Vikan - 20.04.1989, Síða 68
5TJ0RMUMERKI
1 1 FYRRI HLUTI:
Þannig er nautið
• •
ryggi er nautinu
nauðsynlegt, ekki
aðeins fjarhagslegt
heldur líka innra
öryggi. Þessi mikilvægi þáttur í
eðli nautsins kemur aðallega
íram við óæskilegar breytingar
eða þegar hjónabandið fer út
um þúftir og það leitast við að
lifa reglubundnu lífi. Þetta
gengur svo langt að nautið
reynir að finna öryggi í hvers-
dagslegum hlutum og vill ekki
skilja við sig gamlan og slitinn
jakka og konan í nautsmerkinu
breytir ógjarnan um augn-
skugga og lífið getur liðið án
þess að nautið taki eftir að það
fylgir enn gömlum siðum og
venjur frá því á unga aldri sem
vel hefðu mátt breytast. Naut-
ið er oftlega og með réttu sak-
að um að vera gamaldags.
Nautið er ábyggilegt en
verður að fá að vita í tíma, ef
óskað er eftir aðstoð þess, því
það verður órólegt ef breyt-
ingar standa fyrir dyrum. Naut-
ið þarf að fá tíma til þess að
venjast nýjum hugmyndum
eða breytingum á daglegum
venjum. Sé nautið beðið um
að gæta barna kvöld og kvöld
þarf það tíma til að venjast til-
hugsuninni og því hvernig
þetta nýja verkefni fellur að
lífemunstrinu. Það er nauðsyn-
legt að nautið fái að vita, að
það getur þrátt fyrir barna-
gæsluna fengið að horfa á upp-
áhaldssjónvarpsþáttinn sinn.
Nautið mætir á réttum tíma og
foreldramir geta yfirgefið
heimilið fullvissir um að barn-
ið er í öruggum höndum.
Að eiga þann
sem maður elskar
Stærsti galli nautsins er þörf-
in fýrir að eiga, en hún stendur
í beinu sambandi við öryggis-
þörfina. Þeim mun meira sem
nautið á þeim mun sterkari
verður öryggistilfinningin.
Þessi tilfinning verkar sem
nokkurs konar stuðpúði gegn
órólegu umhverfi. Nautið lítur
þó aflt of off á makann sem
sína eign og á erfitt með að
gera sér grein fýrir því að hann
þarf á meira frelsi að halda en
nautið vill véíta. Þess vegna
verður nautið að gera sér
grein fýrir því að hver og einn
vill fá að ráða lífi sínu sjálfur.
Nautið skortir aðlögunar-
hæfileika og hægð þess veldur
því að mörgum, sem eru hress-
ari í anda, finnst það leiðinlegt.
Á hinn bóginn er nautið vin-
gjarnlegt og jafnvel töffandi en
hefiir tilneigingu til að vera
sannkallaður nautnaseggur.
Nautið er góður gestgjafi en
leggur meiri áherslu á matinn
en samræðurnar í matarboð-
unum.
Nautið verður að fá að lulla
gegnum líflð á sínum eigin
hraða. Það er vanafast en van-
inn er bundinn hagnýtum
hlutum. Nautið eyðir ekki
kröftunum i ónauðsynlegar
hreyfmgar. Heima hjá sér hef-
ur það komið uppáhalds-
hlutunum sínum fyrir í seiling-
arfjarlægð, svo það geti náð til
þeirra úr uppáhaldsstólnum.
Viðskiptavitid kemur
fljótt í Ijós
Nautið hefur vit á viðskipt-
um og fer að nota vasapening-
ana á viturlegan hátt strax sem
barn. Það er afbragðsgóður
félagi vegna þess hve gott vit
það hefur á fjármálum og naut-
ið getur stjórnað félögum sín-
um sem stundum hættir til að
leggja út í vafasöm viðskipti,
sem geta leitt til þess að fyrir-
tæki þeirra lenda í fjárhags-
örðugleikum. Nautið ætti að
annast fjármálin, en þeir sem
minna vit hafa á þeim ættu að
virða dómgreind þess við
samningagerð hverju sinni.
Sálrænt jafnvægi
Nautið hugsar sig vel um og
flanar ekki að neinu né heldur
lætur það neyða sig til að taka
ákvörðun. Það hefur ótrúlega
gott minni og gleymir seint
því sem það hefur einu sinni
lært. Það verður þó að læra alla
hluti hægt og rólega og kemst
á þann hátt hjá að lenda í tíma-
þröng. Nóttina fyrir próf getur
nautið sofið rólega og þarf
ekki að sitja og lesa fram á síð-
asta augnablik. Það nær árangri
þótt það fari sér hægt og veit
að það mun geta svarað próf-
spurningunum án nokkurs
taugaóstyrks.
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Heimilisl ífið verður ósköp
hversdagslegt, þó þar eigi sér
stað nokkur breyting. Fraendi
þinn óskar aðstoðar þinnar varð-
andi skriftir. Leggðu ekki út í
nein meiriháttar viðskipti.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
“ Þú hefur endurnýjað
áhuga þinn á vissu máli, en farðu
samt varlega í sakirnar. Þú ættir
að hafa betra auga með félaga
þínum, hann er ekki nægilega
traustur. Talan fimm getur skipt
miklu máli.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Mikil skemmtilegheit
sem standa í sambandi við
flutninga. Þú færð afar traustan
hjálparmann. Þú verður að sætta
þig við gerðir ákveðinnar per-
sónu, ef þú vilt halda friðinn.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Missætti á vinnustað
leggst illa í þig. Óvænt heimsókn
kemur þér í betra skap. Lítt kunn
persóna gefur þér hollar ábend-
ingar. Þú verður heppin(n) á mið-
vikudaginn. Rauður litur er til
heilla.
Nautið
20. apríl - 20. maí
A vinnustað verður nokk-
ur breyting á starfsliði, til mikilla
bóta. Notaðu frítímann til að
laga til í kringum þig og kippa í
lag því sem hefur verið trassað.
Þú eyðir töluverðu fé.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Breytingar verða á hög-
um þínum, sem þú ert ekki
ánægð(ur) með. Þú neyðist til að
láta í minni pokann í ákveðnu
máli eða bera sigur af hólmi, en
það þýðir um leið mikil fjárútlát.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Þó þú hafir vel unnið og
eigir hrós skilið, þá vita samt fáir
hve mikið þú hefur á þig lagt og
því skaltu láta lítið á þér bera. Þú
eignast nýja safngripi. Þér er
boðið í leikhús.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Miklar breytingar á
vinnustað eru í undirbúningi. Þú
skalt reyna að hitta kunningjana
og rifja upp gamla vináttu. Á
heimilinu ríkir mikil ánægja
vegna nýfengis hlutar.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Þú vanrækir verkefni sem
innan skamms mun koma þér
illa. Þú hefur gott af að vera
gagnrýnni á eigin störf. Þér berst
bréf í hendur sem kostar þig
mikla snúninga og amstur.
tMeyjan
24. ágúst - 23. sept.
Þú hefur lengi beðið eftir
ákveðnu bréfi, en þegar það
loksins kemur er hætta á að þú
verðir litlu nær. Þó þú sért mikið
ein(n) skaltu ekki flana að neinu í
kunningjavali. Þú ferð í langferð.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Þér finnst ekki mikil
ástæða til bjartsýni, en brátt verð-
ur svo. Þú gerir sérlega góð kaup,
kemst af með helmingi minni
fjárhæð en þú hafðir áætlað. Þú
færð skrýtin skilaboð.
Fiskar
19. febrúar - 20. mars
Það er fremur rólegt hjá
þér núna, en það stendur ekki
lengi. Ef þú hugsar ekki of mikið
um ytra útlit hlutanna, líður þér
mjög vel. Þú lest áhrifamikla bók.
66 VIKAN 8. TBL. 1989
5TJORMU5PA