Vikan - 01.06.1989, Síða 17
VIÐTAL
íkina og myndlistina í starfi. Ég hélt til
Englands og tók próf í leiktjaldamálun í
University of London, með listmálun sem
aukafag. Þetta var góður tími og svo
skemmtilega vildi til að ég var þrisvar beð-
inn um að spila og syngja lög eftir mig í
BBC. Þetta var dagskrá BBC sem útvarpað
var í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi og
heyrðist einnig hér heima.“
Eftir heimkomuna fékk hann vinnu í
Þjóðleikhúsinu þar sem hann vann í eitt ár
en hætti og flutti til Svíþjóðar. Þar starfaði
hann hjá óperunni í Stokkhólmi við Ieik-
tjaldamálun í rúmt ár.
Fjölmargar
málverkasýningar
En nótnaborð léreftsins varð leiktjalda-
málningunni yfirsterkari. Með pensil í
hönd sitjandi eða standandi við málverka-
trönur hefur Sigfús málað út um allt land.
Hann hefúr tekið þátt í mörgum samsýn-
ingum og sjálfur haldið margar einkasýn-
ingar.
„Ég hef fengist við alls kyns myndlist.
Málað andlitsmyndir, mannlíf, móður jörð,
hús og heilu þorpin. Ég hef haft mjög gam-
an af að mála gömul hús. Þau hafa heillað
mig, það er mikil sál í þeim. Með myndlist-
inni hef ég séð höfúðborgina og kaupstað-
ina úti á landsbyggðinni í allt öðru ljósi en
ella.“
í gegnum tíðina hefúr hann unnið með
mörgum listamönnum, eins og Tómasi
Guðmundssyni skáldi, Guðmundi Guð-
jónssyni söngvara, leikurunum Alffeð
Andréssyni, Jóni Aðils, Brynjólfl Jóhannes-
syni, Emelíu Jónasdóttur, Áróru Halldórs-
dóttur, Nínu Sveinsdóttur, SoflSu Karls-
dóttur og Höskuldi Skagfjörð, svo nokkrir
séu nefndir. Og nú síðast hefur hann unn-
ið með þeim Elínu Sigurvinsdóttur og
Friðbirni G. Jónssyni söngvurum.
Trylltasti hlátur
sem ég hef heyrt
„Með leikurunum fór ég mikið út á land
til að spila og skemmta. Þetta voru ánægju-
legar og góðar ferðir. Og stundum gat ver-
ið glæffalegt að troða upp í þessum litlu
húsum úti á landi. Eitt sinn var ég með
Alfreð Andréssyni og Jóni Aðils. Flokkur-
inn nefhdist Útvarp AA. Jón sat við borðið,
ég spilaði og Alffeð söng. Það var troðfúllt
hús og eina lýsingin var ffá olíulömpum.
Nema hvað Alfreð fór aftur á bak í einu
atriðinu og rak höfuðið harkalega á olíu-
lampa þannig að olían lak niður og það
kviknaði í. Okkur tókst að slökkva eldinn.
En viðbrögð áhorfenda voru svo skjót að
einn af fremsta bekk stökk strax upp á
sviðið og kastaði olíulampanum út um
gluggann. Á eftir braust út hlátursgusa. í
henni var feginleiki því þetta var einhver
trylltasti hlátur sem ég hef nokkru sinni
orðið vitni að.“
Gullflugan er meistaraverk
Sigfús segir að sér þyki óskaplega vænt
um þá viðurkenningu sem hann fékk frá
Sigfus virðir fyrir sér útsýnið yfir fsafjörð og gerir sig líklegan til að fara að mála það
sem fyrir augu ber.
Sigfus varð íslandsmeistari í knattspymu í þriðja flokki með Val á sínum yngri árum.
Hér sjást meistaramir. Sigfus er lengst til vinstri í ffemstu röð.
aðstandendum keppninnar um Landslagið
á dögunum.
„Mér þótti ákaflega vænt um þessa
viðurkenningu ekki síst þegar ég sá þessa
litlu flugu úr gulli sitjandi á fjöður. Þetta er
dásamlega vel gert af Sigurði Steinþórs-
syni gullsmið og fallegri smíði hef ég vart
séð. Þetta er húsfluga og í augunum á
henni eru demantar, allir kantaðir og ná-
kvæmnin er svo mikil að það sést í æðarn-
ar í vængjunum. Þetta er meistarasmíð
þar sem einlægni og natni skín úr vinnu-
brögðunum. Ég get ekki annað en tekið
djúpt í árinni í lýsingu minni, slíkur kjör-
gripur er þessi litla fluga."
Hljómplata fyrir sjötugt
Þrátt fýrir að Sigfús hafi samið hátt á
annað hundrað dægur- og sönglaga, gefið
út margar hljómplötur á ferlinum og hald-
ið ótal málverkasýningar, eigi rúmt ár í
LJÓSM.: MAGNÚS REYNIR JÓNSSON
Skrautfjöðrin. „Fallegri smíði hef ég vart
séð,“ segir Sigfus.
sjötugt, er fjarri því að hann sé sestur í
helgan stein. Hann tekur daginn snemma
með því að synda í Sundhöll Reykjavíkur,
málverkasýning er í bígerð og enn semur
hann Iög.
„Ég á nóg til af lögum og verð illa svik-
inn komi ekki plata fýrir sjötugt."
ll.TBL. 1989 VIKAN 17