Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 22
Vikan — kvikmyndir/myndbönd
Ofurmennið
gegn
kjamorku
Fyrir nokkrum árum sagðist
Christopher Reeve ekki ætla
að leika Superman aftur. Sú
ákvörðun stóðst ekki tímans
tönn því hann klæðist blá-
rauð-gula búningnum í fjórða
sinni í Superman IV og enn
á ný fylgjumst við með hon-
um við björgun mannkynsins.
Sú ákvörðun Reeves að leika
Superman einu sinni enn
byggist meðal annars á því
að hann fékk því framgengt
að hin fræga sögupersóna
yrði gerð mannlegri og að
hún aðlagaðist um leið lífinu
á jörðu.
Þetta samþykktu Cannon-
bræður er höfðu keypt
kvikmyndaréttinn að Super-
man af Alexander Salskind
er hafði framleitt fyrri mynd-
irnar.
Superman er því nokkuð
breytt persóna í nýju mynd-
inni þótt að sjálfsögðu sé
einnig lögð áhersla á hasar-
senur og húmorinn er að
venju ekki langt undan.
Gene Hackman er einnig
mættur til leiks sem Lex
Luthor en hann hvarf af sjón-
arsviðinu eftir fyrstu tvær
myndirnar.
Söguþráðurinn er í stuttu
máli sá að ungur skóladreng-
ur, Jeremy, hefur miklar
áhyggjur af kjarnorkuvíg-
búnaði í heiminum. Þegar
stjórnendur heimsins geta
ekki komið sér saman um
eyðingu kjarnorkuvopna
ákveður hann að senda eina
manninum, sem hann telur
geta bjargað heiminum,
Superman, bréf og biðja hann
hjálpar.
Bréfið sannfærir Superman
um að sömu örlög gætu beðið
jarðarinnar og Krypton,
plánetunnar sem hann kemur
frá.
Hann mætir því galvaskur
á fund í allsherjarráði Sam-
einuðu þjóðanna og býðst til
að fara út í geiminn með öll
kjarnorkuvopnin og sprengja
þau þar upp. Með friðarvilja
samþykkja leiðtogar heimsins
tillögu Supermans og mann-
fólkið gleðst yfir að vera
W í|
Lois Lane (Margot Kidder) er alltaf jafnhrifin af hetjunni sinni. Super-
man (Christopher Reeve) munar litið um að fjarlægja einn bil af götunni.
Umsjón: Hilmar Karlsson
22 VIKAN 34. TBL