Vikan - 15.09.1988, Page 17
í LOFTINU
Lœtyfirleitt
altt flakka
- segir Margrét Hrafnsdóttir
dagskrárgerðarmaður
TEXTI: SVALA JÓNSDÓTTIR
LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON
A útvarpsstöðinni Bylgj-
unni hafa verið miklar
mannabreytingar
JL JL. undanfarið og hafa
nýjar raddir heyrst þar í aukn-
um mæli. Ein af þessum nýju
útvarpsröddum er Margrét
Hrafnsdóttir, 18 ára Vesturbæ-
ingur og nemi við Menntaskól-
ann í Hamrahlíð, þar sem hún
stundar nám á nýmálabraut.
„Ég hafði alltaf haft áhuga á
að gera eitthvað skemmtilegt
og var búin að velta starfl við
útvarp talsvert fyrir mér þegar
Bylgjan auglýsti eftir fólki í
vor. Ég skellti mér í prufu, lét
Ijós mitt skína í flmmtán mín-
útur og var ráðin samdægurs,"
sagði Margrét í samtali við Vik-
una. „Fyrsta útsendingin mín
var svolítið söguleg, rétt áður
en þátturinn átti að byrja var
enginn kominn til að vera mér
til halds og trausts. Sá sem átti
að aðstoða mig tafðist úti á
flugvelli, þannig að ég og
stelpa á auglýsingadeildinni
ætluðum bara að ráðast einar í
þetta. En hann kom á síðustu
mínútunni, þannig að ég stökk
inn og kynnti mig og þetta
gekk eins og í sögu.“
Rafmagnið fór af
Margrét heíúr verið með
þriggja tíma þætti alla virka
daga og fimm tíma á laugar-
dögum í sumar, en mun verða
um helgar í vetur. Hvað leggur
hún mesta áherslu á í þátta-
gerðinni?
„Ég er með viðtöl við alls
konar fólk, símatíma þar sem
ég spjalla við hlustendur, ég
tek fýrir íþróttir og það sem er
að gerast hverju sinni. Síðan
hef ég tekið viðtöl við nýjar
hljómsveitir og komið þeim
og nýjum Iögum á ffamfæri, en
að öðru leyti spila ég alla
tónlist, það eru engin takmörk
í þeim efnum.“
— Nú ert þú langyngsti dag-
skrárgerðarmaðurinn á Bylgj-
unni og þótt víðar væri Ieitað.
Hvernig hafa starfsfélagar þínir
tekið þér?
„Þeir hafa tekið mér eins og
hverjum öðrum, mjög vel. Ég
hef kannski þurft að sanna mig,
ég var ráðin beint inn af göt-
unni þannig að það er eðlilegt.
Ég er mjög þakklát lærimeist-
urum mínum á Bylgjunni sem
eru Pétur Steinn og Páll Þor-
steinsson, þeir hafa þjálfað mig
og verið mér innan handar frá
byrjun.
— Hefur eitthvað skemmti-
legt komið íyrir þig í útsend-
ingu?
,Já, það kom nokkuð fyrir
þegar ég var ein á laugardags-
næturvakt, þó að það hafl
kannski ekki verið skemmti-
legt fýrr en eftir á. Rafmagnið
fór af húsinu, en ekki útsend-
ingin. Ég hljóp niður að leita
að töflu og fann hana en tók þá
út útsendinguna. Ég hljóp aft-
ur niður og kveikti, þetta hefur
tekið svona þrjár mínútur. Ég
sagði bara að plötuspilarinn
hefði bilað, þannig að enginn
gerði sér grein fyrir að útsend-
ingin hefði dottið út.“
Aðspurð um áliugamál seg-
ist hún hafa áhuga á mörgu, en
nefiiir þó dans, veggjatennis
og ræðumennsku, en hún var í
ræðuliði í Verslunarskólanum
þegar hún var við nám þar.
Margrét segist fýlgjast mikið
með stjórnmálum og hafa mik-
inn áhuga á þeim, enda sé hún
alin upp við stjórnmálaum-
ræðu á sínu heimili. „Svo hef
ég líka áhuga á erlendum
poppstjörnum og er að fara að
taka mitt fýrsta viðtal við eina
slíka á morgun, Maxi Priest. Ég
hef mjög gaman af reaggetón-
list og hlusta mikið á hana,
einnig er Cock Robin í uppá-
haldi. En þegar ég er búin að
vera allan daginn á Bylgjunni
Margrét Hrafnsdóttir í útsendingarstúdíóinu:
„Fyrsta útsendingin mín var svolítið söguleg
set ég oft góða plötu með
þverflaututónlist á plötuspilar-
ann sem mótvægi. Ég lærði á
þverflautu í mörg ár en er hætt
í bili.“
Sœkir í sviðsljósið
Margrét er í sambúð og heit-
ir kærastinn hennar Andrés
Helgi Hallgrímsson, nemi í
viðskiptaffæði við Háskóla
íslands. Hún segir að þau séu
með ólíka skapgerð, hann sé
hlédrægur en hún opin og
hreinskilin, jafnvel um of. „Ég
er ofboðslega ófeimin, vinir '
mínir segja að ef það er eitt-
hvað sem enginn þorir að gera
þá geri ég það. Ég er líka mjög
hreinskilin, læt yfirleitt allt
flakka og er þess vegna um-
deild. Ég er steingeit og eftir
því sem ég hef heyrt um merk-
ið þá passar það ágætlega við
mig. Þær vilja komast á topp-
inn og gera það þó það kosti
aðra eitthvað. Ég hef yfirleitt
munninn fýrir neðan nefið og
hef skoðanir á hlutunum, en
öll leiðindi koma mjög illa við
mig, ef eitthvað slíkt kemur
upp vil ég helst fara heim.“
— Stefnir þú þá á toppinn?
„Allavega hálfa leið! Ég er
komin með fjölmiðlabakter-
íuna og það kemur fátt annað
til greina í ffamtíðinni. Senni-
lega fer ég í nám tengt fjöl-
miðlum, ég hef áhuga á að
vinna við sjónvarp, þá jafnvel
sem fréttamaður en þó ffekar
við dagskrárgerð. Ég er ekkert
að fela það að ég nýt mín í
sviðsljósinu og mér líður hálf-
illa ef fólk veit ekki hver ég er.
Ég laðast líka að störfúm þar
sem ég get látið á mér bera og
ég held að þeir sem sækjast í
fjölmiðla og skyld störf vilji
yfirleitt láta Ijós sitt skína .“
— Þannig að við megum
eiga von á því að sjá þig á
skjánum eftir nokkur ár?
“Það er aldrei að vita.“ □
VIKAN 17