Vikan


Vikan - 10.09.1987, Page 39

Vikan - 10.09.1987, Page 39
Ég hef hins vegar engan ímugust á við- skiptum, slík viðhorf eru hreinlega hallærisleg. Kvikmyndasjóðurinn kemur ósjálfrátt upp i hugann við þessar um- ræður. Það er mér óskiljanlegt að ekki skuli vera veittir handritastyrkir frá kvik- myndasjóði. Sjóðurinn veitir gríðarstóra styrki til undirbúnings kvikmynda, styrki sem kvikmyndagerðarmenn vita oftast ekki hvað gera skal við. Það væri betra að veita smærri upphæðir til handrita- gerðar og sjá svo til að þeim fullgerðum hvort borgi sig að fjármagna framleiðslu þeirra. Það er ódýrt að smíða handrit og leggja það svo til hliðar en það er ekkert smámál að framleiða kvikmynd sem verður svo að einhverjum óskapn- aði. Slíkt hefur því miður gerst. Hvernig líst þér á framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar og þá um leið á framtíð þína sem handritshöfundur? Framtíðin á að geta verið björt. Við erum að eignast fleira og fleira gott fag- fólk en verðum hins vegar að gæta að okkur að taka ekki of stór skref, skrokk- urinn verður að geta fylgt fótum og huga eftir. Ég sé framtíð íslenskrar kvik- myndagerðar fyrst og fremst í samvinnu við erlenda aðila og þá ekki síst Skandin- avíu. Kvikmyndin er alþjóðlegur listmið- ill og hann er mjög dýr. Það er ekki nema eðiilegt að reyna annað en að takmarka sig við markaðssvæði sem er ekki stærra en smábær i útlöndum. Þetta þýðir alls ekki að kvikmyndirnar verði erlendar. Við getum miðlað umheiminum heil- miklu af íslenskri reynslu og aðstæðum. Síðan þarf að athuga möguleika á gerð styttri kvikmynda fyrir sjónvarpsstöðvar, svona 30 eða 60 mínútna langar. Fjöldi sjónvarpsstöðva í heiminum er ótrúlegur og því mikil þörf á alls kyns sjónvarps- efni. Markmið mitt er að geta skrifað eitt- hvað sem skiptir rnáli fyrir fólk, hvort sem það er í formi kvikmyndahandrits eða einhverju öðru. Ég er nokkuð bjart- sýnn þessa dagana, ég hef getað lifað af ritstörfum um nokkurt skeið og hef von um að geta það í framtíðinni. Það er slæmt að þurfa að eyða dýrmætum tíma í brauðstrit. Við hjónin störfum bæði sjálfstætl í kvikmyndagerð svo það er eðlileg von mín að framtíð kvikmynda- gerðar á Islandi sé björt og ég hef þá trú að svo sé. Ég á nóg af hugmyndum fyrir kvikmyndir til að sitja við handritaskrift- ir næstu árin. 37. TBL VIKAN 39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.