Vikan


Vikan - 15.09.1988, Side 44

Vikan - 15.09.1988, Side 44
„Fergie góð móðir“ - fullyrðir faðir hennar, Ronnie Ferguson Sara Ferguson og Andrew prins halda heim af fæðingardeildinni með dótturina og stoltið leynir sér ekki. MARlA SIGURÐARDÓTTIR ÞÝDDI — Dóttir mín er hlý, viðkvæma — og hún elskar börn. Hún er þannig að hún mun verða yndisleg móðir. Ronnie Ferguson major hlakkar mikið til ágústmánaðar, en þá mun dóttir hans — Sarah Ferguson — eftir tímatali, fæða fyrsta barn þeirra hjóna. Daginn sem Buckinghamhöll gaf út til- kynningu um að Fergie og Andrew ættu von á sínu fyrsta barni, urðu sögusagnirnar að veruleika, - þá var hinn verðandi afi staddur í 20.000 kílómetra fjarlægð — á austurlensku hótelherbergi. Hann var að undirbúa sig til að fara á viðhafnarsýningu með Charles og Díönu — prinsinum og prinsessunni af Wales. Á meðan Ronnie lagfærði hálsbindi og greiddi yflr grátt hárið, vissi hann mætavel að leyndarmálið sem hann hafði geymt í fleiri vikur, yrði nú afhjúpað. Nokkrum klukkutímum seinna kom til- kynning frá Buckinghamhöll í London, að Sarah væri barnshafandi. Englendingar fögnuðu þessu, vegna þess að hin fríska og freka Fergie er vinsæl stúlka í þessu gamla kongusdæmi. Ronnie Fegurson er tilbúinn að gera allt til að vernda dóttur sína. Hafl Sarah sagt föður sínum frá leyndarmáli — þá er hann maðurinn sem hún getur treyst. — Ég hef aldrei verið í vandræðum með að varðveita leyndarmál. Þegar dóttir mín sýnir mér þann trúnað að treysta mér fyrir því sem ekki má fréttast, þá veit hún að það er vel geymt hjá mér, segir Ronnie Ferguson. Varir hans eru vel lokaðar þegar hann er spurður um, hvernig, og hvenær dóttir hans hafi sagt honum frá þvi að hún ætti von á barni. — Ég mun aldrei segja frá því, það var einkasamtal milli föðurs og dóttur, segir hann ákveðinn. — Dóttir mín er lánsöm. Margar konur eru þreyttar og hafa ógleði á meðgöngu- tímanum. Eftir að hafa eignast flmm börn, þekki ég þetta vel. En Sarah hefur ekkert af þessum einkennum, segir Ronnie Fergu- son. Hann er áberandi hreikinn af dóttur sinni, en gleymir ekki að nefna systir hennar, Jane. Hún býr í hinni austurlensku eyðimörki, og það var hún sem Ronnie var að heimsækja, þegar gefin var út tilkynn- ingin frá bresku konugsfjölskyldunni, þess efnis að Sarah ætti von á barni. - Ferguson major, sá til þess að Jane kæmi fljúgandi til Sydney, svo að þau gætu verið saman, þegar tilkynnt var að Sarah ætti von á barni, segir einn vinur íjölskyld- unnar. Ronnie Ferguson er — eins og faðir Di- önu, Spencer jarl — giftur í annað sinn. Það er náið samband á milli Sarah og hálf-systkina hennar, þeim Alice, Elizabeth og Andrew. Synir Charles og Diönu elska að leika við Sarah, sem alltaf flnnur upp á einhverju skemmtilegu. — Sarah er vön að umgangast börn. Hún verður ábyggilega umhyggjusöm móðir, sem mun halda áfram að gegna skyldu- störfum sínum, eftir að hún hefur fætt. Og þó að Jane sé 20.000 kílómetra í burtu, og getur ekki leiðbeint henni, eða geflð henni góð ráð, viðvíkjandi litla barninu, þá eru það svo margir aðrir sem Sarah getur leit- að til. Hún getur leitað til móður sinnar, sem veit allt um börn, — segir hinn verð- andi afl. Nokkrum vikum eftir að Sarah fæðir barnið, (sem Englendingar hafa geflð nafn- ið Yorkie) munu þau hjónin fara í heim- sókn á búgarðinn til Jane systur hennar, sem býr í hinni austurlensku eyðimörk. Það var ákveðið að fara í þetta ferðalag fyr- ir löngu síðan. Það er fastlega reiknað með að þau láti verða af því, - þrátt fyrir hinn unga aldur barnsins, (Yorkies). Auk heimsóknarinnar til systur sinnar, bíða hennar mikið af skyldustörfum, eftir að hún er orðin móðir. Þetta getur orðið erfitt, ef barnið vill fá mjólkina sína, — á meðan prinsessan af York er að sinna skyldustörfúm, innan um prúðbúið fólk. - Þegar þau fara í ferðalagið, þá verður barnfóstra með, sem mun sjá um að hita pelann, og annast um barnið, þegar móðir- in er ekki við. — Það er ástæðulaust fyrir Sarah að hætta við ferðalagið. Ég reikna fastlega með að hún taki litla barnið með sér, — svo frarnar- lega sem ekki koma upp nein veikindi, — segir Ronnie Ferguson, sem ekki hefur ákveðið enn hvort hann kenni barnabarni sínu að spila Poló. Ronnie er mjög leikinn í þeirri íþrótt. — Það verður fyrst að koma í Ijós hvort þetta verður drengur eða stúlka, — segir hinn eftingarfulli afi hlægjandi. 42 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.