstjóri: Rob Reiner. Aöalhlutverk: John Cusack, Daphne Zunica og Viveca Lind- fors. Sýningartimi: 94 mín. The Sure Thing fjallar á gamansaman hátt um ungan námsmann sem dreymir um að komast úr kuldanum í New York til Kaliforníu þar sem hann er viss um að sín bíði draumadís. Hann ákveður að bregða sér í jólafríinu í heimsókn til kunningja síns í Kaliforníu. Ferðafélagi hans er ung stúlka sem hann hafði orðið hrif- inn af en hún hefur hingað til látið sem hann sé ekki til. Hún fer til Kaliforníu til að hitta unnusta sinn. Samskiptaerfiðleikar hrjá unglingana til að byrja með en það lagast nú allt á langri og viðburðaríkri ferð. Þegar til Kaliforníu kemur skilja leiðir þeirra til að byrja með en ferðin hefur haft þau áhrif á þau bæði að þeim gengur erfiðlega að komast í samband við vini og kunn- mgja... The Sure Thing er virkilega vel gerð og skemmtileg kvikmynd og eiga aðalleikararnir, John Cusack og Daphne Zunica, ekki svo lítinn þátt í því. 22 VIKAN 36. TBL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.