Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 25
er nýlega farið að hanna karlmannafatnað í
því líka.
„Kennedyfjölskylda
Italíu“
Höfuðstöðvar Benettons eru í gullfallegu
húsi frá 17. öld, um það bil 15 mílur norður
af Feneyjum. Þaðan stjórnar hinn 51 árs gamli
Luciano sínu fræga fyrirtæki. Hann er heilinn
á bak við Benettonfyrirtækið.
Líkt og rómverskur keisari hefur Luciano
skipt heimi sínum niður í svæði og skipað
„landstjóra" yfir hverju svæði. Þessir 80 land-
stjórar eru meðal annars lykillinn að velgengni
skipulagsins. Þeir eru í stöðugu sambandi við
höfuðstöðvarnar á Ítalíu og fylgjast grannt
með sínu. Þeir velja nýjar staðsetningar versl-
ana, fylgjast með útstillingum og fleira í þeim
dúr.
Luciano er stöðugt á faraldsfæti því honum
finnst mjög áríðandi að vera í beinum sam-
skiptum við lífæðar fyrirtækisins. Þessi sjálfs-
öruggi margmilljónamæringur vinnur tólf
stunda vinnudag og það gera einnig hin systk-
inin. Þetta fólk er vinnuþjarkar og ekkert
virðist bíta á það. Guiliana hefur umsjón með
allri hönnun ásamt því að vera fjögurra barna
móðir. Luciano var eitt sinn haldið föngnum
í mannráni sem stóð í Ijóra klukkutíma og
mætti eldhress til vinnu snemma næsta dag.
Einstök vinnusemi, sterk fjölskyldutengsl,
heilbrigt líferni og skipulagshæfni Benetton-
fjölskyldunnar hefur gefið henni gælunafnið
„Kennedyfjölskylda Ítalíu".
Sameinadiv friðarlitir
Auglýsingar Benettons hafa vakið verð-
skuldaða athygli og viðurkenningar. Auglýs-
ingaherferðum fyrirtækisins er stjórnað af
ljósmyndaranum Oliviero Toscani. Sem dæmi
má nefna auglýsingar eins og „United Colors
of Benetton" (sameinaðir litir Benettons) sem
túlka von um frið á jörðu á mjög sérstakan
máta. Börn af ýmsum þjóðernum haldast í
hendur, klædd fötum í öllum regnbogans lit-
um.
Undirrituð hefur komið í Benettonverslanir
í New York, Kaupmannahöfn, Hawaii, Nice,
Sam Remo og auðvitað Reykjavík. Það hefur
vakið athygli mína að starfsfólkið virðist vera
valið af natni. Það er undantekningarlaust
huggulega til fara, brosmilt og kátt.
Eg hef þó einu sinni verið óheppin í við-
skiptum mínum við Benetton. Eg var nýlega
í einni af verslunum fyrirtækisins í Honolulu
og keypti mér þar buxur, jakka og skyrtu sem
ég var mjög hrifin af. Hrifning mín minpkaði
þó til muna er kom að þvottadögum. Ég las
þvottaleiðbeiningarnar margoft til þess að
dressið héldi nú örugglega sínum sjarma. En
viti menn! Buxurnar hlupu svo að ég var
hreinlega í vandræðum með að fmna þær í
þvottavélinni!
En það má gera gott úr öllu og ég geng
stolt um í nýju Bermuda-Benetton stuttbux-
unum mínum ...
Hrund Hauksdóttir,
Winona, Bandaríkjunum
Luciano Benetton hætti í skóla 10 ára gamall og stefnir að því nú að komast i heimsmetabók
Guinness. Hann er elstur Benettonsystkinanna.
34. TBL VIKAN 25