Vikan


Vikan - 10.09.1987, Síða 11

Vikan - 10.09.1987, Síða 11
Björn Thors og Hondan sem er skráð undir númerinu R-7. Buick árgerð 1940, eign Kjartans Thors, föður Björns. Buickinn var fyrsti bíliinn í eigu Kjartans sem bar einkennisstafina R-7. Myndin er tekin 1943 eða 1944. skráður undir merkinu RE-7 en 1932 keypti Magnús Guðmundsson bílinn af ríkinu. Hann átti bifreiðina til ársins 1941 er Magnús Bjarnason, bílstjóri hjá BSR, festi kaup á far- kostinum. Snemma árs 1942 kom Magnús að máli við Kjartan Thors, framkvæmdastjóra Kveldúlfs, og bauð honum númerið, en Magnúsi fannst ekki hæfa að stöðvarbíll bæri svo lága einkennisstafi. Kjartan þáði merkið og var Buick-bíll í eigu hans skráður undir merkinu. Sonur Kjartans, Björn, hafði um þetta leyti nýlokið bílprófi og kom það í hlut hans að keyra bílinn. „Þetta var BÍLL,“ segir Björn, „fyrsta klassa blæjubíll sem var feikilega gaman að aka. Á sínum tíma var þetta án efa einhver besti bíll landsins í sínum gæðaflokki.“ Björn flutti búferlum til Kópavogs um 1950 og fékk brátt bíl merktan Y-7 en faðir hans hélt merkinu R-7. 1959 fluttist Björn aftur til Reykjavíkur, tók við einkennisstöfunum og hefur alla tíð síðan ekið bílum skráðum und- ir R-7. Hann segist hvorki muna fjölda né tegundir þeirra bila sem borið hafa merkið enda skipta þeir tugum. Þó kvað Björn þetta hafa verið bíla af öllum stærðum og gerðum; um tíma ók hann Fiat og stuttu seinna Willys-jeppa. Nú á Bjöm Honda Accord ár- gerð 1985 sem skráð er undir R-7. Örn Þór málflutningsmaöur ásamt Subaru sem ber einkennisstafina Fyrs,i vörubíll sælgætisgerðarinnar Freyju fyrir framan verksmiðjuna R-10. á Lindargötunni 1939. Hann bar númerið R-10 frá 1934 til 1940. Oddssyni á Eystri-Garðsauka bílinn 1929. Þá var spjaldið sett á Nashville-fólksbifreið i eigu Þórðar Ingþórssonar á Grettisgötu 73. 1933 seldi Þórður Guðbrandi Jörundssyni, bónda á Vatni í Haukadal, bifreiðina. Hún var flutt austur, spjaldinu skilað en stuttu seinna var Opelinn fyrnefndi skráður undir merkinu. Sælgætisgerðin Freyja notaði vörubílinn fram til ársins 1942 en tvö síðustu árin var hann skráður undir merkinu R-392. Þá var R-10 komið í eigu Vilhjálms Þórs, banka- stjóra Landsbankans og síðar ráðherra, en Vilhjálmur keypti númerið af Freyju 1940. Hann ók bílum merktum R-10 allt til dauða- dags, 1972, en þá tók sonur hans, Örn málflutningsmaður, við spjaldinu og á hann það enn. Öm minnir að fyrsti bílinn á nafni föður hans undir merkinu R-10 hafi verið Buick árgerð 1938 eða ’39 en síðustu fjörutíu og fimm árin hefur á annan tug bíla borið núm- erið, nú síðast Subaru árgerð 1987. 37. TBL VI KAN 11

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.