Vikan - 01.06.1989, Síða 6
TI5KA
Mike saumar á fegurðardísirnar
Brynja Nordquist í kaffllitum blúndukjól með rjómalitum slóða skreyttum perlum. Myndin á
næstu síðu sýnlr okkur Ingibjörgu Hannesdóttur í „fíðrildakjólnumu úr handmáluðu flaueli.
r.ínið er úr Seymu, hannað af Svisslendingnum Jakob Schleipfer. Skartgripimir sem hún ber eru
frá versluninni „Hygea" við Laugaveg og Austurstræti. Á innfelldu myndinni hér fyrir ofan sést
Mike með þrem disum i kjólum sem hann hefur saumað. Þær eru Katý í World Class, Linda Pét-
ursdóttir og Gróa Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Fegurðarsamkeppninnar. Öllum var stúlkun-
um greitt „Hjá Dúdda“.
TEXTI: ÞÓRDlS BACHMANN
LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Mikael Franklínsson er 26 ára
gamall Suður-Afríkumaður sem
hefúr búið á íslandi í eitt og
hálft ár. Hann hefúr unnið sjálístætt við
fatahönnun síðan á síðasta ári og virðist nú
vera að fa verðskuldaða umbun fyrir
magra tímann — hann var beðinn að hanna
og sauma kjóla á þrjár vandlátar og áber-
andi konur fyrir krýninguna á Ungfrú ís-
landi á dögunum — þær Lindu Pétursdótt-
ur alheimsfegurðardrottningu, Gróu Ás-
geirsdóttur, framkvæmdastjóra keppninn-
ar, og Katý Hafsteins í World Class, sem
þjálfar stúlkurnar í keppninni.
Mikael er mjög opinn um menn og mál-
efrii og hefur ekkert á móti því að segja
okkur að ástæðan fyrir hingaðkomu hans
hafi verið sú að hann hafi hitt ungan ís-
lending í Amsterdam, þar sem Mike starf-
aði sem fatafella. Þeir urðu ástfangnir og
hafa nú búið sér fallegt heimili í miðbæ
Reykjavíkur. Þar hittumst við og spjöllum
saman.
Mike túlkar þjóðarsálina á þann hátt að
hún sé eins og gjósandi eldfjall — hrá orka
sem leyst hefúr úr læðingi en fólk viti ekki
hvað það eigi að gera við. Hann tengir
drykkju„siði“ íslendinga þessu og bætir
við að hann hafi upplifað hér á landi að sjá
drukkna konu í fyrsta sinn.
Mike drekkur ekki og hann hefúr tekið
eftir því að fólk er öðruvísi viðmóts á
kvöldin en á daginn. Kvöldviðmótið er
miklu alúðlegra en um leið og birtir af
degi fer fasið allt að verða kuldalegra.
Honum finnast mannleg samskipti erfið
hér á landi að ekki sé minnst á verðlagið
sem honum finnst „crazy“. Þó segir hann
að ísland sé „sálarþjóð" - hér sé mikið um
tilfinningafólk og jafhvel þó sumu þeirra
líði illa og sé mjög lokað sé ótrúlegt lista-
fólk hér og ótrúleg fegurð.
Mike hefúr orðið var við mikla fordóma
fólks í garð Suður-Afríku. Hann ólst upp í
Jóhannesarborg hjá skoskri ömmu sinni
og gekk þar í ríkisrekinn skóla fýrir hvít
börn eingöngu.
Hann hafði svarta fóstru sem kenndi
honum mikið af sögu svarta mannsins —
dulfræði hans, munnmæli og söngva.
Mike finnst fáránlegt að stjórnmálafólk
hins vestræna heims skuli vera að ráðskast
með málefni Afríku án þess að reyna að
setja sig inn I hugsanagang svarta
mannsins.
„Eitthvað þarf að gera og það fljótlega,
fyrir svarta manninn en stjórnmálafólk
Vesturlanda situr bara í sínum konunglegu
stúkum á víð og dreif um Evrópu og
Bandaríkin og gaggar um Afríku. Hvernig
væri að það stæði upp af stólunum og færi
þangað og gerði eitthvað jákvætt? Því ekki
að fara og ræða málin? Því ekki að líta á
hvað er að gerast?"
Flokkur Nelsons Mandela hefúr ekki
6 VIKAN 11.TBL.1989