Vikan - 10.09.1987, Blaðsíða 47
V
Umsjón:
Úlfar Hauksson
v
gerðirnar. Hins vegar er loftþrýstingur jafn-
an meiri í radial en hjólbörðum af hinum
gerðunum svo þeir virðast dálítið harðari
við vissar aðstæður en skálaga hjólbarðar.
Helsti ókostur radial (þverlaga) hjólbarða
er þó verðið því að þeir eru nokkru dýrari
en skálaga barðar sem líklega skilar sér þó
í meiri endingu og minni eldsneytisnotkun.
Þegar byggingarlagi hjólbarðans sleppir
tekur við annar hálfgerður frumskógur af
mismunandi merkingum. Nokkuð hefur
áunnist í því að samræma merkingar á hjól-
börðum þó ennþá gæti misræmis milli þess
sem tíðkast í Evrópu annars vegar og Amer-
íku hins vegar. Merkingar á hjólbörðum eiga
að veita upplýsingar um stærð barðans og
styrkleika ásamt ýmsu fleiru. Stærðarmerk-
ingar eru margvíslegar. Er þar fyrst að nefna
gamla góða tommumálið, til dæmis 6.00-14
sem þýðir að breidd hjólbarðans (utanmál á
belgnum) er 6 tommur og felgustærðin er
14 tommur (innanmál barðans). Hjólbarðar
með tommumáli eru nær alltaf skálaga.
Ef bókstafur slæðist inn í merkinguna, til
dæmis E70-14, er líklegt að um skálaga barða
með belti sé að ræða. E er breiddin og jafn-
gildir 185 mm. Þessi aðferð er einkum notuð
fyrir vestan haf (G jafngildir þá 205 mm og
svo framvegis). Talan 70 í stærðarmerking-
unni þýðir að hæð barðans frá felgu sé 70%
af breiddinni. Til eru barðar með 60% og
jafnvel 50% hæðar/breiddarhlutfalli. En
þetta er nú of einfalt og því getur sem best
bæst eitt stykki R inn í stærðarjnerkinguna
og hún verður þá E70R-14 sem þýðir það
sama og áður nema hér segir R-ið okkur
að um radial hjólbarða sé að ræða.
En það er ekki allt búið enn. í Evrópu,
gósenlandi staðla og millímetra, tíðkast að
merkja stærð hjólbarða í mm. Verður þá
fyrrgreind stærð 185/70 R 14. Hérer breidd-
in gefm upp í mm eða 185 mm. Til skamms
tíma var svo einn stafur í viðbót sem gaf til
kynna hve vel hjólbarðinn þoldi hraða og
gat dæmið þá verið á þessa leið: 185/70 SR
14 (speed), 185/70 HR 14 (high speed),
185/70 VR 14 (very high speed). Nýlega
hefur þessi aðferð breyst og bókstafur, sem
gefur til kynna hraðaþol barðans, er oftast
ekki settur með stærðarmerkingunni heldur
er hann ásamt tákni fyrir burðargetu hjól-
barðans á öðrum stað á barðanum.
Ef 70 (60 eða 50) merkinguna vantar er
hæðar/breiddarhlutfall hjólbarðans næstum
örugglega 80%. Almennt gildir að breiðari
og lægri hjólbarðar eru betur fallnir til hrað-
aksturs en mjóir. Hins vegar geta breiðir
hjólbarðar reynst varasamir í bleytu því þeim
hættir frekar til að fljóta.
A skýringarmyndinni er reynt að gera
grein fyrir algengustu merkingum á hjól-
börðum eins og þær tíðkast í Evrópu.
Þá tekur við mynstur slitílatar en það er
mjög mismunandi. Oftast er það nú ekki
bara af smekkvísi eða ósmekkvísi sem
mynstrið er ákvarðað af framleiðendum
heldur er venjulega um notagildi að ræða.
Einkum má nefna að mynstur eru misvel
fallin til aksturs í bleytu og þeir sem aka við
slíkar aðstæður þurfa að huga að því. Sama
gildir auðvitað um akstur í snjó, til hans eru
sum mynstur betur fallin en önnur. Að lok-
um má nefna mismunandi gúmmíblöndur,
mjúkar og harðar og allt þar á milli, sem
ætlað er að gæða hjólbarðana mismunandi
eiginleikum, svo sem mikilli endingu eða
góðri viðloðun í hálku og svo framvegis.
Það borgar sig ávallt að vanda val hjól-
barðanna því á þeim hvílir allt hitt draslið
og lengra en þeir komast verður oftast ekki
farið.
HELSTU MERKINGAR Á HJÓLBÖRÐUM
Heiti
Breidd: 185 mm
Hæð/breidd (hlutfall): 70%
Byggingarlag: R (radial)
Innanmál (felgustærð): 14 tommur
Slöngulaus
Buröarþol: 88 (560 kg)
Hraöaþol: H (210 km/klst.)
Gerð (type)