Vikan - 15.09.1988, Blaðsíða 46
Unglingarnir spyrja...
Hvernig passa saman
strákur og stelpa sem...
Kæri póstur!
Ég ætla að byrja á því að þakka fyrir gott
blað, svo langar mig til þess að vita hvern-
ig strákur sem fæddur er 1. ágúst 1973
passar við stelpu sem er fædd 25. nóvem-
ber 1973- Síðan langar mig til að vita hvern-
ig stelpa sem er fædd 13. ágúst 1974 pass-
ar við strák sem er fæddur 10. mars 1972?
Með von um birtingu,
Eva
Þakka þér fyrir bréfið Eva. Pósturinn vill
minna þig, og alla aðra sem langar að vita
hvemigfólk í viðkomandi stömumerkjum
þassa saman, að í 10. tbl. Vikunnar, sem
kom út 7. apríl 1988, þá birtum við töflu
þar sem hœgt er að sjá þetta á augabragði.
Eigir þú, og aðrir sem ábuga hafa, ekki
þetta b/að þá geturðu fengið það ke)>pt
héma íafgreiðslunnihjá okkur... það gœti
komið sér velþegarþú vilt fá að vita þetta
um nœsta strák.
Að þessu sinni mun þósturinn þó svara
þér og samkvœmt ofangreindri töflu þá á
parið í fyrti spumingunni illa saman (fá
einkunnina 3.78) og það síðara á sœmi-
lega saman (fá einkunnina 6.23).
Ég elska hann
svo mikið
Kæri póstur!
Ég vona svo innilega að þú getir hjálpað
mér! Þetta er útaf strák sem ég var með í
vetur, sem ég elska svo óútreiknanlega
mikið. Við skulum kalla hann Y. Hann var
á sjó hérna í vetur, í þessum litla bæ, og
bjó hjá frænku sinni og frænda mínum.
Áður en hann var með mér var hann
með stelpu sem við getum kallað X, sem
hann hætti við þegar við byrjuðum að vera
saman af því við elskuðum hvort annað
svo mikið!
En hann var með nokkrum stelpum líka
hér í bænum (ekkert alvarlegt), en þegar
hann var með bestu vinkonu minni þá
hrundi þetta allt saman. Ég talaði ekkert
við vinkonu mína í langan tíma og hafði
ekkert samband við hann heldur. Þangað
til seinna að ég spurði hann út í þetta og
hann sagði mér sannleikann og ég fyrirgaf
honum — og vinkonu minni.
Svo fór hann á sjó annars staðar og bjó
hjá skyldfólki sem hann er oftast hjá á
sumrin, en í sama bæ á gamla kærastan
heima. Við vorum búin að ákveða að vera
í sambandi, en fyrir stuttu þegar ég spurði
hann hvort hann væri farinn að vera með
gömlu kærustunni aftur, þá sagði hann já!
Hann sagði líka að hann elskaði hana núna
og okkar samband væri búið. En elsku
póstur, ég get ekki lifað án hans og ég
sakna hans svo mikið. Mér fmnst líka
stundum að hann elski hana ekkert og
flnnist hann bara skyldugur til að vera
með henni.
Elsku póstur, ekki segja mér að gleyma
honum. Það get ég aldrei. Gefðu mér góð
ráð því það mun aldrei vera neinn annar.
P.s. Kannski kemur hann hingað í vetur.
Ein að deyja úr ástarsorg
Hvernig heldurðu að sambandið yrði hjá
þérogYíframtíðinni, efþúfengirhann til
þín aftur? Eftir smátíma, jafnvel nœsta
kvöld, vœri hann kominn með aðra —
jafnvelþó hann segðiþér aðþað vœri ekk-
eri alvarlegt. Hann er búinn að sýna þér
hvað honum finnst um þig: honwn er al-
veg sama um þig og þínar tilfinningar.
Hann segir annað á þeim stundum sem
það hentar honum - og fer svo sína leið.
llugsaðu um það hvemig hann hefur í
rauninni komið fram; skrifaðu það niður
— og spurðu þig svo hvað er það við hann
sem gerir hann þess virði að þú elskir
hann. Láttu svo ekki nota þig svona aftur.
Pennavmir
Miss Vida Arthur
P.O. Box 1045 Cape Coast
Ghana
West Afirica
Hún er 25 ára og hefur áhuga á tónlist,
körfúbolta, dansi, gjöfúm, hjónabandi,
póstkortum, ferðaiögum og matreiðslu.
Hvern hefúr ekki dreymt um að koma
til Tahiti? Hér er bréf ffá þeirri fögru eyju.
Kona þaðan óskar eftir pennavini, karli
eða konu, sem hafa sömu áhugamál og
hún og hefðu áhuga á að koma og heim-
sækja eyjuna hennar. Hún segir ekki til um
aldur en áhugamálin eru dálítið sérkenni-
legs eðlis, enda alþekktir Voodoo galdra-
mennirnir á Tahiti: Ævintýri, gamlar
hefðir, forn menning, Atlantis, spíritismi,
grænmetisfæði, framtíðin, geimskip, og í
tónlist hefur hún gaman af syntheziser.
Skrifið á ensku til:
Patricia Rommelaere
BP 161 Vaitape Bora Bora
Polynesie Francaise
Tahiti
Agnarlítið bréf barst ffá 12 ára stúlku í
Finnlandi sem óskar eftir pennavinum.
Hún skrifar á ensku og hefúr áhuga á
íþróttum og lestri.
Eija Hallikanien
95365 Maula
Finland
Annað bréf frá Finnlandi, einnig frá
flnnskri stúlku. Hún vill skrifast á við jafn-
aldra sína, þ.e. á aldrinum 14-16 ára, en
hún er 15 ára. Hún hefúr áhuga á tónlist,
(pop, diskó og rock) Slalom, bréfaskriftir
og fleiru. Skrifið á ensku til:
Páivi Heikkinen
Knaapaksentir 15
06400 Porvoo
Finland
Frá Teheran kom bréf frá fjórum þarlend-
um sem óska eftir pennavinum, því miður
var afar erfítt að lesa skriftina þannig að
ekki er víst að allar óskir þeirra komi hér
fram, en þau virðast hafa áhuga á frímerkj-
um, mynt, tungumálum og viðskiptum.
Nöfnin eru :
1. Mrs. Fateme Gharantoli
2. Miss Manzelat Shadroo
3. Mrs. Fareghe Hasemi
4. Miss Nazanin Abtahi
5. Mr. Akbar Kuroorie
Heimilisfangið er það sama fyrir þau öll og
þangað er einnig hægt að skrifa til að óska
eftir pennavinum og hvers konar tengsl-
um í íran:
Distribution by Post
Box 14455-345
Teheran
IRAN
I
UTAhÁSKRIFT: VIIW1, PÓSTURIhh PÓ5TMÓLF 5344, MÁALEITI5BRAUT 1, 105 REYMJAVÍK
44 VIKAN