Vikan - 10.09.1987, Page 62
KirkjugarðHellnamannaberhérvið Jökulinn. Frá Dagverðará. Ekki hefur verið amalegt út- Jökuliinn enn, nú séður frá Háahrauni. Form-
sýnið hans Þórðar refaskyttu. fagur, litfagur, seiðmagnaður.
fremur líkingasaga. Meiningin væri ekki sú
að hægt væri að komast niður Jökulinn og
upp annars staðar heldur væri beint samband
frá Jöklinum, sem orkustöð, til annarra
orkustöðva. Jafnframt sagði hann að frá
Jöklinum stafaði mikil orka og sá hér ýmsar
verur á sveimi.“
Hér hefur einungis verið dvalið við sögur
undan Jökli en Snæfellsnesið á vissulega skil-
ið að vera dásamað fyrir fleira en margnefnd-
an Jökul. Þar er Qölbreytt landslag og
náttúrufegurð mikil. Hér á myndasíðunum
verður stuttlega staldrað við á sunnanverðu
nesinu en þar skiptast á grösugar sveitir og
úfin hraun, klettar, gullnir sandar og fjöl-
skrúðugur gróður. Um tíma hefur þar að
mestu verið stundaður búskapur þó áður
hafi róðrabátaútgerð verið með hvað mest-
um blóma á þessum stað. En bændum
fækkar á Snæfellsnesi sem annars staðar en
um leið eflast forn sjávarpláss eins og Helln-
ar og Arnarstapi. Og jafnvel er nú róið frá
Búðaósi. Myndefnið nær frá Staðastað í
Staðarsveit og allt til Beruvíkur í Breiðuvík-
urhreppi - sumsé farið „framan undir" eins
og heimamenn segja þegar farið er vestur
fyrir Jökul.
62 VIKAN 37. TBL
\