Vikan - 20.04.1989, Page 21
Myndimar sem fylgja greininni tók
Helga Laufey í Ástralíu. Myndin hér fyrir
o£án sýnir Ástralíunegra við smíðar, en á
myndinni til vinstri em uppábúnir
frumbyggjar frá Nýju Gíneu. Hér til
hliðar er svo mynd frá ströndinni nærri
heimili Helgu Laufeyjar í Ástralíu.
með stað. Þetta var að vissu leyti dreifbýli
og margir þurftu að nota talstöð því vega-
lengdirnar voru miklar. Ég gerði mér enga
hugmynd um þennan stað áður en ég fór
þangað en svo var ég bara ánægð þegar ég
var komin á staðinn. í bænum sjálfum
bjuggu um 8 þúsund manns og svo bjuggu
um 6 þúsund manns á svæðinu í kring.
Þarna var mikil bananarækt, sykurrækt og
annar búskapur.
- En var þarna enginn sauðfjárbúskapur?
Manni dettur alltaf í hug sauðfé þegar rætt
er um Ástralíu.
Sauðfjárbúskapur var nær ströndinni og
þar var einnig nautgriparækt og slíkt.
— Hvernig var gróðurinn?
Þarna var mikill gróður og mikið af
pöddum, alveg ótrúlega mikið af pöddum.
Það er mikið af alls konar dýralífi. Það eru
þarna dýr, kengúruættar. Mikið af alls kon-
ar fúglum og fallegum fiðrildum. Þarna eru
líka krókódílar. Ég var einu sinni á leiðinni
heim til mín og þurfti að fara yfir á og þá
varð mér litið til hliðar og sá krókódíl. Ég
æpti upp yfir sig, en þeim sem með mér
voru, fannst lítið til koma eins og þetta
væri ekkert mál. Ég held að á meðan ég var
þarna úti hafi tveir menn orðið krókódíl-
um að bráð. Fólki þarna úti finnst þetta
FERÐALÖC5
8. TBL. 1989 VIKAN 21