Vikan - 04.09.1986, Page 56
S T J Ö R N U S P Á
Á
SPÁIN GILDIR FYRIR VIKUNA
4.-10. SEPTEMBER
HRÚTURINN 21. mars-20. apríl
Skipulagsbreytingar eru í aðsigi og
þær hafa áhrif á stöðu þína í þeim
hópi sem þú umgengst mest. Ekki
líkar þér þetta alls kostar og þykir
lakara að hafa ekki verið með í
ráðum. Þú vilt helst eiga frumkvæði
í svona stöðu og hættir til að van-
meta hugmyndir annarra.
TVÍBURARNIR 22. maí 21. júní
Þú þarft að beita lagni og samn-
ingalipurð ef takast á að leiða
farsællega til lykta ágreiningsmál
sem upp kemur í þessari viku.
Gættu tungu þinnar venju fremur
vel því að vanhugsuð orð geta verið
sem olía á eldinn, jafnvel þótt þau
séu í rauninni ekki illa meint.
LJÓNIÐ 24. júlí-23. ágúst
Áhugamálin eru ótrúlega tímafrek
og þú ert um það bil að missa vin-
sældirnar heima hjá þér. Þú kemst
ekki hjá því öllu lengur að gera
eitthvað í málinu. Það skaltu ekki
gera með hangandi hendi því að til-
breytingin getur ekki síður orðið
þér til ánægju en öðrum.
VOGIN 24. sept.-23. okt.
Breytinga er að vænta hjá þér, ann-
aðhvort skiptir þú um aðsetursstað
eða flest fer úr skorðum á gamla
staðnum. Þetta kemur nokkuð flatt
upp á ýmsa og þú færð að heyra
margar úrtöluraddir. Haltu þínu
striki og láttu ekki svartsýni ann-
arra draga úr þér kjarkinn.
BOGMAÐURINN 24. nóv.-21. des.
Annir eru fram undan og ekki verð-
ur sagt að þú liggir á liði þínu. Því
mislíkar þér þegar að vinnubrögð-
unum er fundið og mönnum finnst
þú hafir kastað til höndunum. Það
er best fyrir þig að lagfæra eftirtölu-
laust það sem hægt er og reyna að
gera gott úr öllu saman.
VATNSBERINN 21. jan.-19. febr.
Þú lætur smámuni fara í taugamar
á þér og veltir óþarflega mikið fyrir
þér atviki sem best er að gleyma sem
fyrst því að gert er gert og ekkert
verður aftur tekið. Einbeittu þér að
því að koma auga á spaugilegu hlið-
arnar á málunum, það gerir þér
ótrúlega gott.
NAUTIÐ 21. apríl-21. maí
Staldraðu við og íhugaðu hvort all-
ur þessi asi er bráðnauðsynlegur.
Það er svo mikið kast á þér að sum-
um sem umgangast þig finnst það
beinlínis óþægilegt. Prófaðu að
setjast niður með einhverjum sem
þú þekkir af eldri kynslóðinni og
gefðu þér góðan tíma.
KRABBINN 22. júní-23. júlí
Það er í þér óeirð, þig langar að
gera hitt og þetta en sýnist ekki að
neitt af draumunum komist í fram-
kvæmd. Örvæntu ekki, ennþá
gerast ævintýr og áður en langt um
líður verður þú stórum ánægðari
með þinn hlut. Ýmsir eru auk þess
reiðubúnir að slást í för með þér.
MEYJAN 24. ágúst-23. sept.
Fáirðu tækifæri til að skreppa í
stutt ferðalag eða taka þátt í ein-
hverju sem lítur út fyrir að vera
spennandi skaltu endilega slá til
þótt þér finnist þú hafa nóg annað
að gera. Maður er manns gaman
og ástæðulaust að líta framhjá þeim
gömlu sannindum.
SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv.
Ef þú verður var við illt umtal
skaltu gæta þess að gjalda ekki líku
líkt. Á næstunni kemstu að raun
um að ekki eru allir viðhlæjendur
vinir og þú þarft ekkert að syrgja
það þótt kunningjahópurinn grisj-
ist eitthvað. Þeir sem eftir standa
eru þér mun meira virði en hinir.
STEINGEITIN 22. des.-20. jan.
Það er einhver óreiða í kringum þig
og þú ert orðinn henni svo vanur
að þú ert um það bil að verða sam-
dauna ósköpunum. Reyndu samt að
taka á þig rögg og lagfæra það sem
er í þínu valdi því að til lengdar
þrífstu ekki nema hafa sæmilega
yfirsýn yfir umhverfið.
FISKARNIR 20. febr.-20. mars
Þú leggur þig verulega fram við að
aðstoða einhvern sem þú átt gamla
skuld að gjalda. Þrátt fyrir góðan
vilja gengur þér illa að gera þessari
manneskju til hæfis og ekki er ólík-
legt að þolinmæðin bresti áður en
yfir lýkur. Láttu nöldur og nagg
ekki villa um fyrir þér.
í tilefni af því að nú stendur tímabil meyjarinnar sem hæst
ætlum við að birta sérstaka spá meyjarinnar fyrir hvern dag
vikunnar.
FIMMTUDAGUR 4. september:
Notið öll tækifæri sem ykkur sýnast vænleg. Yfir ykkur er
heppni og nánast útilokað að þið klúðrið nokkru sem þið
takið ykkur fyrir hendur.
FÖSTUDAGUR 5. september:
Þetta verður þægilegur dagur og rólegur, ekki þarf að búast
við stórvirkjum en dagurinn er tilvalinn til að meta árangur
gærdagsins og fylgja honum eftir ef þörf krefur. Verið við-
búin freistingum í mat og drykk.
LAUGARDAGUR 6. september:
Þetta er tilvalinn dagur til að gera hreint fyrir sínum dyrum,
bæði í eiginlegri merkingu og óeiginlegri. Njótið þess síðan
að slaka á og hvíla ykkur eftir erfiði vikunnar.
SUNNUDAGUR 7. september:
Yfir þessum degi er einhver drungi en þótt dauflegt sýnist í
kringum ykkur við fyrstu sýn má gera sér dagamun með
ýmsum hætti og ekki þarf endilega að kosta miklu til eða
hafa mikið fyrir.
MÁNUDAGUR 8. september:
Nú hýrnar heldur betur yfir ykkur og full áhuga og bjart-
sýni finnst ykkur sem allir vegir séu færir. Það er nokkuð til
í því og um að gera að nota tækifærið og drífa af það sem í
annan tíma gæti reynst örðugra viðureignar.
ÞRIÐJUDAGUR 9. september:
Hafið góða gát á íjármálunum og látið ekki pranga inn á
ykkur því sem þið hafið ekkert með að gera. Það getur orð-
ið erfitt að standast freistingarnar en hafið hugfast að sjálf
eruð þið best fær um að meta eigin þarfir. Hagsmunaárekstr-
ar eru líklegir en látið slíkt ekki koma ykkur úr jafnvægi.
MIÐVIKUDAGUR 10. september:
Heppilegast er að allt gangi sinn vanagang og ekki við því
að búast að uppskeran verði meiri en efni standa til. Reynist
loft lævi blandið er um að gera að leiða það hjá sér og forðist
umfram allt að blanda ykkur í deilumál. Kvöldinu er best
varið með því að hitta góðan vin eða vini.
56 VIKAN 36. TBL