Vikan - 04.09.1986, Page 23
Þekktir leikarar
James
Garner
Eftir þrjátíu ára starf sem kvikmynda-
leikari í misjöfnum kvikmyndum og eftir
að hafa verið í vinsælum sjónvarpsflokk-
um er loksins farið að taka James Garner
alvarlega sem leikara. Hann hlaut í vor
sína fyrstu óskarstilnefningu fyrir leik
sinn í Murphy’s Romance. Hann átti þá
tilnefningu fyllilega skilið. í þeirri mynd
komu fram helstu kostir hans sem leik-
ara. Rólegum og yfirvegúðum tókst
honum á sinn sjarmerandi hátt að sýna
áhorfandanum þá innri baráttu sem hlut-
verkið krafðist.
James Garner fæddist 7. apríl 1928 í
Oklahoma. Móðir hans dó þegar hann
var fímm ára. Faðir hans giftist aftur og
á Garner ekkert nema bitrar minningar
um stjúpmóður sína. Hún gerði honum
allt til miska sem í hennar valdi stóð, lét
hann meira að segja klæðast kvenfötum
og kallaði hann Louise. Var hlegið að
honum í skóla og nágrenninu. Garner
segist aldrei hafa almennilega komist
yfír þessa reynslu og enn býr í honum
hræðsla við að hlegið sé að honum.
Breyting varð á lífi hans þegar hann
var kallaður í herinn og sendur í Kóreu-
styrjöldina sem þá geisaði. Hann vann
til tvennra heiðursverðlauna. Það var
svo strax eftir stríðið að hann lék í sinni
fyrstu kvikmynd, þá tuttugu og fimm ára
gamall. Var það í Toward the Unknown.
Þetta leiddi til að hann gerði samning
við Warner bræður og lék nokkur auka-
hlutverk, meðal annars við hlið Marlon
Brando í Sayonara. Fyrsta aðalhlutverk
hans var í Darby’s Rangers. Fékk hann
það eftir að Charlton Heston lenti upp á
kant við framleiðendurna og labbaði út.
Það var þó sjónvarpið sem gerði Garn-
.
er frægan. Hann fékk aðalhlutverkið í
nýrri vestraseríu sem hét Maverick. Lék
hann þar pókerspilandi töffara sem féll
vel í kramið hjá Bandaríkjamönnum.
Gagnrýnendur sögðu að loksins hefði
komið fram sjónvarpsstjarna sem gæti
sýnt áhorfendum hvernig á að vera töff.
Meðfram sjónvarpsleiknum lék hann í
ýmsum léttvægum kvikmyndum, má
nefna Cash McCall, Up Periscope og
Alias Jesse James.
James Garner, sem enn var samnings-
bundinn Warner, var á smánarlaunum
ef miðað er við frægð hans á þessum tíma.
Varð það til þess að hann tók þá ákvörð-
un að rifta samningnum. Það kostaði
hann meira en hann hafði þénað á þrem
árum fyrir hlutverk sitt sem Maverick
en það borgaði sig fyrir hann.
Hann var nú laus allra mála og gat
valið og hafnað. Hann lék í nokkrum vel
þekktum myndum, The Loudest Whis-
per, The Great Escape, Grand Prix og
svo eftirlætiskvikmynd hans frá þessum
árum, The Americanisation of Emily.
Honum bauðst aftur hlutverk í sjón-
varpsþáttum, nú fyrir margfalt meiri
laun en áður. Var það í The Rockford
Files. Lék hann í nokkur ár í þessum
vinsælu þáttum. Það er svo með litlu en
góðu hlutverki í Victor/Victoria sem
hann snýr sér aftur að kvikmyndum.
Kom hann mörgum á óvart með mjög
góðum leik í þeirri mynd. A eftir fylgdu
The Glitter Dome, Tank og sjónvarps-
myndin Heartsounds, en fyrir hlutverk
sitt í þeirri mynd fékk hann tilnefningu
til Golden Globe sjónvarpsverðlaun-
anna.
Það er því óhætt að segja að þrátt fyr-
ir brösóttan þrjátíu ára leikferil sé James
Garner á toppnum. Hann hefur nýlega
lokið við að leika í mikilli og dýrri sjón-
varpsseríu, Space, sem byggð er á
metsölubók James Michener. Hefur sú
sjónvarpssería þegar komið út á fimm
spólum frá Háskólabíói og verður fjallað
um hana í næsta blaði.
36. TBL VIKAN 23