Vikan


Vikan - 10.09.1987, Blaðsíða 36

Vikan - 10.09.1987, Blaðsíða 36
sína, hvort þeir beina þeim fremur í fjár- hagslega gjöfula farvegi en listræna. Það er staðreynd að frami fólks í Bandaríkj- unum er miðaður við peninga. Velgengn- in er fólgin í að seljast vel. Mér finnst það eitt og sér ekki eftirsóknarvert eða freistandi. Metnaður nemenda við há- skólann er mjög mismunandi, sumir eiga sér þann draum æðstan að verða ríkir höfundar sápuópera. Ég hef alla tíð haft mjög gaman af góðum spennumyndum, góðum þrillerum og get vel hugsað mér að vinna með þannig hugmyndir. Upp á síðkastið virðist mestum fjármun- um og kröftum vera eytt í að gera unglinga- kvikmyndir, þær flæða yfir okkur í endalausum röðum og maður fær það á til- flnninguna að sölusjónarmið hafl með öllu ýtt öðrum úr vegi. Aldurshópurinn tólf til svona tuttugu og fimm ára er duglegastur við að fara í bíó, framhjá þeirri staðreynd verður ekki litið. Ef mynd fer algjörlega fyrir ofan garð og neðan hjá þessum hópi ertu búinn að sníða þér mjög þröngan stakk. Þá erum við líka komnir að þeim punkti hvað þetta er dýr listgrein. Það skiptir máli að margir sjái myndina. Kvik- myndagerð verður þannig óhjákvæmi- lega bæði listiðnaður og listgrein. Verður ekki íslensk kvikmyndagerð nán- ast vonlaus í þessu Ijósi, þar sem markaður- inn er ekki stærri en citthvað á þriðja hundrað þúsund? Það er lítill möguleiki á að einskorða íslenska kvikmyndagerð við innanlands- markaðinn. Það er hægt, cins og dæmin sanna, að gera ódýrar kvikmyndir sem bera sig á íslandi einu, en þá verður líka að stíla inn á sama markað og áramóta- skaupið. Það á auðvitað fullan rétt á sér, en Ijóst er að nánast er útilokað að selja slíkar myndir úr landi, fremur en skaupið. í öðrum tilfellum verður að höfða til áhorfcnda víðar cn hér á landi og það er ekkert verra f'yrir viðkomandi mynd. Því er líkt farið mcð góðar kvik- myndir og góðar bókmenntir, þær eru í cðli sínu alþjóðlcgar. Vor íslcnskrar kvikmyndagerðar er lið- ið. Fólk fer ekki lcngur til að sjá kvikmynd bara af því að hún er íslensk. Kröfurnar eru meiri, sem betur fer. Hitt myndi cingöngu ala á lélegum vinnu- brögðum kvikmyndagcrðarmanna. Hvað finnst þér þá um vor íslcnskrar kvikmyndagerðar? Allt þarf sína þróun, það scm gcrt hef- 36 VIKAN 37. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.