Vikan - 15.09.1988, Side 49
Bræðumir Emest og Julio Gallo sem em
orðnir 78 og 79 ára gamlir stjórna ennþá fyrir-
tækinu sem er það stærsta sinnar tegundar í
heiminum.
Brœðurnir sem urðu
stœrstu vínframleiðendur heims
TEXTI:
ADOLF ERLINGSSON
anna á markaðinum, Blush
Chablis, en á einungis fjór-
um árum náði salan 80
milljónum htra í Bandaríkj-
unum. Þrátt fyrir litinn er
hér um hvítvín að ræða.
/
Jk rið 1933 þegar bræð-
urnir Ernest og Julio
/ % Gallo ákváðu að snúa
JL sér að víníram-
leiðslu í kjölfar andláta for-
eldra sinna efhdu þeir til
veðmáls. Julio sem átti að sjá
um lfamleiðsluna hélt því ffam
að hann gæti framleitt meira
vín en Ernest gæti selt. Emest
var aftur á móti með það á
hreinu að hann gæti selt svo
mikið vín að Julio gæti ekki
annað effirspurninni. í dag,
rúmlega hálfri öld síðar, stjóma
þessir bræður stærsta vín-
ffamleiðslufyrirtæki í heimi,
E & J Gallo.
Faðir þessara einstöku at-
hafhamanna var ítalskur inn-
flytjandi í Bandaríkjunum sem
settist að nálægt bænum Mod-
esto í Kaliforníu. Honum varð
tveggja sona auðið og var ein-
ungis ár á milli þeirra. Ernest
fæddist árið 1909 og Julio ári
seinna. í uppvextinum unnu
strákarnir með föður sínum á
vínekrunum og lærðu vel
undirstöðu þess að vegna vel í
lífinu; að leggja mikið á sig.
Með bœklinga að
leiðarljósi
Þegar drengirnir voru ein-
ungis rúmlega tvítugir að aldri
misstu þeir foreldra sína í slysi
og tóku við rekstrinum á vín-
ekmm föður síns. Á þeim
árum var nýbúið að aflétta
áfengisbanninu sem hafði ver-
ið í Bandaríkjunum um árabil
og ævintýralöngunin réði því
að þessir ungu athafnamenn
ákváðu að steypa sér út í vín-
framleiðslu í stað vínberja-
ræktunar. Veganesti þeirra var
6000 dollarar, nokkrir bækl-
ingar um víngerð og vilji til að
leggja hart að sér.
Með því að vinna í Iitlum
skúr og halda allri vinnu innan
fjölskyldunnar tókst þeim að
halda verðinu á víni sínu í
helmingi þess sem gerðist á
markaðinum, en samt sem
áður að vera með gróða uppá
yflr 30.000 dollara fyrsta árið
sem var dágóð upphæð á
kreppuárunum í Bandaríkjun-
um. Ekki var þó lifað hátt fyrir
gróðann því hvert einasta sent
fór beint aftur í reksturinn. Þar
var strax lagður grundvöllur-
inn að því sem er aðalstyrkur
fyrirtækisins í dag, ekki að
skulda neinum neitt. Á þeirri
rúmlega hálfu öld sem fyrir-
tækið hefur starfað hefur að-
eins einu sinni verið leitað til
utanaðkomandi aðila til að afla
fjár, á sjötta áratugnum þegar
ákveðið var að reisa verk-
smiðju þar sem öll vinnslan
gæti farið fram á einum stað.
Að öðru leyti hafa allar ffarn-
kvæmdir við fyrirtækið verið
fjármagnaðar með rekstraraf-
gangi fyrri ára.
Með árunum og gífurlegri
vinnu bræðranna óx fyrirtækið
og dafhaði hægt og rólega, ein-
mitt á réttum hraða til að full-
nýta gróðann en án þess að
leggja út í ofíjárfestingar.
Undirstaða var þó að miklu
leyti dugnaður Ernest sem sá
um dreifinguna. Innan vín-
bransans í Bandaríkjunum
ganga margar sögur af þessum
gamla járnkarli, hvernig hann
mætti sjálfur einn daginn hjá
einhverjum dreifmgaraðila
sinna og fór með honum í
verslanirnar þar sem hann
kannaði sjálfur hvernig vínin
hans voru staðsett í búðunum,
ræddi við verslunareigendur
um hvaða vín seldust best og
hverjir það væru sem keyptu
hvaða vín. Með því að vera í
svona nánum tengslum við
markaðinn hefur Ernest Gallo
alla tíð tekist að sjá fýrir sveifl-
ur á markaðinum og verið á
undan öðrum að mæta þeim
sveiflum með breyttri fram-
leiðslu.
Svaf innan um róna
til að selja
Þessi eldmóður braut-
ryðjandans smitaði út frá sér
og sölumenn Gallo fýrirtækis-
ins hafa alla tíð haft orð á sér
fyrir að vera þeir bestu á þessu
sviði. Einn fyrrverandi sölu-
maður hefur sagt frá því að
hann bjó með rónum í þrjá
daga til að koma þeim upp á að
drekka Gallo vín og þegar ný
tegund kom á markaðinn
dreifðu þeir tómum flöskum
um göturnar til að rónarnir
VIKAN 47