Vikan


Vikan - 10.09.1987, Blaðsíða 35

Vikan - 10.09.1987, Blaðsíða 35
Texti: Freyr Þormóðsson Myndir: helgi skj. friðjónsson ast með því sem er að gerast í kvikmynda- gerð og ná áttum í kvikmyndasögunni. Er ekki erfiður skóli að læra að meðtaka gagnrýni á skáldverk sín? Hann er það, menn geta orðið mjög sárir, jafnvel reiðir. Góð, rökstudd gagn- rýni er hins vegar bráðnauðsynleg, af henni lærir maður hvað mest. Það er miklu betra að vankantar handrits komi strax í ljós í upphafi máls en ekki 25 milljónum síðar þegar mistök, sem auð- velt hefði verið að laga, eru kannski orðin íbúðar virði. Kennarar skólans hafa náð miklum árangri, hver á sínu sviði, þeir geta miðlað af mikilli þekkingu. Síðan þarf maður að kenna sjálfum sér að vinna úr þessu með endalausum tilraunum og mikilli vinnu. Skiptir máli fyrir handritanám þitt að hrærast í miðri hringiðu draumavélar Hollywood? Það skiptir mig máli að vera í góðum skóla til að læra atvinnumennsku í hand- ritagerðinni. Síðan er það ágætt aukanám að búa í nafla kvikmyndaiðnaðarins þar sem maður kynnist hjartslætti hans og lífi. Kvikmyndir eru eðlilega ofarlega á baugi í Los Angeles, umfjöllun um kvik- myndir og kvikmyndagerð er mikil og bíóferðir eru mikið alþýðusport. Þar er líka allt önnur innlifun en hér, fólk klapp- ar tilgerðarlaust við sýningarlok kvik- myndar ef því líkar vel og hikar ekki við að fara út í miðri mynd standist hún ekki kröfur hvers og eins. Síðan stendur fólk aldrei upp fyrr en nafnaljstinn hefur runnið í lok myndar. Það skapast af því að íjölmargir eru hreinlega markvisst að rannsaka kvikmyndir, aðrir vinna við þær eða þekkja einhverja tengda kvik- myndagerðinni og bíða því eftir öllum nöfnum sem fylgja hverri mynd. Los Angeles og Hollywood er miðstöð kvik- myndagerðar í heiminum og fólkið þar veit vissulega af því. Dýru myndirnar vekja vissulega mesta athygli þar sem annars staðar, þar skipta margir seðlar um eigendur. Þær eru þó t; alls ekki allar eingöngu sölumyndir, þær eru líka stundum góðar kvikmyndir sem skipta kvikmyndagerðina og almenning miklu máli. Ég nefni nýlegt dæmi; Platoon sem vakti gífurlegar umræður og blaðaskrif úti, tímabært verk fyrir amerísku þjóðina. Það vakti líka mikla athygli að myndin fékk fyrstu verðlaun erlendra gagnrýnenda sem Bandaríkja- mönnum þykir mikill heiður. Þrátt fyrir allt lita þeir mjög upp til alls sem evr- ópskt er, evrópskar myndir njóta til dæmis mikillar virðingar vestanhafs. Hollywood-bær er ekki svipur hjá sjón, þar er tkki mikill glæsileiki ríkjandi. Þarna er að vísu Hollywood-skiltið uppi í hæðinni sem aðallega er vinsæll sjálfs- morðsstaður, mig minnir að það sé annað ellið sem allir stökkva af. Maður sér samt ríkidæmið í kringum sig og þá aðallega í Beverly Hills. Hollywood-draumurinn er þó enn við lýði, fólk bíður með börn sín í biðstofum tækifæranna í stóru kvik- myndaverunum og aðrir vekja á sér athygli á meira en allan hugsanlegan máta um alla borg. Hollywood-goðsögn- in er vissulega enn til, það er frekar á mörkunum að Hollywood sjálf sé til. SNOBBLYKT AF ÞVÍ Sýnast þér peningar ráða meiru en hæfi- leikar um tækifæri og velgengni fólks? Það nær enginn langt nema hafa um- talsverða hæfileika. Síðan er annað mál hvernig hinir fáu útvöldu nota hæfileika 37. TBL VIKAN 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.