Vikan - 20.04.1989, Qupperneq 39
BORM
- þegar gert er
upp á milli barna
hefur vel launað starf og er í góðu hjóna-
bandi.
Eins og gerist oít þegar gert er upp á
milli barna var það heilsuleysi systur
hennar sem dró athygli foreldra Lilju frá
henni. „Það eyðilagði líf systur minnar að
vera í uppáhaldi. Sem barn fékk hún allt
sem hún girntist. Enginn veitti henni
nokkurn tíma mótspyrnu. Þetta er enginn
undirbúningur undir tilfinningasambönd á
fullorðinsárum. Hún getur einfaldlega ekki
ráðið við aðstæður þar sem hinn aðilinn
dýrkar hana ekki.“ Systir Lilju, sem giftist
efnuðum manni, er nú skilin og er einstæð
móðir sem á í erfiðleikum með að borga
reikningana.
Lilja fylgir settu mynstri, sem sést í
könnun um það hvernig barn sem er mis-
munað berst á móti. Hún er sammála því
að hún hafi einsett sér að vinna hörðum
höndum, að koma sér í gegn um háskól-
ann og takast vel upp í vinnunni sem við-
bragð við meðferðinni sem hún fékk
heima hjá sér. Hún neitar því að hún hafi
skemmst af þeirri reynslu. „Ég varð hlut-
lausari og sjálfistæðari af reynslunni. Við
fórum báðar í heimavistarskóla. Ég naut
þess miklu meira en hún því hún átti erfitt
með að fóta sig í veröld þar sem fólk dýrk-
aði hana ekki.“
En meðferðin sem hún fékk hjá foreldr-
unum angraði Lilju nægilega til þess að
hún ræddi málið við móður sína. „Hún
sagði bara að systir mín hefði þarfhast
meiri umhyggju vegna heilsu sinnar og að
hún hefði alltaf vitað að ég myndi spjara
mig, sem var auðvitað rétt hjá henni.“
Bróðir Katrínar hafði heldur ekki gott af
því að vera dekurbarnið. Katrín, sem á litla
sjálfsmeðaumkvun til, segir að þótt upp-
eldið hafi skilið eftir ör hjá henni, þá sé
bróðir hennar ennþá verr farinn. Hann
neytir eiturlyfja, lifir á foreldrum sínum og
atvinnuleysisbótum, er ófær um að mynda
tilfinningasambönd eða að flytja að heim-
an.
Sálffæðingurinn Glenn Wilson, sem
starfar við Lundúnaháskóla, segir: „Sál-
ffæðingar hafa fundið það út að eldra barn-
ið bregst oft við með því að sveiflast milli
ástar og haturs á foreldrum sínum. Það er
eldra bamið sem hringir heim reglulega,
sem fer oft heim til foreldranna, sem man
eftir afmælum þeirra. Það er næstum því
eins og það verði að halda sambandi, verði
að minna sjálft sig á að þetta fólk sé raun-
verulega foreldrar þess.“
Veikindi geta
orsakað mismunun
Eins og flestir ráðgjafar sem mæta sorg-
legum afleiðingum mismununar á systkin-
um álítur Wilson það óhjákvæmilegt að
foreldrar séu vel á verði til að koma í veg
Frh. á bls. 38