Vikan - 15.09.1988, Qupperneq 55
Caroline prinsessa er talin líklegur arf-
taki furstadæmisins og fáguð framkoma
hennar og persónutöfrar heilla alla. Stóru
bláu augun hennar geisla af sjálfsöryggi og
áhuga og fólk verður sem bergnumið þeg-
ar það horflr í þau. Hún á ekki í vandræð-
um með að tjá sig og undirstrikar meðal
annars það sem hún vill segja með handa-
hreyfingum á firanskan máta. Húð hennar
glóir undir örlitlum farða, röddin er mjög
þýð. Hún reynir að lagfæra óstýrilátan hár-
lokk annað siagið. Eitt af því sem er aðlað-
andi við hana er hvað hún er eðlileg.
Skyldur hennar eru margvíslegar. Hún
þarf að vera viðstödd frumsýningar, óper-
ur, koma ffam á lista- og danshátíð sem
haldin er á hverju ára af líknarstofnun
Grace prinsessu, þá á skátahreyfingin hana
að, en hún tekur mikinn þátt í starfi skáta.
Síðan er það Rauðakrossballið sem haldið
er í águst og rósadansleikurinn í mars. Á
þessum dansleikjum er hún hin ókrýnda
drottning.
„Mér líkar vel starf mitt,“ segir hún um
leið og hún leggur jakkann sinn á stólbak.
„Ég næ því að sinna öllum mínum
skyldum. Ég skipuiegg tíma minn, gef mér
tíma til að vera eiginkona og börnin fá
góðan tíma hjá mér, þau eru númer eitt.
Pessu öllu get ég sinnt vel með hjálp dug-
legs einkaritara sem hjálpar mér með
góðri skipulagningu til að inna allt þetta af
hendi.“
Caroline var þvinguð inn í það hlutverk
„Ég næ því að sinna öllum minum
skyldum. Ég skipulegg tíma minn, gef
mér tíma til að vera eiginkona og bömin
£á góðan tíma hjá mér. Þau eru númer
eitt,“ segir Caroline prinsessa, sem hér
sést ásamt bömum sínum þrem. Hún er
talin liklegur arftaki furstadæmisins.
Hún sinnir skyldum sinum á aðlaðandi
og eðlilegan hátt, með sama fallega
brosinu og móðir hennar gerði.
sem hún gegnir í dag, eftir að móðir henn-
ar lést í bílslysi lyrir fimm árum. Þegar
Grace prinsessa dó héldu margir að mest-
ur glansinn væri farinn af furstaríkinu og
það myndi gleymast fljótlega. En Caroline
hefur orðið til þess að þeir spádómar hafa
ekki ræst.
„Grace prinsessa átti drjúgan þátt í því
að gera Mónakó að þekktu ríki. Það opnaði
einnig augu okkar fýrir því sem var að ger-
ast í heiminum," segir Jean Charles Rey,
leiðtogi löggjafarþingsins í landinu. „Caro-
line prinsessa tók við hlutverki móðir
sinnar og leysir það samviskusamlega og af
einstakri ábyrgð.“
Caroline prinsessa sinnir sínum kon-
unglegu skyldum á aðlaðandi og eðlilegan
hátt, með sama fallega brosinu og hin
bandaríska móðir hennar gerði. Það er
ekki hægt annað en að taka effir því hvað
Caroline prinsessa líkist þeim myndum af
Grace prinsessu, sem prýða marga veggi
VIKAN 53