Vikan

Útgáva

Vikan - 04.09.1986, Síða 39

Vikan - 04.09.1986, Síða 39
máttarkennd og þeirri tilfinningu að mönnum sé hafnað. Fælnina verða menn þó að taka föstum tökum. Snúðu vöm í sókn, hringdu sem oftast, í sem flesta! Þó er símafælnin oft á tíðum tengd óskemmtilegri reynslu manna af símtækinu. Hranaleg tilsvör draga kjark úr mönnum og hræðslutilfinning magnast ef skellt er á. Árið 1915 kom Elektron, forveri Símablaðsins, út í íyrsta sinn. Meðal efnis var grein sem hét „Hvemig talsímameyjar eiga að vera“. Sam- kvæmt greininni töldust meyjamar ekki góðar nema þær væm hraustar, handfljótar, kurteisar, geðgóðar, viðmótsþýðar og hjálpfúsar. Þá var lögð áhersla á að símnotendur væm hvorki mddalegir, tillitslausir eða ffekir heldur sýndu meyjunum kurteisi og lipurð......þvi þótt þær vinni eins og vélar, em þær samt lifandi verur með tilfinningu." Nú heyra símameyjar sögunni til og fæstir líkja samborgurum sínum við vélar en enn má ítreka mikilvægi prúðmennsku og kurteisi í skiptum gegnum síma. Nokkrar nýjungar Þróun fjarskipta er ör. Sífellt verður að hanna ný tæki til þess að fullnægja breyttum skilyrðum. Farsímar hafa vakið mikla athygli en ýmislegt fleira er að gerast í símamálum. I október á þessu ári kemst á markað þráðlaus sími. Sá er settur saman úr símtæki og lítilli stjómstöð, hvort tveggja er þægilegt í flutningi. Þráðlausir símar hafa þekkst um nokkurt skeið erlendis en ekki verið leyfðir hér á landi. Ástæðan er sú að gaml- ar gerðir höfðu opnar rásir. Þráðlausir símar koma til með að kosta 40.000 krónur. Símar með hátalarakerfi njóta mikilla vin- sælda. Þeir em búnir þeim eiginleika að tala má beint í þá án þess að nota símtól. Þá hefur færst í vöxt að símar séu útbúnir valminni. Getur slík- ur sími geymt allt að 50 númer. Hjá mörgum stærri fyrirtækjum verða menn að bíða eftir samtali. Fjöldi slíkra fyrirtækja hef- ur í notkun kerfi, tengt við símann, sem leikur tónlist meðan viðskiptavinur bíður. Meðal ann- ars hafa Flugleiðir og Póstur og sími tekið upp þessa nýbreytni. Hér á landi hafa möguleikar áðumefnds kerfis ekki verið nýttir nema að litlu leyti. Erlendis er það mikið notað til þess að Qytja auglýsingar og alls kyns upplýsingar. Sé rýnt í símablöð má sjá ýmislegt sem vekur íhuga. Til er sími sem nemur orð. Sérstakt inn- jyggt kerfi tekur við þeim og velur númerið sem stendur að baki. Segjum sem svo að einhver þurfi á hjálp lögreglu að halda. Hann man ekki númer- ið en kallar orðið í tækið og síminn velur 10200. Að vísu er orðaforði svona síma nokkuð takmark- aður, hann er bundinn við 20 orð. Nýlega kom á markaðinn sími sem er rauðgló- andi í orðsins fyllstu merkingu. Á honum er lampi sem við hringingu sendir eldrauða geisla í allar áttir. Síðast en ekki síst má nefna myndsímann. Myndsíminn er ekki ný uppgötvun, hann var fyrst kynntur 1964. En þetta er dýrt tæki og hef- ur ekki hlotið útbreiðslu. Nú fyrir skömmu kom á markaðinn tegund sem betra er að beita og er á allan hátt fullkomnari en sú fyrri. Símanum fylgir lítill skjár sem á birtist mynd af viðmæl- anda og þeim sem hringir. Þetta eru svarthvítar myndir. Venjulegar símalínur flytja myndimar en það tekur tvær til sex sekúndur að birta þær á skjánum. Gera ffamleiðendur sér vonir um að neytendur taki þessari tegund vel. Talsímamær. ÆUi þessi hafi verið hraust, handfljót, geðgóð, kurteis, viðmótsþýð og njaiprusv dyttaði að glugga. Ekkert virtist raska ró hans en skyndilega rauf hvell hringing himneskan ffið- inn. Síminn hélt áffam án afláts. Samviskusaman karlinn greip mikið fát, símanum varð hann að svara. Hann þaut af stað en gleymdi stiganum. Ferðin endaði í blómabeði. Hann komst aldrei að því hver hringdi, aftur á móti stóð veslingur- inn á hækjum nokkra mánuði og bellisamir blómstmðu ekki meir það sumarið. Símafælni Símafælni er jafnalgengt fyrirbrigði. Margir eiga í ótrúlegustu erfiðleikum með að tala í síma. Menn, sem að jafnaði kalla þó ekki allt ömmu sína, staulast að símtækinu og dmsla því upp að eyra. Ef svo illa vill til að einhver svarar kemst erindið aldrei almennilega til skila. Hiksti, stun- ur, stam og önnur annarleg hljóð koma í veg fyrir það. Símafælni er yfirleitt tengd feimni, van- Wm Þráðlaus simi. Tækið kemur á markaöinn i október. 36. TBL VIKAN 39

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.