Vikan - 01.06.1989, Page 58
GRIMMILEG
Þorgeir Astvaldsson: „Ríkisútvarpið vill einkastöðvamar feigar.“
- segir Þorgeir Ástvaldsson í viðtalii við Vikuna
Sviptingar hafa verið á sviði Ijós- og Stjarnan sameinast um rekstur tölublaði Vikunnar segir Stefán Jón
vakamiðlunar að undanförnu. Eftir stöðvanna tveggja og Ríkisútvarpið Hafstein að miklar vinsældir tónlist-
grimmilega samkeppni hafa Bylgjan hefur eflt Rás 2. í viðtali í síðasta arstöðvanna hafi verið tískufyrir-
brigði. Þorgeir Ástvaldsson var
fyrsti forstöðumaður Rásar 2 sem
sett var á laggirnar skömmu áður en
einkaréttur Ríkisútvarpsins var af-
numinn. Hann fór þaðan sár og
reynslunni ríkari og stofnaði Stjörn-
una ásamt fleirum. í eftirfarandi við-
tali lítur Þorgeir yfir sviðið og segir
álit sitt á möguleikum einkastöðva
og fullyrðir að Ríkisútvarpið vilji
þessar stöðvar feigar.
VIÐTAL: SÆMUNDUR GUÐVINSSON
UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Eg hafði alls ekki frítt spil með Rás
2 heldur þvert á móti mjög skýra
skilgreiningu og skorður settar
hvað viðkom e£ni og útsending-
artíma. Þetta átti eingöngu að vera tónlist-
arstöð sem ekki var ætlað að vera með
neina talmálsliði. Ég háði harða baráttu við
stjórnkerfl Ríkisútvarpsins um að fá að
lengja útsendingartímann og auka fjöl-
breytni dagskrár sem var mikið atriði ekki
síst eftir að samkeppni kom frá Bylgjunni.
Ef Rás 2 hefði verið rekin sem sjálfstæð
eining hefði þetta eflaust gengið betur og
Rásin náð sér á strik á skemmri tíma. En
margir af stjórnendum Ríkisútvarpsins
voru ekki sáttir við tilurð Rásarinnar og
fannst hún fyrir Rás 1. Þetta varð aldrei sú
útvarpsstöð sem mig dreymdi um, en
engu að síður góð byrjun.“
— Nú er það staðreynd að Rás 2 var
mjög vinsæl, alla vega í byrjun?
,Já, já. Hún sópaði að sér athygli og
hlustun, enda engin furða. Þetta var fyrsta
nýja útvarpsstöðin hér á landi í hálfa öld.
Og tilkoma hennar varð menningarsjokk
fýrir marga. Fram til þessa hafði Ríkisút-
varpið flutt niðursoðið efini á tilklipptu
gullaldarmáli þar sem ekki mátti heyrast
blettur á tungunni. Við komum svo með
56 VIKAN n.TBL. 1989