Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 26
Vikan — bílar
PEUGEOT 405
Á næstu vikum kemur á markað-
inn í Evrópu nýr meðalstór Peugeot
sem fengið hefur númerið 405. Hann
fyllir upp í gatið milli 309 og 505.
Ef myndin prentast vel má sjá að
hér er um bráðlaglegan bíl að ræða
enda hefur ítalski meistarinn Pinin-
farina komið hér við sögu eins og
oftast áður hjá Peugeot.
Vélarstærðir verða 4, 1,6 lítra, 75
hö., 1,9 lítra, 95 hö., 1,9 lítra með
beinni innspýtingu, 105 hö., og síð-
ast en ekki síst 1,9 lítra, 16 ventla,
með öllu, 158 hö. Sá bíll nefnist 405
MI 16 og verður meiri háttar trylli-
tæki, hámarkshraði 220 km/klst. og
0-100 á 8,6 sek.
Peugeot 405 hefur sjálfstæða fjöðr-
un á öllum hjólum, gorma að framan
en snerilíjöðrun að aftan.
NYR MOSKVICH
Sovéska bílaverksmiðjan Moskvich hef-
ur byrjað framleiðslu á nýjum bíl. Sá
er framdrifinn, 5 dyra og líkist mjög
Talbot 1510 (sem áður hét Simca). Bíll-
inn á að leysa af hólmi gamla Moskvich-
inn og má segja að timi hafi verið til
kominn. Margir muna eflaust eftir
fyrstu bilunum af Moskvichgerð sem
hingað voru fluttir. Síðar komu
„Mosar“, sem voru eins konar minni
útgáfa af Volgu, og dugðu þeir vel á
frumstæðum vegum, enda háir frá vegi.
Þeir voru hins vegar ekki allt of stöðug-
ir og litu oft út fyrir að vera svolítið
meira bilaðir en þeir voru i raun og
veru. Á síðari hluta 7. áratugarins komu
svo nýjustu Moskvichbílarnir og má enn
sjá nokkuð af þeim í umferð þó að inn-
flutningur hafi ekki verið mikill síðari
árin. Þó var um tíma selt talsvert af
sendibílum sem voru eins konar blanda
af bíl og kartöflugeymslu. Margir iðnað-
armenn áttu svona bila því að þeir voru
ódýrir og hentuðu mörgum handverks-
mönnum mjög vel.
Nýi Moskvichinn ber númerið 2141
og var þróaður með aðstoð frönsku
Renaultverksmiðjanna. Gert er ráð fyrir
því að bíllinn verði kynntur í þessari
fyrstu útgáfu á Vesturlöndum í haust,
líklega í Frankfurt. Á næstu 2 árum eru
svo væntanlegar fleiri gerðir, svo sem
skutbíll og 4 dyra útgáfa. Ennfremur
er fyrirhugað að setja fjórhióladrif i bíl-
inn.
Tvær vélar eru fáanlegar sem báðar
eru 75 hö., önnur 1,5 lítra en hin 1,6
lítra. Sú síðarnefnda mun vera væntan-
leg í Lada Samara á næstunni.
26 VIKAN 34. TBL
PORSCHE 959
í FRAM LEIÐSLU
Umsjón:
Úlfar Hauksson
Porsche hefur nú byrjað framleiðslu á
959 bílunum svo nú sér fyrir endann á
tveggja ára bið kaupenda eftir þessu
undratæki. Porsche 959 er einhver kraft-
mesti, hraðskreiðasti og dýrasti bill sem
framleiddur hefur verið í „seríufram-
leiðslu“. Kaupendur greiddu flestir
gríðarlegar upphæðir fyrir kaupsamn-
inginn fyrir 2 árum og hafa síðan beðið,
vafalaust óþreyjufullir, eftir þessu dýr-
lega leikfangi. Verðið, sem þeir greiða
endanlega fyrir bílinn, er um það bil
420.000 þýsk mörk og fengu færri en
vildu því að hinir hamingjusömu eigend-
ur verða aðeins um 200 talsins.
Porsche 959 er dæmi um það hvað
hægt er að gera ef menn láta helst ekk-
ert aftra sér frá því að ná sem fullkomn-
ustum árangri. Bíllinn ber keim af
911-gerðinni af Porsche en er þó heldur
stærri og flatari. Vélin er að upplagi
gamla 6 strokka boxervélin sem knýr
911. í 959 er hún 2,8 lítra, vatnskæld,
með 2 forþjöppum, millikæli og 4 ventl-
um við hvern strokk. Ventlunum stjórna
4 knastásar og vélin er að sjálfsögðu
með beina eldsneytisinnspýtingu. Ár-
angurinn er 450 hö. við 6500 sn/mín.
og togið er 500 Nm við 5000 sn/mín.
Billinn er með drif á öllum hjólum með
rafeindastýrðri dreifingu drifkrafts milli
fram- og afturhjólanna. Fjaðrabúnaður
er einnig stillanlegur.
Annars er Porsche 959 svo úttroðinn
af nýjustu tækni og vísindum í bilasmíði
að með ólíkindum er. Ekki mælist að-
eins afl og hraði í óvenjulegum tölum
heldur ýmislegt fleira. Má t.d. nefna að
olíumagnið á vélinni er 18 lítrar og
kælikerfið tekur 25 lítra. Venjulegir fjöl-
skyldubílar eru með 3-5 lítra af olíu og
5-10 lítra af kælivökva.
Hvað er svo hægt að gera með allar
þessar „græjur“? Jú, Porsche 959 nær
u.þ.b. 320 km hraða á klst. og það tek-
ur „vana menn“ aðeins 3,7 sek. að ná
100 km/klst. úr kyrrstöðu. Jafnframt er
bíllinn tiltölulega auðveldur viðfangs í
venjulegum innanbæjarakstri.
Okumenn þýska bilablaðsins Auto
Motor und Sport töldu þó að þýskar
hraðbrautir sýndust fremur þröngar og
samferðamennirnir hægfara, séð úr bíl-
stjórasætinu í Porsche 959, þegar
hraðamælirinn væri kominn á 4. hundr-
aðið. Þeir mældu sérstaklega vegalengd-
ina sem þurfti til að stöðva bílinn á
hámarkshraða og reyndist hún yfir 400
metrar þrátt fyrir að 959 er búinn ein-
hverjum öflugustu hemlum sem um
getur (með ABS að sjálfsögðu). Enn-
fremur töldu sérfræðingar blaðsins að
bíllinn færði ökumann fljótlega í óþarfa
nálægð við takmörk ökuleiknínnar.
Það þarf nú líka talsvert hugrekki til
að fara út að aka á jafnvirði einbýlis-
húss af dýrustu gerð.
Engu að síður gleðja svona „kon-
fektmolar" hug og hjarta bílaáhuga-
manna og leiða jafnframt til framfara í
bilaiðnaði sem allir njóta, þó síðar verði.
GALANT FLATARIAÐ FRAMAN
Með haustinu kemur á markaðinn
endurbættur Mitsubishi Galant. Út-
litið verður ekki mikið breytt, helst
að framhlutinn hafi orðið flatari
ásamt því að rúðurnar hafa stækkað
litillega.
Auk 4 strokka vélanna, 1,6 lítra
og 2,0 lítra, sem hafa verið í Galant-
mum, verður einnig fáanleg 6
strokka vél, 2,5 lítra, 140 hö.
34. TBL VIKAN 27