Vikan - 04.09.1986, Blaðsíða 52
Sakamálasaga eftir Agöthu Christie
Leyndardómur
veiðikofans
„Ætli ég lifi þetta ekki af,“ muldraði Poirot.
Mér fannst þessi setning ljóma af bjartsýni
miðað við að það var sárþjáður inflúensusjúkl-
ingur sem talaði. Reyndar hafði ég sjálfur veikst
fyrst af þessari pest og nú var röðin komin að
Poirot. Hann sat í rúminu sínu og hafði hlaðið
koddum og púðum allt í kringum sig. Hann var
með ullarsjal vafið um höfuðið og sötraði eitt-
hvert baneitrað seyði sem ég hafði bruggað
handa honum eftir hans eigin fyrirsögn. Poirot
horfði með ánægjusvip á snyrtilega röð af
lyQaglösum sem stóðu á arinhillunni.
„Já, já,“ hélt hinn smávaxni vinur minn
áfram. „Ég næ mér aftur og verð á ný hinn
hræðilegi Hercule Poirot, skelfir allra illvirkja.
Hugsaðu þér, kæri vinur, hér er klausa um mig
í slúðurdálki eins dagblaðanna: Glæponar,
grípið tækifærið. Nú getur leynilögreglumeist-
arinn Poirot ekki haft hendur í hári ykkar því
að hann er með flensu."
Ég hló: „Ágætt, Poirot. Þú ert að verða vel
þekktur. Þú ert líka heppinn því að það hefur
ekkert sérstakt gerst meðan þú hefur legið.“
„Rétt er það. Þessi fáu mál, sem ég hef verið
beðinn um að leysa, hafa verið svo ómerkileg
að ég hef ekki haft nokkurt samviskubit þótt
ég hafnaði þeim.“
Konan, sem við leigjum hjá, rak höfuðið inn
úr dyrunum.
„Það er maður niðri sem segist þurfa að hitta
annaðhvort hr. Poirot eða Hastings höfuðs-
mann og þar sem hann leit út fyrir að vera
heiðursmaður þá tók ég við nafnspjaldi háns.“
Hún rétti mér bréfspjald.
„Hr. Roger Havering," las ég.
Poirot benti með höfðinu í áttina til bókahill-
unnar og ég náði í „Hver er maðurinn?" Poirot
fletti bókinni.
„Yngri sonur barónsins af Windsor. Kvong-
aðist árið 1913 Zoe, fjórðu dóttur Williams
Crabb."
„Hemm,“ sagði ég. „Ég held að þetta sé stúlk-
an sem lék hjá Frivolityleikhúsinu. Hún kallaði
sig Zoe Carrisbrook. Að minnsta kosti giftist
hún einhverjum ungum manni rétt fyrir stríð."
„Hefurðu ekki áhuga á því að skreppa niður
og athuga hvað hann vill? Segðu honum að ég
sé veikur."
Roger Havering var um fertugt, líkamlega
vel á sig kominn og óaðfinnanlega klæddur,
en hann var allur á nálum og leið augsýnilega
illa.
„Hastings höfuðsmaður. Þér eruð samstarfs-
maður Poirots. Það er bráðnauðsynlegt að þér
komið með mér til Derbyshire strax í dag.
„Það er því miður ekki hægt. Hr. Poirot er
veikur, hann er með flensu.“
„Það var nú verra.“
„Er það alvarlegt mál sem þér þurfið að bera
undir hann?“
„Guð minn góður, já. Frændi minn, besti vin-
ur sem ég hef átt, var myrtur síðastliðna nótt.“
„Hér í London?“
„Nei, í Derbyshire. Ég var hér í borginni í
nótt en konan mín hafði samband í morgun og
sagði mér fréttirnar. Um leið og ég heyrði þetta
ákvað ég að leita aðstoðar Poirots."
„Hafið mig afsakaðan eitt augnablik," sagði
ég, mér hafði dottið dálítið í hug.
Ég hljóp upp og sagði Poirot í stuttu máli
hvað hafði gerst. Hann greip strax fram í fyrir
mér: „Ég skil og nú vilt þú fara sjálfur. Hvers
vegna ekki? Þú þekkir aðferðir mínar. Gefðu
mér bara skýrslu á hverjum degi og farðu ná-
kvæmlega eftir þeim fyrirmælum sem ég gef
þér.“
Ég samþykkti þetta eins og skot.
Um klukkustund síðar sat ég andspænis hr.
Havering í klefa á fyrsta farrými í Midland-
hraðlestinni.
„í fyrsta lagi, Hastings höfuðsmaður, verðið
þér að skilja að veiðikofinn, sem er ákvörðunar-
staður okkar, er i raun og veru aðeins kofi á
Derbyshireheiðinni. Við búum hins vegar ná-
lægt Newmarket og við leigjum okkur íbúð í
London þegar samkvæmistíminn hefst. í veiði-
kofanum er ráðskona og hún sér um þarfir
okkar þegar við skjótumst þangað um helgar.
Þegar veiðitíminn hefst tökum við þjónustufólk
með okkur frá Newmarket. Frændi minn, Harr-
ington Pace, en eins og þér vitið þá var móðir
mín frá Bandaríkjunum, New York nánar til-
tekið, hefur búið hjá okkur í 3 ár. Honum lynti
hvorki við föður minn né eldri bróður. Það virt-
ist hins vegar auka velvilja hans í minn garð
að ég var svona eins konar glataði sonurinn
innan fjölskyldunnar. Ég er fátækur en frændi
minn var hins vegar moldríkur og það má segja
að hann hafi borgað brúsann. Þótt frændi væri
52 VIKAN 36. TBL