Vikan - 10.09.1987, Side 58
Mælifell er eitt af mörgum tignarlegum fjöllum á Snæfellsnesi. Konungur jöklanna og sólskin i Staðarsveitinni.
}■ *
3ff, - ;
r . r
/ rr
i r I
'
i
■ • r-'ý'- ‘ '
>vr, • ■ yr •
• •***' • v’- *-
‘ -09%;
„Kristnihald undir Jökli.“ Á prestssetrinu Staðastað er legstaður fundinn fyrir lítinn fugl, fórnar-
lamb kisu, við Likatjörn.
„Þar sem jökulinn ber við loft hættir
landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlut-
deild í himninum, þar búa ekki framar neinar
sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsyn-
leg, þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu.“
Svo segir á einum stað í sögunni um Ólaf
Kárason Ljósvíking eftir Halldór Laxness
og mun þar átt við Snæfellsjökul.
Þessi konungur allra jökla á íslandi var
til foma nefndur Snjófell, síðar Snæfell en
loks Snæfellsjökull og þó ýmsir láti sér nægja
að nefna hann einfaldlega Jökul efast fæstir
um við hvem er átt. Jökullinn er þeirrar
náttúru að virðast margfalt stærri og vold-
ugri úr fjarlægð en hann raunverulega er.
Séð frá Reykjavík og víðar, í góðu skyggni,
rís hann tignarlega úr sæ og geislar frá sér
aristókratískum glæsileik - og seiðmögnun.
Þegar að er komið fellur huliðshjálmurinn
og eftir stendur fremur lítið, formfagurt fjall
með geysifallegu litrófi og jökulkúf efst -
og ekki minni seiðmögnun. Allt fram á nítj-
ándu öld var Snæfellsjökull raunar talinn
hæsta fjall á íslandi og sannar það mikilfeng-
leik hans því hann er langt frá því að vera
hæstur eða mestur um sig.
Löngum hefur Jökullinn laðað menn til
sín enda hefur hann um aldir verið talinn
búa yfir einhvers konar dulmögnun. Erlend-
ir dulspekingar segja hann búa yfir mestri
orku allra fjalla og telst hann því meðal sjö
mestu orkustöðva heims. Mikið er um að
fólk, víða að úr heiminum, gangi á Jökulinn
eða freisti þess að meðtaka orkuna í nám-
unda við hann. Dæmi er um einn slíkan
pílagrím erlendis frá sem kom fjögur sumur
í röð áður en hann varð fyllilega ánægður.
Hann sá nefnilcga ckki sjálfan Jökulinn fyrr
en í fjórða sinn vegna rigningar og súldar.
Nýlega hélt svo Þrídrangur Ijölmennt al-
þjóðlegt mót undir Jökli.
Fjölmargar gamlar sagnir eru til um fjöl-
kynngi og dularfulla atburði undir Jökli og
máttur Jökulsins hefur haft áhrif á mörg
skáldin. A siðustu öld skrifaði til dæmis
franski rithöfundurinn Jules Verne hina
frægu skáldsögu LeyndardómarSnæfellsjök-
uls og í verkurn Halldórs Laxness, Kristni-
haldi undir Jökli og Heimsljósi, leikur
Jökullinn stórt hlutverk. Fræg er og sagan
um Bárð Snæfellsás sem skráð var á fjórt-
ándu öld. Bárður þessi heillaðist svo af
Snæfellsjökli að um síðir hvarf hann í Jökul-
inn og bjó þar í helli. Varð hann verndari
byggðarlagsins og tekinn í goðatölu. Mörg
kraftaskáldin eru ættuð undan Jökli, má þar
nefna Kolbein jöklaskáld sem kvað kölska
í kútinn við Þúfubjarg. Kölski strandaði á
að botna fyrripart hjá Kolbeini sem sat með
N
58 VI KAN 37. TBL