Vikan - 18.05.1989, Qupperneq 63
Skrifstofa Flugleiða er nú í þessu húsi
sem stendur við rue Glesener nr. 59.
rétti, suma alíslcnska og aðra sem líklega
voru sambland af íslenskum og Lúxem-
borgarmat, og virtust þeir allir renna ljúf-
lega ofan í gestina 500. Þjóðdansafélagið
sýndi dansa og voru meðlimir þess að
sjálfsögðu íklæddir íslenskum þjóðbún-
ingum. Hljómsveitin „Islandica" lék undir
og síðar tróðu íslensku hljómlistar-
mennirnir upp á „Kiem“ barnum á hótel-
inu, en þar voru íslenskir kokkteilar á boð-
stólum, s.s. Miami Vice og Miðnætursól
sem voru blandaðir úr „Svartadauðanum"
hans Valgeirs í Cockpit Inn. Á veitinga-
stöðum hótelsins var ýmislegt íslenskt
góðgæti á boðstólum þessa viku, þannig
að borgarbúum gafst ágætt tækifæri til að
kynnast íslenskum mat. í anddyri hótelsins
voru ýmis verk eftir listakonuna Ríkey
Ingimundardóttur til sýnis og þar var
einnig stöðugt í gangi íslandskynningar-
mynd í sjónvarpinu. Þarna var því tals-
verðu kostað til svo ísland væri kynnt á
sem bestan hátt og tengslin við fsland efld
enn lirekar.
Hótel Pullman er þægilega staðsett mið-
svæðis í borginni, stendur rétt við stóra
gilið, og fór afbragðs vel um okkur gestina.
Á hótelherberginu beið okkar ávaxtakarfa,
lítil flaska af „Svartadauða" og bjórkrús.
Að sjálfsögðu var mini-bar á herbergjun-
um og rúsínan í pysluendanum voru
þykkir, drifhvítir baðsloppar gestum til af-
nota á meðan á dvölinni stóð. Á hótelinu
eru tveir veitingastaðir, annar fínni en
hinn með ff jálslegra sniði, en góður matur
á þeim báðum. Nokkuð stór innisundlaug
er á hótelinu, en miðbærinn dró okkur
meira til sín og því engum tíma eytt í
sundferðir að þessu sinni. Myndirnar hér á
síðunum gefa innsýn í stemninguna sem
ríkti á Íslandshátíðinni, sem reyndar var
haldin þegar vorið var rétt að byrja að
gera vart við sig. Núna skartar Lúxemborg
aftur á móti sínu fegursta og enginn verð-
ur svikinn af því að staldra þar við.
PHILIPS sjónvarpstækin eru sannkallaðir gleðigjafar á heimilinu.
Sjónvarpsdagskráin ræður að von nokkru um gleðina en PHILIPS
tryggir skýrasta mynd og tærastan hljóm þess sem í boði er.
Einstök myndgæði, traust smíði og frábær ending
0i<ij rneðmsBli íqljh iesc ^i^mf^
— Viltu slást í
Verð: 29.980
28»
• Verðið kemur þór á óvart.
Heimilistæki hf
• Knnglunm
SIMI 69 15 20
i i SOM/atyUM
16“ PHILIPS FRIÐARSTILLIR
16 tommu (ferða) sjónvarp
með innbyggðu loftneti og
10 stöðva minni. Frábær
mynd- og tóngæði, tenging
fyrir heymartól. Silfuriitað.
Við vorum að fá til landsins stóra
sendingu af þessu hágæða 20 tommu
sjónvarpstæki frá PHILIPS, árgerð ’89,
þar sem mynd og tóngæði eru í
flokki, og getum því boðið þessi
frábæru tæki á einstaklega lágu verði
vegna hagstæðra samninga.
• Práölaus fjarstýring með öllum möguleikum
handstýringar.
• Smekklegt, nútlmalegt útlit.
• Sjálfleitari.
• Frábær hljómgæði úr hátalara framan á tæki.
• Lágmarks rafmagnsnotkun.
• 16stöðvaminni.