Vikan - 15.09.1988, Page 27
—■----
í „beinni sjónvarpsútsendingu“
Óvenjulegur blaðamannafundur í Köln. Degowski spjallar við fréttamenn og miðar byssu að
hálsi Silke meðan á samtalinu stendur.
Var á leið til piltsins,
sem hún ætlaði að giftast
Fjórum mánuðum og
•níu dögum áður en
Silke Bischoff var drep-
in hafði hún sagt við mömmu
sína: — Hvað mynduð þið gera,
mamma, ef þetta væri ég? Þær
mæðgur sátu fyrir framan sjón-
varpið og horfðu á þegar flug-
ræningjarnir köstuðu líki út úr
flugvél frá Kuwait á flugvellin-
um á Kýpur. Silke, sem var 18
ára, bætti við: - Mamma,
mynduð þið halda áfram að
þykja vænt um mig ef ég væri
dáin?
Og nú er hún dáin, banka-
ræningi skaut hana eftir að lög-
reglan yfirbugaði hann og fé-
laga hans og vinkonu þeirra á
hraðbrautinni milli Siegburg
og Bad Honnef. Móðirin græt-
ur dóttur sína og segir blaða-
manni sögu hennar og sýnir
um leið myndir af dótturinni
eins og hún var en undanfarna
daga hafa sjónvarpsáhorfendur
og blaðalesendur fengið að sjá
myndir af skelfingu lostinni
stúiku, gjörólíkri þeirri stúlku,
sem móðirin þekkti best.
Hún vissi að hún
var falleg
Myndirnar eru af dökkliærði
stúlku með stór og falleg augu
og rauðmálaðan munn - af
ungri stúlku sem veit að hún
er falleg og að fólk dáist að
henni. Og það var einmitt
þessi fegurð og þetta sjáffs-
öryggi sem vakti athygli ræn-
ingjans á Silke og varð til þess
að hún lét lífið að lokum.
Miðvikudaginn 17. ágúst
lauk Silke vinnu sinni klukkan
fimm. Hún var klædd í svarta
peysu og svart pils, en svart
var hennar uppáhaldslitur.
Klukkan sjö ætlaði hún að hitta
Ines Voitle vinkonu sína á
strætisvagnastöðinni en fyrst
fór hún í búð. Vinkonurnar
ætluðu að horfa saman á vídeó
um kvöldið en að því búnu
hugðist Silke fara til Henriks
vinar síns og vera hjá honum
um nóttina. f>au voru vön að
hittast á miðvikudögum. Ines
er komin á stöðina, þegar Silke
kemur þangað og þær fara báð-
ar upp í vagn nr. 53 og setjast
niður. Skothvellir heyrast
skyndilega. Tveir menn og ein
kona koma þjótandi inn í vagn-
inn og ýta á undan sér manni
og konu og ógna þeim með
byssum. Silke og Ines eru bæði
hræddar og forvitnar. Dieter
Degowski, annar ræninginn,
veitir Silke strax eftirtekt og
dregur ekki dul á að honum
fellur stúlkan vel í geð.
Ætlaði að
giftast Henrik
Silke hefði orðið 19 ára
gömul 9. september og hún
hafði ævinlega verið glöð og
hress stúlka. Móðir hennar,
Karin sem er lyfjafræðingur,
var ógift þegar hún átti Silke
og í byrjun bjuggu þær mæðg-
ur hjá afa hennar og ömmu.
Karin giftist þegar Silke var
fimm ára og stofnaði heimili
með Peter manni sínum og
Thomasi syni hans af fyrra
hjónabandi. Silke fluttist ekki
með henni heldur bjó áfram
hjá afa og ömmu sem gátu ekki
af henni séð. Hún eyddi þó öll-
um helgum á heimili móður
sinnar og lék sér við stjúp-
bróðurinn sem var jafnaldri
hennar. Foreldrar hennar og
Frh. á bls. 30
Silke og Ines höfðu verið vinkonur frá barnæsku. Á gömlu myndinni til hægri sjást þær leika „Mynduð þið halda áfram að
sér með hvolpana sína. Myndin til vinstri sýnir þær svo í bíl ræningjanna. Stúlkumar voru, þykja vænt um mig ef ég væri
þegar hér var komið sögu, farnar að trúa því að þeim yrði sleppt. dáin,“ hafði Silke spurt.
VIKAN 27