Vikan - 20.04.1989, Page 50
HJOMABAMD
þið hittist? Það eru engar reglur eða sið-
venjur sem tengjast því tilfelli. Það er al-
mennt álit seinni kvenna að það sé aldrei
auðvelt, en lagist með tímanum.
Ekki búast við kraftaverkum. Það er
ólíklegt að þið verðið nokkum tíma bestu
vinkonur. Myndirðu vilja það? Kringum-
stæðurnar allar em gagnteknar af duldum
tilfinningum og gruggugum straumum.
Það er raunsærra að gera ráð fyrir því að í
mesta lagi getið þið verið kurteisar hvor
við aðra en aldrei nánar.
Reynsla Önnu er dæmigerð. Hún fer
alltaf með manni sínum að horfa á börnin
hans í skólaleikritum, íþróttum o.s.ífv., en
hún hefur komist að því að fyrrverandi
konu hans finnst þetta ekki sniðugt.
„Við hittumst í fyrsta skiptið á opnum
degi í skólanum. Mér fannst hún ekki vin-
gjarnleg, en við því var að búast. Ég gat
ekki búist við því að hún kæmi hlaupandi
til mín og segði: „En gaman að hitta þig!“
Tengsl Guðrúnar við fyrri konu Stefáns
eru vandræðaleg. „Við höfum aldrei verið
fjandmenn, en við tölum aldrei um neitt
sem skiptir máli. Ég dáist að henni af því
hún leggur á sig að vera vingjarnleg. Ég
veit að hún gæti verið hundrað sinnum
verri og að undir öðrum kringumstæðum
gætum við orðið góðar vinkonur."
Jafhvel þótt þér finnist konan hafa kom-
ið hörmulega illa ffam við manninn þinn
bætir það ekki úr skák ef þú reynir að
hefha þín á henni. Það þarf ekki að vera
auðvelt, en ef erfiðleikar koma upp er best
að vera kurteis en ákveðin.
Lykilatriði í seinna hjónabandi er að
vera jákvæður og að ákveða að sökkva sér
ekki niður í afbrýðisemi og reiði út í það
sem liðið er. Eins og Anna segir: „Það er
svo mikilvægt að vera jákvæður. Ef maður
tekst ekki á við augnablikið og segir við
sjálfan sig: „Ég er einhvers virði,“ þá geng-
ur hjónabandið ekki.“
Reglur til sjálfsbjargar
þegar börn eru með í spilinu
Ekki halda að fyrri kona mannsins þíns
og börnin hans eigi ekkert tilkall til hans.
Þarfir þeirra eiga rétt á sér og geta stund-
um verið sterkari en þínar hversu erfitt
sem það er að taka því.
Börn þurfa að hitta foreldrið sem hefur
flutt frá þeim ein síns liðs. Bara af því að
faðir þeirra hefur valið að búa með þér
þýðir ekki að þau muni strax taka þér sem
hluta af fjölsky'ldunni. Gefðu þeim tíma.
Þau munu bjóða þér með að lokum.
Ekki láta manninn þinn þjást af sam-
viskubiti yfir því að hann fari eitthvað einn
með börnunum eða hitti þau í miðri viku
þegar þau þurfa sérstaklega á honum að
halda. Farðu út að borða með vinkonu,
hittu mömmu þína eða farðu í hárgreiðslu.
Börnin hans þurfa tíma til þess að rabba
við hann, trúa honum fýrir ýmsu, spyrja
hann ráða eða bara skamma hann.
Farðu að gera þér grein fýrir því að flest-
ar fýrri konur — reyndar langflestar þeirra
- væru fegnar að þurfa ekki að halda sam-
bandi við fyrrverandi eiginmenn sína en
neyðast til þess vegna barnanna og þetta
er ekkert gaman fýrir þær.
Ef börnum þínum og börnum hans kem-
ur ekki vel saman, neyðið þau þá ekki til
þess.
Láttu manninn vita að þú styðjir hann,
en flæktu þig ekki að óþörfu í samskipti
hans við fyrri konu sina og börnin. Áhugi
þinn ætti að liggja í samskiptum ykkar
sjálfra.
Ekki fara með honum á skólaleikrit, for-
eldradaga, fjölskylduhátíðir o.s.frv. nema
fyrri kona hans viti af því og sætti sig við
það. Þú getur haldið sambandi við börnin
hans í gegnum hann sjálfan.
Þegar fyrri konan hans og börnin eru al-
ger skrímsli reyndu þá að vera þolinmóð.
Hugsaðu þér hvernig þér liði ef hann færi
frá þér og skildi eftir eitt eða fleiri börn
sem þú þyrftir að sjá um ein? Og mundu
að það sagði enginn að það væri auðvelt
að vera seinni kona. □
/ .5A/ERT- i/v/ó KE^Ri SÍO.UR tÍMA/JÍL Kl/EAJ- A/RFa/Í SKóM- 5WETM/ MUaJö/)/( 1 ffílÆJSn
K/A/D SAM- TftL 3 > m
NftUM' Uíl
/CflRL- PUC-LAA/fl ./
C.ATS STAF- i R.W l K.
/ f\ruH6 'OTTiST 5£lt táílT KtfiFÍ 6EÍSLR- Gfldí,- Uki A/fj % > x/ LÉST MÍÖör þfíM(x LdLRBi 3 EiNS 1/EiÐ- ifjfí
RE/JaIu{ 0 (r RoPPfiÁ, í V ./ EA/£>- flA/fl FÓTfl- uaA/flo Z EiA/5
ME/v\ A/Í-ST Öe-STfl Mfl«W5- VflFA/ . / V >
STEFWft sk 21- • J > 'ottíst HRUMu/t MflOu/L V > V 3 R'oau/. TÖLUfl. RE'JKjA ,/ ,/
FRÍÐA ftFt *> > RóftRa HKoP 5'ALD ./ «< > ; V ls>
/ (X> / 5'A 20.
/ Z 3 y 5" (p Ea 5 • >
48 VIKAN 8. TBL. 1989
Lausnarorö síöustu krossgátu: SKOLLAR