Vikan - 01.06.1989, Blaðsíða 26
, þegar þeir Nonni og Manni gáfii eiginhandaráritanir. Stelpuskarinn elti þá hvert sem þeir fóru,
og augnaráðið leynlr víst engu.
Nonni og Manni
gerðu allt vHflaust í l>ýskalandi
Aðdáendaskarinn elti þá hvert fótmál
Allt tilbúið og aðeins beðið eftir merk-
inu .
auk þess sem komið er fyrir áhorfenda-
bekkjum sem rúma um 6000 manns. Þar
fara fram sýningar mörgum sinnum á dag.
Á fimmtudags-, föstudags- og laugardags-
kvöld eru auk þess skrautlegar kvöldsýn-
ingar sem sérstaklega er selt inn á. Á sýn-
ingunni í ár var uppselt inn á þær flestar
löngu fýrirfram. Á sýningum þessum gefst
áhorfendum kostur á að sjá allt það besta
í reiðmennsku hvaðanæva úr heiminum
— eins og frá Spáni, íslandi, Bandaríkjun-
um, Rússlandi, Þýskalandi, Brasilíu og
Hollandi. Óhætt er að segja að þarna sé
aðeins boðið upp á glæsilegar sýningar,
sem seint líða áhorfendum úr minni.
Sýningin á íslensku gæðingunum hefúr
löngum vakið feiknalega athygli og nú
sem oft áður, var þetta vinsælasta atriðið á
Equitana. Að þessu sinni var sýningin
skreytt með því að láta þá Nonna og
Manna kom þar fram, en þeir gerðu garð-
inn frægan í Þýskalandi í samnefhdum
sjónvarpsþáttum um síðustu jól.
Þeir komu einnig fram á sérstökum sýn-
Frh. á bls. 28
TEXTI OG MYNDIR:
HJALTI JÓN SVEINSSON
Móttöklur þær sem þeir félag-
arnir Garðar Thor Cortes og
Einar Örn Einarsson fengu á
„heimssýningu hestanna," Eq-
uitana, á dögunum, minnti helst á þær sem
Bítlarnir fengu á fýrstu árum frægðar
sinnar. Það ætlaði allt vitlaust að verða, og
að því kom að skilrúmið á milli sjónvarps-
stjarnanna og aðdáendanna varð undan að
láta.
Equitana er haldin í Essen í Vestur-
Þýskalandi á tveggja ára fresti, að þessu
sinni dagana 8.-16. apríl. Þarna koma
fram flest þau hestakyn heims sem ein-
hvers mega sín, svo og eru sýndir og fal-
boðnir nær allir hlutir sem á einn eða ann-
an hátt lúta að hestamennsku og hesta-
haldi. Sýningarsvæðið tekur yfir einar 14
stórar sýningarhallir og endist fólki ekki
dagurinn til að sjá nema örlítið brot af öllu
sem stillt er upp.
Einni höllinni er ávallt breytt í reiðhöll
t
26 VIKAN 11. TBL. 1989