Vikan - 15.09.1988, Page 52
' Blow Monkeys
A TUNGLINU?
Blow Monkeys komu
hingað til lands á Listahát-
íð, sællar mmningar.
Hljómsveitin er nú að
senda frá sér sína fjórðu
tireiðskífu. Hefur hún feng-
ið nafnið „Whoops, There
Goes The Neighbour-
hood“.
Dr. Robert forsprakki
Blow Monkeys er mjög pól-
itískur í textum sínum og
hefur skoðun á öllu sem
varðar mannleg og stjórn-
málaleg samskipti. Lög
eins og „She Was Only A
Grocer’s Daughter“ er
dæmium það; lag sem fjall-
ar um stjórnarfarið í Bret-
landi undir stjórn Mar-
grétar Thatcher. Hann
hefur einnig ákveðnar
skoðanir á peirri tónlist
sem er hvað vinsælust í
Bretlandi um þessar
mundir. Hljómsveitir eins
og Bros og Wet Wet Wet
eiga ekki upp á pallborðið
hjá honum. Bn hvað þá? Jú
í uppáhaldi eru hljómsveit-
ir eins og Puplic Enemy,
sveitir sem nota tónlistina
til að koma á framfæri
skoðunum í pólitískum til-
gangi.
Dr. Robert var spurður
að því á dögunum hvort
Blow Monkeys hefði
heimsótt einhverja óvenju-
lega staði á tónleikaferð
sinni. Dr. Robert svaraði
mn hæl að þeir hefðu spil-
að á íslandi og að landið
væri fallegt land á tungl-
inu. □
Segðu sæghita
Það má vera að þú þekkir
ekki nafnið en þú hefur
örugglega heyrt röddina.
Siedah Garret er 25 ára
og var að senda frá sér sína
fyrstu plötu sem heitir
K.I.S.S.I.N.G. Hún söng
með Dennis Edwards lag-
ið Dont look any further
og með Michael Jackson
I just can’t stop loving
you. í upphafi var henni
falið að semja lag fyrir
Jackson og hún velti því
lengi fyrir sér um hvað
ætti að syngja. Þegar hún
skilaði inn prufuupptöku
af laginu varð Jackson
svo hrifinn að hann bað
hana að syngja með sér
tyrrnefnt lag. Hún hefur
hæfileika sem ekki finnast
á hverju götuhorni. Hún
var valin úr hópi 800 um-
sækjenda til að syngja í
diskóflokki sem settur var
á laggirnar fyrir tilstuðlan
Quincy Jones. Hann að-
stoðar hana á þessari nýju
plötu ásamt Rod Tempert-
on tveir menn sem eiga
stóran þátt í vinsældum
Michael Jackson. Þegar
Siedah er spurð hvernig
hún vilji hafa framtíðina
svarar hún. „Ég vil vera
jafnlengi í tónlistinni og
Stevie Wonder, fjölbreyti-
leika Diana Ross og
Barhra Streisand og
höfða til svipaðs fjölda og
Michael Jackson. Þegar
hún segir þessi orð er vitað
að hún ætlar sér meira en
að „vera með“ í poppinu.