Vikan


Vikan - 10.09.1987, Blaðsíða 12

Vikan - 10.09.1987, Blaðsíða 12
Merkis-spjöld Davíð Ósvaldsson og líkbíllinn, Volvo árgerö 1980. Fyrsti líkbíll líkkistuvinnustofu Eyvindar Árnasonar fyrir framan Dómkirkjuna 1934. Yfirbygging- in var að mestu fengin af hestvagni sem áður var notaður til likflutninganna. Líkbíll líkkistuvinnustofu Eyvindar Árna- sonar er skráður undir merkinu R-l4. Davíð Osvaldsson útfararstjóri sagði að saga núm- ersins og líkkistuvinnustofunnar væri samofin. Á þriðja áratugnum festi afi Davíðs, Eyvindur Árnason, trésmiður og útfararstjóri, kaup á bifreið Geirs Pálssonar byggingameistara, en hann hafði keypt bílinn af Thor Jensen stór- kaupmanni. Bifreiðin var pallbíll, merktur RE-14. Eitt af verkum Eyvindar var að flytja kistur til greftrunar. Til þessa flutnings notaði hann líkvagn sem var dreginn af hestum. 1931 venti Eyvindur kvæði sínu í kross og festi kaup á bifreið til líkflutninganna. Þetta var svartur Chrysler L 20 LW árgerð 1930. Að baki skammstöfunarinnar LW standa orðin Long-Wheel-Base en bilið á milli hjóla slíkra bifreiða var lengra en gekk og gerðist. Eyvindur Árnason lést I950 en upp úr I940 hafði Ósvald sonur hans tekið við verkstæð- inu. Að Ósvald látnum varð Davíð, sonur hans, útfararstjóri og gegnir því starfi enn. Davíð segist ekki hafa keyrt Chryslerinn en það hafi faðir hans gert. Hins vegar taldi Eyvindur, afi Davíðs, það ekki vera í sínunt verkahring að keyra bílinn og settist aldrei undir stýri. Chryslerinn var fyrsti íslenski líkbíllinn og gegndi sania hlutverki til ársins I956 eða í tæp tuttugu og fimm ár. Þá var yfirbyggingin rifin af honum, bíllinn seldur og gerður að pallbíl en sem slíkur var hann tekinn úr umferð nokkrum árum síðar. Númersplatan R-I4 er hins vegar enn í fullu fjöri og hefur prýtt fjóra bíla líkkistuvinnustofunnar að Chryslernum undanskildum, nú síðast Volvo árgerð 1980. Texti: Sigrún Ása Markúsdóttir Myndir: helgi skj. friðjónsson 12 VIKAN 37. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.