Vikan - 15.09.1988, Page 66
HARRY BELAFONTE MEÐ NÝJA PLÖTU:
„Endurspeglar tungumál,
táknmál líkamans, huga og
hjörtu fólksins í Suður-Afríku“
ÞÝÐING: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
Hvað er Harry Belafonte að gera
þessa dagana? Jú, ekki alls fyrir löngu
kom út ný plata með kappanum og er
það hans 37. hljómplata. Þessi nefnist
Paradise in Gazankulu og er hún með
hressilegum danstakt þar sem heyra
má afrísk áhrif. Harry hefúr í gegnum
tíðina sungið fjöldan allan af lögum
sem náð hafa alheims vinsældum og
enn er vinsæl platan með honum sem
gefin var út árið 1956; Calypso en á
henni er lagið „Banana Boat Song“
(Day-O). Þetta var einnig fyrsta platan
í sögunni sem seldist í fleiri en millj-
ón eintökum!
„Nýja platan endurspeglar tungumál,
táknmál líkamans, huga og hjörtu fólksins
í Suður-Afríku,“ segir Harry Belafonte.
„Gazankulu er landsvæði í Suður-Afríku
þar sem nánast ekkert vex eða þrífst. En
raunin er sú að jafnvel þó fólkið verði að
búa á þessu harðbýla svæði þá er það par-
adís vegna þess hversu glatt í lund þetta
fólk er. Tónlistin er þversögn á sama hátt,
því þó textinn komi ákveðnum alvarleg-
Harry Belafonte, sem átti fyrstu plötuna
sem seldist í yfir milljón eintökum,
„Banana Boat Song“, er mikill hugsjóna-
maður eins og nýjasta plata hans ber
glöggt vitni uin sem og störf söngvarans í
þágu mannúðarmála á undanfömum
ámm.
um boðum til skila þá eru þetta gleði-
söngvar um leið.“
Söngvarinn sextugi hefúr aldrei leynt
því hvaða álit hann hefúr á aðskilnaðar-
stefnunni, „apartheit", og því hefúr honum
verið meinað að ferðast um Suður-Afríku
til að finna þar og ráða til sín söngvara og
hljómlistarmenn. í sinn stað sendi hann
því aðstoðarmenn sína þangað sem venju-
lega ferðamenn og þeir söfnuðu ljóðum,
sögum og brotum úr leikritum og rnöndl-
uðu þessu síðan saman, með aðstoð Hilton
Rosenthal sem hjálpaði Paul Simon með
Graceland, þannig að úr urðu söngvarnir á
nýju plötunni. í Jóhannesarborg réð Ros-
enthal bestu hljómlistarmenn og söngvara
og tók upp þeirra þátt, bakraddir og undir-
leik, í hljóðveri þar í borg.
Yfirvöld Suður-Afríku komust að þessu
— „Verkefni sem þessu er ekki hægt að
halda leyndu þar í landi,“ segir Harry. Og
af því hann var hræddur um að upptakan
yrði gerð upptæk þá Iét hann senda hana í
snarheitum til Bandaríkjanna. Þar hóf
hann að aðlaga tónlistina að vestrænum
eyrum og bætti sinni einstöku rödd við
upptökuna. í einu sérlega hrífandi lagi
syngur Jennifer Warnes dúett með
honum. “Um leið og ég heyrði þetta lag þá
datt mér hún samstundis í hug.“
Mannúðarmál og listin hafa haldist í
hendur hjá Harry Belafonte um Iangt
skeið. Hann var einn af íyrstu lista-
mönnunum sem kom því til leiðar að fólk
úr skemmtanaiðnaðinum tók þátt í mann-
réttindakröfúgöngum á sjötta áratugnum.
Hann var jafnframt einn af ráðgjöfúm
Martin Luther King og menningarráðgjafi
fyrir Friðarhreyfinguna. Fyrir þessi störf
sín hefur hann hlotið margar viðurkenn-
ingar og kannski má segja að hápunktur
starfs hans til þessa hafi verið undirbún-
ingsvinnan sem hann vann fyrir „We are
the World" herferðina 1985.
„Ég aðskil ekki list mína frá félagsvitund
minni eða pótlitískri hugsun. Segja má að
þetta samtvinnist allt saman. í framtíðinni
mun ég vinna að því sama og nú — aðeins
betur. Og ég mun reyna að nota lífið
skynsamlega."
Þetta segir tónlistarmaðurinn og mann-
vinurinn Harry Belafonte, en í hugum
flestra er Harry þó aðallega ljúfi söngvar-
inn ffá Jamaica sem syngur skemmtileg
lög á borð við „Day-O" og ný plata með
honurn ávallt tilhlökkunarefni. □
64 VIKAN