Vikan - 01.06.1989, Síða 24
Pierre Cardin á veitingastaðnum heimsfræga, Maxim’s, sem
hann keypti fyrir fáeinum árum.
Frh. af bls. 22
Edmond Rostand upp á hversu
vel heíur tekist upp með
Cyrano de Bergerac. Misklíð
kemur upp innan fjölskyld-
unnar árið 1898 og næstum án
þess að nokkur veiti því mikla
eítirtekt þá uppgötva hjónin
Pierre og Marie Curie radíum.
Fyrstu 455 ökuskírteinin eru
gefin út af iögreglunni í París
árið 1899 og á Variétés er
leikritið „La Dame de chez
Maxim’s" leikið við feikilegar
vinsæidir. Cornuche og Chau-
veau taka að sér að gera breyt-
ingar á staðnum og koma hon-
um í það útlit sem hann er í
nú. Kostnaðurinn var 295.897
gullfrankar og fyrir það verð
fékkst hinn frægi núðlustíli,
mahoní og speglar í útflúruð-
um römmum.
Heimssýningin mikla
I París 1900
Árið 1900 varð Maxim’s
heimsfrægur. Heimssýningin í
París dró til sín ofgnótt af suð-
ur-amerískum milljónerum. Á
fyrsta ári nýrrar aldar var
Maxim’s talin perla Parísar, la
Belle Epoque. Menn eins og
Edward VII, sem þá var Prins-
inn af Wales, Óskar konungur
Svíþjóðar, Leopold Belgíukon-
ungur eyddu þar ógrynni fjár í
slagtogi við fegurstu og vinsæi-
ustu konur Parísar. Eiginkonur
Parísar líta á Maxim’s sem hlið
helvítis, enda blandast þar
náið saman við kampavíns-
fljóðið: gáfúr, pólitík, slúður
og fjörugar veislur, og undir
hljóma ljúfir fiðlutónar.
Konurnar losna við
lífstykkiii
Hvað er það sem dregur?
Sérstakur lífsstíll, sem stund-
um blandaðist því að fá sér
gott að borða. Á nýárskvöld
1906 var boðið upp á 12-rétta
matseðil fýrir 50 ffanka. Á
næsta ári logar allt í óeirðum
að nýju. Veitingaþjónar fara í
verkfall vegna þess að þeir
mega ekki lengur vera með
yfirskegg í vinnunni. En í hinni
fjörugu París er frétt ársins eig-
endaskiptin á Maxim’s; Bret-
arnir taka yfir, en það eina sem
þeir breyta er nafnið, sem nú
er: Maxim’s Limited. Paul Poir-
et, einn af fastagestum
Maxim’s, leysir konurnar und-
an oki lífstykkisins þegar hann
breytir kventískunni árið
1909.
1910:
Gestirnir breytast
Tímarnir eru að breytast og
árið 1910 koma gestirnir á
Maxim’s hvaðanæva úr þjóð-
félaginu. Hefðarmenn, menn
úr iðnaðinum og íþróttamenn
sitja þar hlið við hlið, enda
stundum allt í senn; Bugatti,
Voisin, Citroén og Renault.
Með nýjum gestum koma nýir
siðir; argentínski tangóinn
tröllríður öllu á Rue Royale,
en þetta ár missir Maxim’s
sinn frægasta og litríkasta vin;
Edward konungur VII deyr 7.
apríl og George V verður kon-
ungur. Árið 1914 lýsir Þýska-
land yfir stríði á hendur Frakk-
landi.
Á árunum 1915—1918 verð-
ur Maxim’s flugbar stríðshetj-
anna, hvernig var líka hægt að
neita mönnum sem gátu dáið
næsta dag um inngöngu? Fyrri
gestir eru horfnir og hafa
drukknað eins og sá þjóð-
félagshópur sem þeir voru
hluti af. í stað daðurdrósanna
fögru sem héldu til á Maxim’s
eru nú komnar gieðikonur.
Stríðið hefur tekið hræðilegan
toll: 8.700.000 menn hafa
dáið.
Stutta tískan
heldur innreið sína:
Maxim’s I
niðurníðslu
Jazz heldur innreið sína og
árið 1920 komast stuttir kjólar
með belti á mjöðmunum í
tísku, við þá eru notaðir kólf-
laga hattar og hárgreiðslan er
stutt og stráksleg. „Dömurnar"
eru horfhar ffá Maxim’s og
með þeim skrautlegt útlit fyrri
tíma. Maxim’s er í niðurníðslu;
niðurníðslu sem stendur yfir í
10 ár. Árið 1930 eru bresku
eigendumir orðnir afar óró-
legir, enda staðurinn nánast
alltaf hálftómur. Annar þeirra
reynir að selja, en enginn býð-
ur í staðinn. Loks árið 1931
kaupir Octave Vaudable
Maxim’s og það besta sem
hann kemur með með sér er
frábær vínkjallari sem hann
átti, sem þó nægir ekki til að
ná staðnum upp úr öldudaln-
um því þetta ár er tapið
300.000 ffankar.
Albert og föstudags-
kvöld í kjól og hvítt
Árið 1934 hefur Vaudabie
fengið nóg og býður Maxim’s
til sölu fýrir 1 milljón franka,
en það gengur ekki. Aftur á
móti kemur einn frægasti veit-
ingamaður Parísar, Albert, til
liðs við Maxim’s og hann lætur
senda kort frá Maxim’s til allra
Parísarbúa þar sem hann segist
tilbúinn að taka á móti þeim
ffá hádegi til dögunar. Mánuði
síðar er fullt útúr dymm á
Maxim’s. Maxim’s hefúr verið
bjargað. Ári síðar er Maxim’s
orðinn sá staður sem maður
verður að hafa látið sjá sig á.
Albert kom á „Föstudagskvöld
í kjól og hvítt“ og losaði sig um
leið við gömiu kúnnana.
Klúbbur fyrir
breska yfirforingja
Albert stjórnaði Maxim’s
eins og einræðisherra — og
hann valdi inn. „Ég vissi að ég
hafði náð toppnum," sagði
frægur lögfræðingur, „þegar
Albert kallaði á mig með
nafni.“ Seinni heimsstyrjöldin
hefst 3. september 1939 og
það átti eftir að verða mesta
ævintýri Maxim’s að staðurinn
var í raun ensk eign með aðal-
skrifetofu í London. Litið var á
staðinn sem eign óvinanna á
hernámsámnum og hann iát-
inn í hendurnar á þýskumn-
um. Við frelsunina var Max-
im’s breytt í klúbb fyrir yfir-
foringja breska hersins. Á með-
an á stríðinu stóð hafði Louis
Vaudable, sonur Octave, kom-
ið 30.000 vínflöskum undan
og faiið í Burgundy, þannig að
þegar stríðinu lauk og Maxim’s
var opnað gestum að nýju árið
1946, þá hófet starfsemin eins
og ekkert hefði í skorist —
troðfúllt var fýrsta daginn.
Maxim’s kominn
til að vera
um ókomna framtíð
Affur þurfti Albert að takast
á við það að „hreinsa tii“ í hópi
viðskiptavinanna. Stúlkurnar
sem sóttu staðinn höfðu
breyst afar mikið og árið 1948
bylti Christian Dior tískunni.
Tíminn líður og breytist en
Maxim’s heldur áfram að vera
vegna þess að goðsögn er
ódauðleg. Staður hinna forríku
og ffægu. Hvað er Maxim’s? Er
staðurinn leikhús, eða sokkinn
kafbátur á hafsbotni? Sumir
segja að Maxim’s sé og verði
alltaf eins konar undarlegur
felustaður, eins konar hof þar
sem Parísarbúar dýrka fágun
og glæsileika, sem núverandi
eigandi, hinn þekkti Pierre
Cardin, sér um að ekki falli
á. (Byggt á samantekt Jean
Mauduit."
Ilmvötn sem eiga sér
sögulegan bakgrunn
Ilmvatnið Maxim’s de
Paris er skapað í anda veit-
ingastaðarins og þeirra kvenna
sem þar hafa ætíð verið; fag-
urra, þokkafullra kvenna.
Flaskan minnir á innrétting-
arnar á Maxim’s, sérstaklega á
stóra spegilinn í borðsalnum.
Kona sem notar Maxim’s er
kona sem fellur í kramið á veit-
ingastaðnum - eins og hún
hafi alltaf átt þar heima...
En hvað með herra Max-
im’s? Þeir voru margir hverjir
enn eftirminnilegri en konurn-
ar og auðvitað verður að vera
til ilmur fýrir herra Maxim’s:
Maxim’s pour Homme eða
Maxim’s fýrir herra. Rætur
hans liggja í goðsögninni en
um leið ber hann með sér nýja
tíma sem höfða til allra ungra
manna (á hvað aldri sem er)
sem eru til í ýmislegt og ætla
sér að komast langt. Þannig
hafa Maxim’s mennirnir ætíð
verið og þeir sækjast eftir
Maxim’s konum... □
24 VIKAN ll.TBL. 1989