Vikan - 01.06.1989, Síða 12
HEIL5A
á móti olíum og feiti. Þetta er látið krauma
þangað til það er orðið nógu þykkt til að
nota í áburð. Þessi efhi eru síðan síuð. Því
miður verða við það mikið af nothæfum
efhum efitir í síunni, sem ekki er hægt að
ná og því nýtast jurtirnar ekki sem skyldi.
Þess vegna þarf mikið magn af jurtum í
þennan tilbúning. Þær jurtir, sem fara í
inntökulaganirnar eru mikið drýgri.
Eru til grasameðul við öllum sjúk-
dómum?
Það held ég, að minnsta kosti við
flestum. Það skiptir þó miklu máli að fólk
reyni að beita fýrirbyggjandi aðgerðum,
m.a. með grösum til að halda heilsu sem
lengst, en ekki bara að leita lækninga þeg-
ar eitthvað hefur farið úrskeiðis því miður.
Tekur fólk oft á tíðum ekki við sér, fyrr
en það er við það að missa heilsuna og fer
þá að leita sér lækninga. Það þarf að vera
vakandi fýrir því sem líkami þeirra
þarfhast.
Nú eru margir nýir sjúkdómar
komnir Cram á sjónvarsviðið, eins og
t.d. alnæmi. Hefur grasafræðin ráð
gegn þeim?
Þetta er alveg ágæt spurning. Við höfum
því miður ekkert á takteinum gegn þess-
um sjúkdómum beint, en það sem við get-
um gert, er að byggja upp, þá hluta Iíkam-
ans, sem eru heilir og hjálpa þeim til að
vinna á móti því sem aflaga hefur farið og
því sem er að brjóta hann niður. Þetta er
því algerlega óplægður akur, en við bíðum
spennt eftir því að reyna að hjálpa þessu
fólki.
Eru sumir sjúkdómar sem þú fæst
við, algengari en aðrir?
Fólk leitar mjög mikið til mín í sam-
bandi við krabbamein, gigt og jafnvel
kransæðastíflu. Þetta eru þeir sjúkdómar,
sem mér finnst vera mest áberandi hjá
mér í dag. Ofnæmi er einnig orðið mjög
algengt og hefur fólk ofnæmi fyrir ólíkleg-
ustu hlutum. Mér hefur sem betur fer oft
tekist vel á því sviði, en í þeim tilfellum,
þar sem fólk hefur bókstaflega ofhæmi fyr-
ir öllu, er illt í efhi.
Hefur fólk fengið bata við sjúkdóm-
um eins og krabbameini?
Fólk sem hefúr verið á lyfjum eða í
geislum, hefur fengið grasameðul hjá mér
til að byggja upp þrótt, standast meðferð-
ina og þá jafhvel að vinna gegn meininu.
Hef ég séð góðan árangur í því sambandi.
Ég get einbeitt mér að blóðinu, til að
byggja það upp og hjálpa því að standast
ágang læknismeðferðarinnar, en hún er
frumudrepandi, og hefur það markið að
drepa sjúku ffumurnar, en hún drepur því
miður oft þær heilbrigðu í leiðinni.
Það er þessu fólki ásamt fleirum, sem
við erum að reyna að hjálpa með okkar að-
ferðum og gera því kleyft, að vinna gegn
sínum sjúkdómum.
Síðasta tilfellið, sem við höfðum af þess-
um toga, var danskur maður sem býr í
Danmörku. Eftir að hafa verið rannsakað-
ur, var ekki talið ráðlegt að láta hann gang-
ast undir uppskurð. Þar sem sjúklingurinn
neitaði hefðbundinni meðferð gegn sjúk-
dómnum, sem var krabbameinsæxli í
lungum, hafði heilsugæslulæknirinn þar,
ráðlagt honum að taka lyf úr íslenskum
jurtum.
Það gerði hann. Eftir að hann hafði not-
að þau íslensku grasalyf, sem við sendum
honum, kom í Ijós að æxlið hafði minnkað
og afmarkast þannig að læknarnir treystu
honum í aðgerð, til að fjarlægja æxlið. Það
síðasta sem við fféttum af þessum sjúkl-
ingi var að læknarnir voru yfir sig ánægðir,
svo maður tali ekki um sjúklinginn, með
þann árangur, sem náðst hafði. Við höfúm
fengið góðar kveðjur ffá honum, æ síðan.
Láta sumir sjúkdómar, frekar undan
grösum en hefðbundnum lyfjum?
Ég vil ekki fara út í neinn samanburð á
því, en eitt veit ég að bati fæst í langflest-
um tilfellum, við mjög mörgum sjúkdóm-
um, séu grösin notuð. Það er mín reynsla
í gegnum árin.
■ „Ef fólk er nógu
ákveðið og tekur
grasalyfin í einum kúr, —
en ekki aðeins eina
flösku og segir svo:
„Þetta bar engan
árangur“, - þá getur það
vænst þess að
ná bata.“
■ „Grösin hjálpa vel við
hverskonar sleni og
slappleika, vegna alls
þess fjölda fjörefna, sem
þau innihalda.“
Ef fólk er nógu ákveðið og tekur grasa-
lyfin í einum kúr - en ekki aðeins eina
flösku og segir svo: „Þetta bar engan
árangur" — þá getur það vænst þess að ná
bata. Fólk þarf bara að vera staðfast, því ár-
angurinn kemur oftast nær ekki samstund-
is, þó það hafi komið fýrir. Það gildir fýrir
grasameðulin eins og önnur lyf, t.d. penc-
illinið, að það þýðir ekki að taka það í tvo
daga og hætta svo.
Hvað er það sem gerir grösin sér-
stök fram yfir önnur lyf?
Þegar maður notar jurtina alla, með öll-
um hennar eiginleikum, þá eru mörg efni
í henni, sem bæta hvert annað upp. Fyrir
utan virku lækningarefnin eru vítamín og
steinefhi ásamt mörgum öðrum efnum,
sem hafa mjög mikinn græðandi mátt.
Sem dæmi má nefna, að fólk hefúr oft
komið til mín, þegar illa hefúr gengið að
koma lífi þess í eðlilegt horf með venju-
legum lyfjum og hafa þá jurtalyfin hjálpað
til við að byggja það upp. Ég hef séð mörg
dæmi þess.
Grösin hjálpa einnig vel við hverskonar
sleni og slappleika, vegna alls þess fjölda
fjörefna, sem þau innihalda.
Eru það aðeins alvarleglr sjúkdóm-
ar sem þú faest við, eða getur fólk
fengið eitthvað hjá þér við því sem
hrjáir það dags daglega?
Þegar eitthvað minna er að, hef ég oft
hjálpað fólki til að skipuleggja hvað það
eigi að gera. Stundum getur það jafnvel
verið með aðstoð grasanna.
Meirihluti þeirra, sem leita til mín eru
með alvarlega sjúkdóma.
Þegar um slík tilfelli er að ræða, þarf að
taka hlutina alvarlegar og verður fólk þá
að fylgja alveg ákveðnum reglum, taka
grasameðulin daglega, jafnvel oft á dag.
Það var t.d kona hjá mér sem var með
mikinn bjúg og hafði verið að reyna lyf,
þar sem bjúgurinn hafði eitthvað
minnkað, en komið aftur. Eftir að hafa tek-
ið inn grasameðul í frekar stuttan tíma
hafði bjúgurinn runnið af henni, sem nam
tíu kílóum.
Mikið af grösum eru til við lifrar- og
nýrnasjúkdómum. Ég get nefnt þér dæmi
af sjálfri mér. Þegar ég var ung, varð ég
mjög slæm í nýrunum, eiginlega fárveik,
en það tók mig stuttan tíma að jafna mig,
eftir að faðir minn hafði gefið mér lyf úr
þeim jurtum, sem ætlaðar eru til að lækna
nýrnasjúkdóma og hef ég aldrei kennt mér
meins í nýrunum eftir það.
Ég hef séð mikinn árangur af þeim inn-
tökum sem ætlaðar eru fyrir innkirtlasjúk-
dóma og minnist ég margra yndislegra
dæma um það.
Eru margir sem leita til þín?
Já, það eru margir, en ég er nú að hætta.
Börnin mín eru þó að reyna, að taka við
þessu. Ég verð til staðar og hægt er að leita
til mín ef á þarf að halda. Frá því að þau
gátu hafa þau alltaf verið í þessu með mér.
Getur þú nefnt mér dæmi um ein-
hverja, sem hafa fengið lækningu á
eftirminnilegan hátt með þinni hjálp?
Já ég gæti það. Það eru dásamlegar
minningar tengdar því og hafa gfefið mér
kraft til að starfa við þetta. Margt af þessu
fólki er nú mtnir bestu vinir og á ég því
erfitt með að gefa þér dæmi.
Ég man þó eftir einni konu, sem var
mjög illa haldin í munni, sem var eitt sár.
Hún hafði ekki getað borðað neitt í langan
tíma og hafði verið á lyfjum við þessu. Þetta
er sjúkdómur, sem mjög erfitt er að lækna.
Hún fékk inntöku hjá mér og það merki-
lega gerðist, að hún varð góð á stuttum
tíma og þótti það mjög athyglisvert.
Önnur kona kom eitt sinn til mín og
hafði hún þjáðst lengi af mjög miklum
kláða á brjóstkassa. Nú var kláðinn að færa
sig upp eftir hálsinum og uppí andlitið og
var hún mjög áhyggjufull út af því. Hún
klóraði sér næstum viðstöðulaust og getur
maður ímyndað sér, hvernig húðin varð af
því.
Strax eftir að hún var búin að gefa mér
lýsingu á þessu og sýna mér staðina, kem-
ur í huga minn hvað ég skuli láta hana
hafa, bið hana að fara ekki strax í blúss-
una og hinkra við, því ég ætli að fara niður
og athuga hvort ég eigi ekki eitthvað
smyrsl við þessu. Þar sem til eru mjög
margar gerðir af smyrslum var ég ekki viss
12 VIKAN 11. TBL 1989